Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Síða 16
ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200716 Sport DV
Freddie Kanoute, leikmað-
ur Sevilla og malíska landsliðsins,
varð fyrir heldur óskemmtilegri líf-
reynslu um helgina. Hann var þá
að leika með landsliði sínu í Afr-
íkukeppninni í Tógó gegn heima-
mönnum. Malí vann þann leik 2–0
og skoraði Kanoute eitt marka Malí
á 37. mínútu.
Mamadou Diallo skoraði síðara
mark Malí undir lokin og þá varð
allt vitlaust. Stuðningsmenn Tógó
tóku þá upp á því að henda blys-
um inn á völlinn, ekki ósvipað og
stuðningsmenn Inter gerðu um árið
í Meistaradeildinni gegn AC Milan,
og réðust svo inn á völlinn. Þar var
Kanoute helsta skotmark þeirra og
var hann laminn allhressilega með
beltum og fleira lauslegu. Honum
tókst að koma sér af vellinum en
það þurfti að sauma nokkur spor í
hann vegna áverka sem hann hlaut.
Mamadi Sidebe, leikmaður Stoke
City, fékk stóran skurð á handlegg-
inn.
„Þetta var eins og á vígvelli. Bún-
ingsherbergi okkar var allt í blóði,“
sagði Jean Jodar, landsliðsþjálfari
Malí, í gær.
Knattspyrnusamband Tógó var
búið að vera í mikilli herferð fyr-
ir leikinn þar sem áhorfendur voru
hvattir til að mæta og styðja sitt lið.
Talað var um að gæslan yrði mikil og
fjölskyldur ættu að koma á völlinn.
Hins vegar var varað við því að allt
ofbeldi innan vallar yrði kært til yf-
irvalda og hart yrði tekið á ofbeldis-
seggjum.
benni@dv.is
Freddie Kanoute, leikmaður Sevilla og Malí, var laminn um helgina:
Ráðist á Kanoute í landsleiK
Allt vitlaust eftir leik Miklar óeirðir
voru í Tógó eftir leikinn gegn Malí.
Dunne segir mér til
Micah Richards, leikmaður Manchest-
er City, hefur slegið í gegn á þessari
leiktíð. Hann
spilar stórt
hlutverk hjá
Manchester City
og enska
landsliðinu en
segist þó enn
eiga mikið eftir
ólært. Richards
segir jafnframt
að Richard
dunne, félagi hans hjá Manchester City,
hjálpi honum mikið. „Ég er enn ungur
og ég er enn að læra. Ég veit að ég á
það til að elta menn um allan völl en
þar hefur Richard dunne hjálpað mér.
Hann er alltaf að segja mér til og hefur
gefið mér sjálfstraust og trú á sjálfan
mig,“ segir Richards.
Owen er ekki á förum
Alan Shearer, fyrrverandi leikmaður
Newcastle, segir að Michael Owen sé
ekki á förum frá
Newcastle.
Owen hefur
verið orðaður við
nokkur lið, nú
síðast Manchest-
er City. „Hann
(Owen) fær engu
ráðið um hvað er
sagt og hann
getur ekki svarað
fyrir sig í hverri viku. Hann er ánægður
og ætti ekki að þurfa þess,“ segir
Shearer. Owen verður í eldlínunni með
Englendingum á morgun þegar þeir
mæta Rússum á gervigrasi og Shearer
óttast að Owen kunni að meiðast í
þeim leik.
Úrvalsdeildin hlyti mesta
skaðann
Moritz Volz, leikmaður Fulham,
gagnrýnir hugmyndir Sepps Blatter,
forseta
alþjóðaknatt-
spyrnusam-
bandsins, um að
fækka erlendum
leikmönnum í
ensku
úrvalsdeildinni.
Blatter vill koma
á legg reglu sem
segir að aðeins
fimm erlendir leikmenn megi vera í
byrjunarliðinu hverju sinni. „Ég tel að
úrvalsdeildin myndi hljóta mestan
skaða og færi aftur um mörg ár. Ég tel
að innreið erlendra leikmanna hafi
aðeins aukið gæði enskra leikmanna og
fótboltans á Englandi,“ segir Volz.
Santa Cruz gæti þurft að fara í
aðgerð
Blackburn gerir sér vonir um að meiðsli
Roques Santa Cruz séu ekki svo
alvarleg að
leikmaðurinn
þurfi að fara í
aðgerð. Santa
Cruz er með
skaddaða
vöðvafestingu í
hné og þurfti að
draga sig út úr
leikmannahópi
Paragvæ í
síðustu viku vegna þessa. Enn er óljóst
hvort hvíld sé nægileg. Santa Cruz fór í
tvær hnéaðgerðir þegar hann lék með
Bayern München. Hann hefur farið
mikinn það sem af er leiktíðinni og
skorað fimm mörk í öllum keppnum
hingað til.
Chelsea bauð ekki í Kaka
Milan hefur neitað þeim sögusögnum
að Chelsea hafi gert risatilboð í
brasilíska miðjumanninn Kaka.
Sögusagnir voru uppi um að Chelsea
hafi boðið allt að 100 milljónir punda í
Kaka, eða um 12 milljarða króna.
„Risatilboð Chelsea er uppspuni. Ekkert
lið hefur borið víurnar í hann fyrir utan
Real Madrid og þegar þeir gerðu það
sögðum við kurteislega að hann væri
ekki til sölu. Kaka mun virða sinn
samning til ársins 2011,“ segir adriano
galliani, varaforseti Milan.
enSKi bOltinn EYJÓLFUR KOMINN
Á ENDASTÖÐ?
Íslenska landsliðið í knattspyrnu sleikir sárin eftir slæmt tap á heimavelli fyrir Lettum.
DV fékk fjóra valinkunna einstaklinga, Ólaf Kristjánsson, Kristján Guðmundsson,
Heimi Guðjónsson og Atla Eðvaldsson, til þess að meta stöðu Eyjólfs Sverrissonar sem
landsliðsþjálfara og meta það hvort tími sé kominn til þess að skipta um karl í brúnni.
Íslenska landsliðiði liggur undir
ámæli eftir dapra frammistöðu gegn
Lettum á laugardag. Óánægjuradd-
ir hafa beinst að Eyjólfi Sverrissyni
landsliðsþjálfara og DV fékk fjóra
sérfræðinga til þess að meta stöðu
íslenska landsliðsins. Þeir eru Ólafur
Kristjánsson, Kristján Guðmunds-
son, Heimir Guðjónsson og Atli Eð-
valdsson, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari.
Ólafur Kistjánsson:
Þarf betri umgjörð
um landsliðið
„Leikurinn á móti Lettunum var
sár vonbrigði. Sérstaklega eftir leik-
inn á móti Spáni og Norður-Írum þar
sem búið var að fara vel yfir leik and-
stæðinganna. Í þeim leikjum vorum
við taktískt góðir, sérstaklega varn-
arlega. En síðan á móti Lettunum
byrjum við vel, skorum eftir 4 mín-
útur, en það sem tekur við er algjör
eyðimörk í 41 mínútu. Það sem mér
fannst sérstaklega átakanlegt að sjá
var hve varnarleikurinn var dapur
í þeim leik ef miðað er við leikina
sem voru þar á undan. Annaðhvort
vantaði að skerpa á því hjá þjálfaran-
um að fá leikmenn til að fylgja leik-
skipulaginu eða það að ekki var lögð
áhersla á það sem var vel gert í hin-
um leikjunum á undan.
Eins voru engir valmöguleikar
á bekknum. Ef þú lítur á liðið sem
byrjaði var hann með Kristján í bak-
verðinum og hann hefði getað farið
í hafsentinn ef meiðsli hefðu komið
upp og sett Grétar Rafn í hægri bak-
vörðinn.
Með það til hliðsjónar spyr mað-
ur sig af hverju leikmenn eins og
Matthías Guðmundsson voru ekki í
hópnum en hann var heitur í sumar.
Mér hefði ekki þótt óeðlilegt að hafa
hann inni í hópnum, því við hefð-
um getað notað hann á laugardag og
hann hefði getað verið með á móti
Liechtenstein en helsti veikleikinn
hjá þeim er klárlega vinstri bak-
vörðurinn sem er slakur. Ef Matthí-
as hefði verið í hópnum hefði það
boðið upp á mun fleiri valmöguleika
á laugardag og núna er hann senni-
lega besti kosturinn í hægri kant-
stöðuna.En hins vegar vita allir að
maður gerir mistök. En það er ekki
það sama að vera þjálfari í félagsliði
og að vera landsliðsþjálfari. Þjálfari á
ekki að vera að læra af mistökunum
í starfi landsliðsþjálfara. Betra er að
þjálfari læri af reynslunni í félagsliði.
Eyjólfur er klárlega efnilegur þjálfari
og reynsluleysi hans er eðlilegt.
KSÍ þarf að meta það hvort Eyjólf-
ur er rétti maðurinn í starfið. Ég ætla
ekki að fara í einhvern kór sem segir
að það eigi að reka þjálfarann, en tap
á móti Svíum, 6–0, og slökum Lett-
um, 4–0, er ekki viðunandi svo dæmi
séu tekin.
Þetta snýst ekki bara um Eyjólf
Sverrisson, þetta snýst um alla þá
umgjörð sem landsliðið þarf að búa
við. Það er alveg sama hver verður
næsti þjálfari ef landsliðið fær ekki
æfingaleiki til þess að spila verðum
við áfram í sama basli. Það eru marg-
ir leikmenn sem spila í Skandinavíu
sem eru á undibúningstímabili í
febrúar og það væri tilvalið að spila
þá á móti þar sem landsliðsþjálfar-
inn hefur þá í viku og þar ætti þjálf-
arinn að hafa tækifæri á því að skóla
liðið inn í eitthvert leikkerfi. Það er
alveg sama hver verður næsti þjálfari
ef landsliðsþjálfara verður ekki búin
betri aðstaða til þess að þróa liðið,“
segir Ólafur.
Heimir Guðjónsson:
Óla Jó í starfið
„Það hefur kannski ekki orðið
jafnmikil þróun á liðinu undir hans
stjórn og maður vonaðist eftir. Eft-
ir tvo ágæta leiki voru það ákveðin
vonbrigði að ná ekki betri leik heldur
en þeim sem var á móti Lettum.
Ef við tökum miðjuna sem dæmi
erum við ekki það góðir að geta far-
ið inn í leik og ekki dekkað menn.
Menn voru einfaldlega ekki að dekka
mennina sína inni á miðjunni. Það
er einnig einkennandi hvað liðið
tapar mörgum skallaboltum og það
virðist helst vera eitthvað skipulagt
kaos hjá liðinu þegar kemur að því
að dekka í föstum leikatriðum. Ís-
lendingar þurfa alltaf að vera með
þessi grunnatriði á hreinu, annars
næst ekki árangur.
Ef íslenska landsliðið ætlar sér
eitthvað þarf liðið að vera betra í því
að halda boltanum innan liðsins.
Lettar settu okkur undir pressu og
unnu hann strax af okkur. Við erum
með atvinnumenn í fótbolta og þeir
geta flestir spilað boltanum á næsta
mann.
Eyjólfur er búinn að vera með lið-
ið í tvö ár og það á að vera nógur tími
til þess að þróa liðið aðeins betur.
Það má samt ekki skella allri skuld-
inni á Eyjólf Sverrisson. Leikmenn
verða líka að taka til í hausnum á sér
því menn leggja sig bara fram gegn
stóru liðunum en þegar við spilum á
móti andstæðingum sem eru svipað-
ir okkur að getu halda menn að þetta
komi af sjálfu sér.
Eins þarf KSÍ að fá fleiri vináttu-
leiki fyrir landsliðsþjálfarann til þess
að hann geti þróað liðið. Það er ekki
nægilega góð afsökun hjá KSÍ að
segja að það sé erfitt að fá leiki og
þeir þurfa að sýna af sér meiri dug í
þessum efnum.
Ég held að það sé í lagi að skoða
hvaða hugmyndir Eyjólfur hefur áður
en ákvörðun er tekin í hans málum.
En ef það verður skipt um þjálfara tel
ég að við eigum að fá Ólaf Jóhannes-
son í starfið. Það er engin spurning.“
Kristján Guðmundsson:
Ég veit ekki hvort við höfum
tíma til að leyfa Eyjólfi að
þróast
„Ég hef oft sett spurningamerki
við val á hópi og innáskiptingar í
leikjum. Ég set einnig spurninga-
merki við það sem var gert við Gunn-
ar Kristjánsson og Birki Bjarnason
fyrr í sumar. Af hverju eru þeir og
Baldur Aðalsteins skyndilega dottn-
ir út úr hópnum? Ef við tökum bara
síðasta leik sem dæmi. Það var gef-
ið út að það átti að sækja upp kant-
ana. Samt eru sex varnarmenn sem
byrja leikinn með miðjumönnum
og svo eru fjórir hafsentar á bekkn-
um en það var enginn varamaður til
að koma inn á kantana fyrir Emil og
Grétar ef þeir meiðast, sem og gerð-
ist.
Einnig er athyglisvert að maður
var að vona að Eyjólfur myndi ná að
vinna með þessum drengjum sem
hann spilaði með og búa til góða
heild. En það hefur komið á daginn
að hann er of nærri þeim og það virð-
ist ekki virka.
ViðAR GuðJÓnSSon
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is