Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 19
DV Iceland Airwaves þriðjudagur 16. október 2007 19
Hvar ætlið þið að spila?
„Á Organ á fimmtudaginn klukkan
20.15. Við erum ein af fyrstu hljómsveitun-
um á svið.“
Hvernig tónlist spilið þið?
„Tónlist okkar hefur verið líkt við kabar-
ett-pönk. Við spilum pönk en svo fíflumst
við svo mikið á sviði að það minnir stund-
um á kabarett.“
Er einhver hugmyndafræði á bak við
hljómsveitina?
„Nei, í rauninni ekki. Við viljum bara
hafa gaman. Við komum öll úr mismun-
andi áttum og leggjum mesta áherslu á að
spila á tónleikum.“
Hvernig er stemningin í bandinu?
„Mjög góð. Það er mikill húmor í gangi,
erum alltaf að gera grín að trommaranum.
Við reynum bara að hafa gaman og erum
ekkert að reyna að vera frægari en Sigur
Rós.“
.
Hvaða væntingar berið þið til Iceland
Airwaves?
„Við spilum svo snemma og vonumst
til þess að einhverjir verði komnir í hús á
þessum tíma. Annars er bara mikill heiður
að fá að spila þrátt fyrir lágan aldur hljóm-
sveitarinnar.“
Hvenær var hljómsveitin stofnuð?
„Það er um það bil ár síðan. Ég var
búsettur í London og þar kynntist ég
Rhonddu, en við erum par. Hún flutti með
mér til Íslands og við héldum áfram að
gera tónlist. Við eigum nú von á barni svo
það verður svona Purrkur Pillnikk-fílingur
á tónleikunum okkar.“
Farið þið í sérstakan hátíðarbúning?
„Það er mikið verið að pæla í þessu.
Rhondda vann sem tískuhönnuður hjá
Calvin Klein svo hún er alltaf að sauma.
Annars eru svo rosaleg karlmenni í band-
inu sem vilja ekkert fara í búning svo við
sjáum til. Það verður örugglega gert eitt-
hvað sniðugt.“
Spilið þið á „off venue“-tónleikum?
„Já, við spilum á Dillon á miðvikudags-
kvöldið klukkan tíu ásamt Atómstöðinni.“
Heiður að fá að spila
Einar Johnson, gítarleikari Rhondda & The Runestones
Hvar ætlið þið að spila?
„Við spilum á Gauki á Stöng á fimmtudegin-
um klukkan 19.30 á sérstöku Kerrang!-kvöldi.“
Hvernig tónlist spilið þið?
„Tilraunakennt þungarokk.“
Er einhver hugmyndafræði á bak við
hljómsveitina?
„Það er nú erfitt fyrir mig að svara því. Söngv-
arinn semur alla textana og þeir eru uppfullir af
heimspekilegum pælingum. Við leggjum upp
með að skapa okkar eigin stíl og með tímanum
erum við að verða meira og meira undir áhrifum
hver frá öðrum.“
Hvernig er stemningin í bandinu?
„Hún er mjög góð. Verkaskiptingin er jöfn.
Við leggjum allir jafnmikið í þetta, hver hefur sitt
afmarkaða hlutverk; þannig smellur þetta.“
Hvaða væntingar berið þið til Iceland
Airwaves?
„Við vonumst til þess að fá nýtt og öðruvísi
fólk að sjá okkur spila. Fram að þessu höfum við
verið að spila fyrir svolítið svona lókal krád. Þetta
er því frábært tækifæri til að kynna tónlistina fyr-
ir öðrum.“
Hvenær var hljómsveitin stofnuð?
„2003.“
Farið þið í sérstakan hátíðarbúning?
„Við erum búnir að æfa slatta og ætlum að
taka meira og minna nýtt efni. Auðvitað leggur
maður sérstakan metnað í þetta.“
Spilið þið á „off venue“-tónleikum?
„Nei.“
Hvert er markmið hljómsveitarinnar?
„Að reyna að breyta heiminum.“
Hvað á að sjá?
„Ég er nú ekki búinn að kynna mér dagskrána
nógu vel. Ætli ég kíki ekki á hljómsveitina I Adapt
og fleiri sem ég þekki. Svo ætla ég auðvitað að
reyna að kynnast fleiru.“
Momentum Hljómsveitin er skipuð
gítarleikaranum ingvari, bassaleikar-
anum Herði, trommuleikaranum
kristjáni, söngvaranum Hafsteini og
gítarleikaranum erlingi.
nýtt krád
Hörður Ólafsson, bassaleikari
hljómsveitarinnar Momentum Hlakkar til að spila fyrir
Hvar ætlið þið að spila?
„Við spilum á NASA á miðvikudeginum
klukkan 22.30.“
Hvernig tónlist spilið þið?
„Við höfum þróast gífurlega mikið yfir það
tímabil sem við erum búnir að vera fimm
saman. Fyrsta lagið á þessum frumburði
okkar sem við vorum að gefa út var sam-
ið í janúar í fyrra og síðasta lagið var samið
tveimur dögum fyrir upptöku. Við reynum
að hafa þetta melódískt og grípandi. Þetta er
bara svona popp. Við erum með heimasíð-
una myspace.com/spellthesound þar sem
hægt er að hlusta á okkur.“
Er einhver hugmyndafræði á bak við
hljómsveitina?
„Píanóleikarinn okkar vill meina það,
hann er alltaf með einhverjar svaka pælingar
og það er alltaf skemmtilegra að vera ímynd-
unarveikur þegar maður er að skapa tónlist
og bara í hvaða listgrein sem er. En soldið
eins og tónlist, ekkert sem hægt er að segja
frá í nokkrum orðum.“
Hvernig er stemningin í bandinu?
„Við erum fimm drengir, sá yngsti var að
verða sautján ára og elsti verður nítján ára í
janúar á næsta ári. Þrír okkar eru úr MH, einn
úr Versló og einn úr Kvennó. Stemningin er
bara mjög fín. Við erum reyndar soldið kröfu-
harðir hver á annan. Þetta er vinna en ég get
ekki sagt annað en að við höfum gaman líka.“
Hvenær var hljómsveitin stofnuð?
„Í þessari mynd eins og hún er núna, eftir
að bassaleikarinn kom inn, var hljómsveitin
stofnuð í maí 2006. Við komum fyrst fram í
hljómsveitarkeppni Samfylkingarinnar. Ég
datt inn í bandið þegar ég var í níunda bekk
en gítar-, píanó- og trommuleikararnir eru
búnir að vera lengur en það.“
Hvaða væntingar berið þið til Iceland
Airwaves?
„Við ætlum að vera með eins litlar vænting-
ar og við getum en höldum að þetta verði alveg
ógeðslega skemmtilegt.“
Farið þið í sérstakan hátíðarbúning fyrir
Airwaves?
„Það er svolítið gaman að segja frá því að
móðir mín er gamall saumakennari og hefur
dálítið gaman af því að varðveita saumahæfi-
leika sína og leika sér með föt sem hún svo próf-
ar á mér. Hún var svo hrifin af plötuumslaginu
okkar að hún er alltaf að taka hugmyndir af því
og láta á skyrtur og jakka. Það leikur enginn vafi
á því að ég verð í einhverri svoleiðis múnder-
ingu á tónleikunum. En það er bara gaman af
því þetta er allt mjög flott sem hún gerir.“
Spilið þið á „off venue“-tónleikum?
„Nei, við gerum það ekki, vorum eitthvað
að pæla í að sækja um það en það varð ekki úr
því.“
kröfuHarðir á
Hver annan
Soundspell Hljómsveitin er skipuð söngvaranum
alexander briem, bassaleikaranum Áskeli Harðarsyni,
trommuleikaranum bernharði þórssyni, gítarleikaran-
um jóni gunnari ólafssyni og hljómborðsleikaranum
Sigurði Ásgeiri Árnasyni.
Rhondda & The Runestones Hljómsveitin er
skipuð söngkonunni rhonddu grove, gítarleikaran-
um einari johnson, gítarleikaranum Sigursteini
kristjánssyni, bassaleikaranum Pétri geir óskarssyni
og trommaranum ara bjarnasyni.
Framhald á
næstu síðu
Alexander Briem, söngvari Soundspell.