Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 2

Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 2
Slökkvum ljósin á laugardagskvöld Reykjavíkurborg tekur þátt í Jarðarstund eða Earth hour í þriðja sinn með því að kveikja ekki götuljósin í borginni fyrr en kl. 21.30 laugardaginn 29. mars 2014. Jarðarstund er alþjóðlegur umhverfisvið- burður sjálfboðaliðasamtakanna World Wildlife Fund sem 7.000 þúsund borgir í 150 löndum taka þátt í. Margir hafa hug- ann við hlýnun jarðar af mannavöldum og þau áhrif sem meðal annars birtast í náttúruhamförum eins og ofsaveðri. Reykjavíkurborg hvetur um leið alla sem hafa forræði yfir upplýstum byggingum í borginni til að slökkva á lýsingunni þessa klukkustund svo fólk geti notið stundarinnar betur. Vitað er að ráð- húsið í Reykjavík, Perlan í Öskjuhlíð og aðalbygging Háskóla Íslands verða ekki upplýst. Kjörið tækifæri myndast í hverfum borgarinnar til að leggja málefninu lið og hvetur Reykjavíkurborg fjölskyldur til að taka þátt með því að ræða saman við kertaljós hvernig þær geti lagt Jörðinni lið með breyttri hegðun, til dæmis breytt- um samgönguvenjum, bættri flokkun við endurvinnslu, dregið úr umbúðum og aukið sparneytni í orkumálum. -eh 12 ný störf á Akureyri Ný verslun Lindex verður opnuð á Glerártorgi á Akureyri í ágúst, sú þriðja á Íslandi. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður af hálfu Eikar fasteignafélags og forráðamanna Lindex. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður Evrópu með nærri 500 verslanir í 16 löndum. Gera má ráð fyrir að um 12 ný störf skapist hjá Lindex við nýju verslunina á Akureyri. „Þetta er okkar þriðja Lindex verslun á Íslandi og við erum öll full tilhökkunar að bjóða okkar tísku- og barnafatnað nýju við- skiptavinum okkar í höfuðstað norðursins, sjáumst í ágúst!“ segir Johan Isacsson, yfirmaður umboðsmála hjá Lindex, í til- kynningu en hinar tvær eru í Smáralind og Kringlunni þar sem aðeins er boðið upp á barnaföt. Verslunin á Glerártorgi verður 470 fer- metrar, staðsett í norðurhluta Glerártorgs og mun bjóða allar þrjár meginvörulínur Lindex. -eh Skuldalækkun eykur neyslu segir ASÍ Skuldalækkunin, sem ríkisstjórnin kynnti í fyrradag, eykur ráðstöfunartekjur og hreina eign heimilanna og leiðir líklega til aukinnar neyslu, segir ASÍ í nýrri hagspá. „Aðgerðinni nú er ætlað að ná til fjölda heimila sem hvorki eru í skulda- né greiðsluvanda og því má búast við að þau heimili nýti sér það svigrúm, sem aðgerðin skapar þeim, til að auka neyslu sína," segir ASÍ. Í spánni segir að framundan sé ágætur hagvöxtur, 3,2-3,5% á ári fram til 2016 en vöxturinn byggist í of miklum mæli á neyslu en ekki verðmætasköpun.  Menntun Verkfall kennara hefur staðið í tólf daga og ekkert Miðar í ViðræðuM Meira brottfall í verkföllum á vorin „Við sáum fleiri fara frá í verkfallinu 1995 heldur en árið 2000 og þá misstum við líka mikið af starfsfólki. Margir kennarar hættu í því verkfalli,” segir Yngvi Péturs- son, rektor Menntaskólans í Reykjavík. Verkfall framhaldsskólakennara hef- ur nú staðið í tólf daga og ekkert miðar í kjaraviðræðum kennara og ríkisins. Margir hafa áhyggjur af því að fram- haldsskólanemendur muni hverfa frá námi dragist verkfallið á langinn. Síðasta verkfall kennara í framhalds- skólum var haustið 2000 og stóð yfir frá 7. nóvember til 7. janúar. Að sögn Yngva voru 742 nemendur skráðir í MR þegar verkfallið hófst og 726 nemendur skiluðu sér til prófa vorið eftir. Því hafa 16 nemendur hætt í skólanum, hvort sem þeir hafa hætt námi, farið í aðra skóla eða farið til útlanda í skiptinám, en skólinn hefur ekki upplýsing- ar um það. Árið 1995 boðuðu framhalds- skólakennarar til verkfalls 17. febrúar og stóð það í sex vikur. Í upphafi skólaárs voru innrit- aðir nemendur í MR 929 talsins en 905 nemendur luku prófi. Því hafa 24 nemendur ekki lokið árinu. Hafa ber þó í huga að verk- fallið 2000 var haustverkfall sem stóð ekki yfir um vorpróf og hafði því minni áhrif á náms- framvindu nemenda í bekkjar- kerfi, sem gera ekki upp hverja önn, heldur hvert ár. Yngvi Pétursson rektor seg- ir að erfitt sé að meta brottfall verkfallsins 2000 vegna þessa en minnist þess að brottfallið hafi verið meira í vorverkföllum. -hh Þúsundir framhaldsskólanema eru í óvissu vegna verkfalls kenn- ara. Yngvi Pétursson rektor í MR segir að fleiri nemendur hafi hætt námi árið 1995 en árið 2000, en fyrra verkfallið var að vori til. Ljósmynd/Hari Yngvi Pétursson, rektor Menntaskól- ans í Reykjavík. f oreldrum átta ára stúlku brá heldur betur í brún þegar þeim barst 85.000 króna reikningur frá Appstore. Í ljós kom að dóttir þeirra, sem hafði leikið sér í iPad fjölskyld- unnar, hafði sér óafvitandi verslað fyrir háar upphæðir í gegnum leiki á netinu. Leikirnir sem um ræðir eru Monster Legends og Pet Shop Story og eru hann- aðir þannig að reglulega býðst leik- manni sá kostur að kaupa aukahluti eins og gimsteina og demanta til að öðlast meiri krafta eða fleiri stig og komast á hærri borð. „Það eru bara þessir tveir leikir sem haga sér svona svo ég viti,“ segir Krist- björg Richter móðir stúlkunnar. „Hér á bæ hafa ógrynni leikja verið prófaðir og aldrei hef ég lent í öðru eins. Það þarf ekki einu sinni að setja lykilorð til að kaupa hluti í þessum leikjum.“ Kristbjörg taldi sig vissa um að hafa lokað fyrir þá valmöguleika að geta verslað í gegnum leiki á netinu. „Ég prófaði þetta sjálf og komst að raun um hvað þetta er auðvelt. Það þarf ekki annað en að ýta á glans- andi demanta og þá ertu búin að versla fyrir kannski 8.000 krónur. Annars var ég aðallega að spá í því að loka fyrir bannaðar síður og að ókunnugir gætu sett sig í samband við hana í gegnum leiki og þess háttar,“ segir Kristbjörg sem finnst svona gróðastarfsemi dansa á velsæmismörkunum. „Þetta í raun bara glæpsamlegt.“ Samkvæmt upplýsingum frá Maclandi þarf að setja inn lykilorð áður en verslað er í Appstore, en lykilorðið dugar í 15 mínútur og á þeim tíma er hægt að versla fyrir háar upphæðir því fjársjóðirnir í leikjunum kosta frá 4 dollurum upp í 56 dollara. Ansi háar upphæðir geta því horfið á skömmum tíma í leikjum á net- inu. Starfsmenn Maclands benda foreldr- um á að ef slík tilfelli komi upp sé hægt að tilkynna það til Appstore og biðja í kjölfarið um endurgreiðslu frá Apple. Einnig bendir Macland foreldrum á að hægt er að loka fyrir viðbótarkaup í gegnum hverskyns smáforrit (öpp) með því að fara í stillingar (settings) og þaðan í almennt (general) og þaðan í takmark- anir (restrictions). Þaðan er svo hægt að loka fyrir verslun innan smáforrita (in app purchases). Halla Harðardóttir halla@frettatiminn  tölVuleikir stúlka keypti óVart aukahluti í tölVuleikjuM Fengu 85 þúsund króna reikning vegna leikja á iPad Grunlausir foreldar fengu 85.000 króna reikning frá Appstore eftir að dóttir þeirra keypti óafvitandi rándýra fjársjóði í leikjunum Monster Legends og Pet Shop Story. Það þarf ekki annað en að líta á glansandi demanta og þá ertu búin að versla fyrir kannski 8.000 krónur. Pet Shop Story leikurinn er mjög vinsæll en þar geta börn eytt háum upphæðum ef ekki er lokað fyrir vissa valmöguleika innan stillinga tölvunnar. 2 fréttir Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.