Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 6
 Fjölmiðlar Herdubreid.is, nýr veFmiðill á gömlum grunni, Fór í loFtið í gær Þetta mun verða einn af þátt- unum sem ýta gengi krónunnar niður.  eFnaHagsmál Hvað þýðir aFlabrestur á loðnu Fyrir líFskjörin? Hagvöxtur tæpu prósenti minni en ella Fimmtán milljarðar króna tapast úr íslenska hagkerfinu vegna þess hve loðnuveiðar gengu illa þetta árið. Mikið tap en engin katastrófa, segir Daði Már Kristófersson, auðlindahagfræðingur. H agvöxtur í ár verður tæpu prósenti minni en ella vegna þess hve lítið veiddist af loðnu á þessari vertíð. Samdrátturinn frá síðasta ári nemur um 231.000 tonnum. Vegna þess eru útflutningsverðmæti frá Íslandi 15 milljörðum króna minni en í fyrra, segir Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Há- skóla Íslands. Samdrátturinn nemur álíka fjárhæð og allur rekstrarkostnaður Háskóla Íslands í eitt ár. „Ef hagvöxtur á að vera 3% þarf tapið að vegast upp með öðrum hætti og eitt- hvað annað þarf að koma í staðinn fyrir loðnuna.“ Það er ekki nýtt að loðnuveiði bregðist; það hafa löngum verið meiri sveiflur í veiðum á henni en öðrum tegundum sem nýttar eru hér við land. Síðast varð aflabrestur á loðnu árið 2009. Vertíðin það árið varð sú lélegasta undanfarin 30 ár. Vertíðin í ár er sú næstlélegasta á því tímabili. Hver verða áhrifin af þessum aflabresti á lífskjör fólks í landinu – annarra en sjó- manna og þeirra sem tengjast starf- seminni beint? „Þetta hafa verið mjög ábatasamar veiðar og við getum sagt að stuðli að þvi að rýra lífskjörin en um- fangið er nú ekki mjög mikið. Við erum ekki að tala um neina katastrófu,“ segir Daði Már. Samanborið við tekjur af þorskveiðum séu loðnu- veiðarnar ekki mjög þýðing- armiklar, „en 15 milljarðar eru miklir peningar og þetta hefur mikil áhrif.“ „Þetta mun verða einn af þáttunum sem ýta gengi krónunnar niður,“ segir Daði Már. Hann segir að gengisáhrifin verði þó ekki mikil en eins og kunnugt er myndast verð krónunnar ekki á markaði heldur er það ákveðið af Seðlabankanum innan gjaldeyris- hafta. Þetta sé einn af fleiri þáttum sem stuðli að veikingu gengisins en aðrir þættir haldi verðinu uppi. Það er hins vegar enginn vafi á því að aflabresturinn hefur mikil áhrif á tekjur sjómanna, verkafólks, netagerðarmanna og ýmissa iðnaðar- manna og þjónustufyrirtækja, að ógleymdum útgerðarfyrirtækjum en loðnuveiðar eru meðal ábatasömustu veiða sem hér eru stundaðar þegar vel gengur. Pétur Gunnarsson petur@frettatiminn.is Daði Már Krist- ófersson, dósent í auðlindahagfræði, og forseti félagsvísinda- sviðs HÍ. Loðnan er þýðingarmikil útflutningsafurð fyrir efna- hagslífið. Fimmtán milljarðar tapast úr hagkerfinu í ár vegna lélegrar loðnuvertíðar. Spegla samfélagið í vel skrifuðum texta Nýr vefmiðill leit dagsins ljós í gær- morgun, herdubreid.is, og er byggður á grunni samnefnds tímarits, sem Karl Th. Birgisson, gaf út áður fyrr. Karl er eigandi og ritstjóri og segir í pistli sem fylgir vefnum úr hlaði að hlutverk vefmiðilsins sé að „spegla sam- tíma okkar og samfélag í vel skrifuðum texta. Hið „pólitíska“ erindi er að stuðla að eðlilegu samfélagi og þykir víst sum- um nóg færst í fang.“ Karl segir í samtali við Fréttatímann að vefurinn verði uppfærður oft á dag og ekki bara með fréttum. Hann seg- Karl Th. Birgisson er kominn með nýjan vefmiðil, herdubreid.is. ist ekki ætla sér í samkeppni við Vísi og Pressuna og slíka miðla. „Efnis- tök Herðubreiðar verða allt önnur. Við erum ekki í hefðbundnum fréttaskrif- um, til þess eru nógu margir miðlar nú þegar. Við ætlum frekar að endur- spegla samfélagið og samtíma okkar, eins og Herðubreið hefur alltaf gert. Þar þykir okkur vera stórt ófyllt pláss á markaðnum. En þótt við látum aðra um gusugang og upphrópanir dags- ins þýðir það ekki að við látum okkur dægurmál ekki skipta. Þvert á móti, en Herðubreið fjallar um þau með sínum hætti, vonandi með hæfilegum skammti af húmor líka.“ Spurður um starfsmannahald, eigend- ur og fjármögnun segir Karl: „Ritstjórn- arskrifum sinni ég einn, en þarna er stór hópur öflugra penna, um 30 manns í upphafi og fer stækkandi. Útgefandi er Nýtt land, útgáfufélag í minni eigu. Fjármögnun er engin, aðeins vinnufram- lag mitt og margra fleiri sem eru áhuga- samir um verkefnið. Við seljum auglýs- ingar á vefinn, sem vonandi verður til þess að einhvern tíma verður hægt að greiða laun.“ -pg Veitir þér stuðning á rétta staði líkamans betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477 Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16 REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍsAfJöRðUR Heilsudýnan sem styður svo vel við þig að þér finnst þú svífa Gerðu kröfur TEMPUR® stenst þær! 6 fréttir Helgin 28.-30. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.