Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Page 21
Það var ekki lítið auglýsingaafrek á einum degi af Svandísi Svavarsdóttur að tala sig frá tóminu í stjórnmálum upp á pólitíska sviðið með talsverð- um þunga. Hún gerði það reyndar í vissri tóntegund að láni frá pabba (það gera allar stelpuskjátur) samt þandi hún sig hjálparlaust með sín- um hætti. Loksins, hugsuðu femín- istar, var langþráð ósvikin kvenhetja komin til skjalanna á pallinn, eins- konar ósúrsuð Ingibjörg Sólrún frá þeim sælu árum þegar allir héldu að hún væri annað og meira en munnur sem leitar á hvolf, þegar svo ber und- ir, og lætur tennurnar vera lítið annað en plat. En varla var dagur kominn að kvöldi friðarsúlunnar amerísku, sem villtist út í Viðey, þegar Svandís hafði kjaftað sig í kútinn, komin í samkrull með framsóknarblesa sem virðist vera jafnþrálátur í stjórnmálum og kleprar á kúnni sem leggst fúslega á sína skjöldóttu hlið hvar sem flór er að finna. Ætli framsóknarkleprar séu sí- fellt viðloðandi á hölunum þótt stein- geldu kúnum hafi verið slátrað? Kýrin er dauð en kleprarnir lifa! Maður gæti haldið að Svandís hafi hugsað þannig þegar hún gekk brosandi eins og mjaltakona meðal sinna húsbænda á leiðinni inn í endalausu blindgötuna sem bíður hvarvetna í samfélaginu. Til hvaða leiðsagnar er manneskja fær sem gerir sér enga grein fyrir að tímarnir hafa breyst, og stjórnmál- in hér, jafnan löngu á eftir tímanum, eru að hnusa af nýbreytni, einkum Sjálfstæðisflokkurinn sem bíður bara af tillitssemi eftir að nokkrir menn í stjórn hans og á Alþingi fari sjálfir veg allrar veraldar. Um leið og það gerist mun hann ná hreinum meirihluta. Hann þarf aðeins að slípa sig örlítið til þess að kjósendur telji fært að treysta honum einum, því hinir eru hrópar- ar á litlum þúfum sem hafa bólgnað í frosti en sléttast undir eins í flatlendi án þess að þjappan þurfi að fara mikið yfir þær. Ef Svandís hefði komið því til leiðar að flokkur hennar færi í borgar- stjórn með tuddum sem munu innan skamms týna tölunni og mannlegir kálfar á borð við Gísla Martein koma í staðinn, hefði hún leikið snjallan og óvenjulegan pólitískan leik. Hún hefði sýnt að hún veit að þótt hausinn sé hyrndur er hann betri en hali með klepra. Ferðamenn við Tjörnina Þessir ferðamenn notuðu veðurblíðuna í Reykjavík í gær til þess að virða fyrir sér Tjörnina og endurnar. Þeir stilltu sér upp fyrir myndatöku og náði ljósmyndari DV þessari skemmtilegu mynd af hópnum. DV-Mynd Stefán myndin Sandkassinn Stúlkan öskraði og það var greinilegt að maðurinn var að ná að sveigja hana ofan í grasið. Milli okkar rann áin. Við stóðum þarna vanmáttug, gátum ekkert gert – nema hringt á lögregluna. Það var komið að miðnætti og fáir á ferli í þessu skuggsæla hverfi. Vinur minn hringdi á lögregluna og örfáum mínútum síðar sáum við þrjá lögreglubíla koma á ógn- arhraða. Nokkrir lögreglumenn þustu niður í dimman garðinn. Allt gerðist svo hratt að það var engu líkara en við værum að horfa á mynd sem væri verið að hrað- spóla. Í baksýnisspeglinum sáum við manninn færðan í einn lög- reglubílanna og stúlkuna í ann- an. Svona brást lögreglan í Prag hratt og örugglega við aðsteðjandi hættu. Fyrir utan hús vina minna í mið- bæ ReykjavíkuR heyrðist öskur. Fólk yppti öxlum. „Æi, svona er þetta bara orðið.“ Engum datt í hug að það gæti verið hætta á ferð. Engum datt í hug að líta út um gluggann og athuga hvort eitthvað alvarlegt væri að gerast. Og engum datt í hug að hringja á lög- regluna. En hætta felst ekki bara í gjörðum, heldur líka í orðum. Of oft upp á síðkastið hef ég hitt fólk sem telur sig hafa leyfi til þess að segja ýmislegt um nafngreinda einstaklinga; orð, sem myndu varða við meiðyrði væru þau sett fram opinberlega. Nafngreint fólk er ásakað um fjármálasvik, eitur- lyfjaneyslu, framhjáhald og alvar- legri hluti. mannoRðSmoRðið er svo fullkomnað með því að segja: „Þetta er sagt í trúnaði. Þú ferð ekki með það lengra.“ Til hvers er verið að segja blaðamanni róg- burð sem hann hefur akkúrat eng- an áhuga á að heyra? Er tilgangur- inn kannski sá að blaðamaðurinn fari að kanna sannleiksgildi orð- anna og ef þau reynast á rökum reist, þá er hægt að skjóta boðber- ann? Sá sem matreiddi rógburð- arsúpuna situr áfram í skjóli stöðu sinnar og veltir fyrir sér hvernig hann muni hagnast á ógæfu sam- keppnisaðilans. Anna Kristine veltir fyrir sér hættu í ýmsum myndum. Afrek Svandísar DV Umræða ÞRIÐJuDAguR 16. OKTÓBER 2007 21 guðbergur bergsson rithöfundur AfmælisbArn vikunnAr 75 ára Guðbergur fæddist í Ísólfsskála en ólst upp í Grindavík. Hann sótti barnaskóla í Grindavík, lauk gagn- fræðaprófi frá Héraðsskólanum að Núpi í Dýrafirði, lauk kennaraprófi frá KÍ 1955 og prófum við Háskól- ann í Barcelona í spænsku, málsögu, bókmenntum og listasögu 1958. Guðbergur vann almenn sveita- störf á ýmsum bæjum frá tíu ára aldri, starfaði síðan við skipasmíð- ar 1947–49, starfaði hjá Lockhead- flugfélaginu á Stapanum 1949–51 og óf gólfteppi 1955–57 og síðar. Þá var hann næturvörður á Hótel Borg í þrjú ár og nætur- og hjúkrunarvörð- ur á Kleppi um skeið. Guðbergur hefur stundað rit- störf frá 1960. Eftirfarandi skáldsög- ur hafa komið út eftir Guðberg: Mús- in sem læðist, 1961; Tómas Jónsson metsölubók, 1966; Ástir samlyndra hjóna, 1967; Anna, 1969; Það sefur í djúpinu, 1973; Hermann og Dídí, 1974; Það rís úr djúpinu, 1976; Saga af manni sem fékk flugu í höfuðið, 1979; Saga af Ara Fróðasyni og Hug- borgu konu hans, 1980; Hjartað býr enn í helli sínum, 1982; Froskmað- urinn, 1985; Leitin að landinu fagra, skáldsaga 1985; Svanurinn, 1991 og 1992; Sú kvalda ást sem hugar- fylgsnin geyma, 1993; Ævinlega, 1994; Lömuðu kennslukonurn- ar, 2004; 11/2 Hryllileg saga, 2006. Hann sendi frá sér endurminning- arnar Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar, 1997, og Eins og steinn sem hafið fágar, 1998, skrifaði ævi- sögu séra Rögnvalds Finnbogasonar á Staðarstað, Trúin, ástin og efinn, 1988, og bókina Sæmundur Valdi- marsson og stytturnar hans, hefur sent frá sér ljóðabækur, samið smá- sagnasöfn og barnasögur. Guðbergur er afkastamesti þýð- andi úr spænsku hér á landi og þýddi m.a. Don Kíkóta frá Mancha, eftir Miguel de Cervantes (8 bindi) sem kom út á árunum 1981–84. Sú þýðing, ein sér, verður að teljast eft- irminnilegt afreksverk. Bækur Guð- bergs hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og hann hefur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um bókmenntir, listir og þjóðfélagsmál. Guðbergur var sæmdur Orðu Spánarkonugs, Riddarakrossi Af- reksorðunnar; fékk Bókmenntaverð- laun dagblaðanna 1967; verðlaun Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 1978; Menningarverðlaun DV 1983; Íslensku bókmenntaverðlaunin 1991; Íslensku bókmenntaverðlaun- in 1997; Heiðurslaun listamanna 2001, og Norræn bókmenntaverð- laun sænsku akademíunnar 2004. Bræður Guðbergs: Bjarni, f. 2.7. 1930, skipasmiður; Vilhjálmur, f. 2.10. 1937, listmálari; Hinrik, f. 13.10. 1942, vélstjóri. Foreldrar Guðbergs: Berg- ur Bjarnason, f. 1.5. 1903, d. 4.3. 1997, lengst af sjómaður og smið- ur í Grindavík, og k.h., Jóhanna Vil- hjálmsdóttir, f. 28.10. 1900, d. 26.9. 1984, húsmóðir. DV fyrir 25 áRum spurningin „Ég vona bara að hann vinni að hagsmunum almennings og tryggi að auðlindir verði í almannaeigu. Því er ekki öðruvísi farið með fiskinn í sjónum en aðrar auðlindir. Frjálslyndi flokkurinn vill að þær verði áfram í almannaeigu. Ég óska þessum meirihluta alls hins besta,“ segir guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, en margir félagar í Frjálslynda flokknum eru óánægðir með þátttöku Margrétar Sverrisdóttur í nýja meirihlutanum. HvAð FinnsT þér um nýjA meiriHluTAnn? Mínusinn í dag fær Eyjólfur Sverrisson, þjálfari A-landsliðs karla í knattspyrnu, fyrir hönd liðsins. Frammistaða þess í leiknum gegn Lettum á laugardag var mjög léleg og er ljóst að eitthvað þarf að gera til þess að blása lífi í landsliðið. P lús eð a m ínu s rithöfundur skrifar GuðberGur berGsson Ætli framsóknarkleprar séu sífellt viðloðandi á hölun- um þótt steingeldu kúnum hafi verið slátrað? Kýrin er dauð en kleprarnir lifa! Maður kaupir hjól og er rukkaður um hálfa milljón króna í iðgjöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.