Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Einn maður stundar veiðar á stórhvelum við Ís-
landsstrendur: Kristján Loftsson. Það gerir hann
hins vegar með stuðningi heillar þjóðar og í um-
boði ríkisstjórnarinnar í krafti auðs og tengsla.
Einn maður. Sem með áhugamáli sínu skaðar
orðspor heillar þjóðar.
Okkur Íslendingum er líkt við þjóðir sem
drepa fíla vegna ásóknar í fílabein. Myndum við
samþykkja það að hér væru drepnir villtir fílar
hvort sem þeir væru í útrým-
ingarhættu eða ekki?
Hvað sem okkur finnst um
hvalveiðar – og ágreininginn
um hvort þeir séu í útrýming-
arhættu eður ei – þá erum við
hluti af samfélagi þjóðanna.
Hafið í kringum landið okkar
blandast öðrum heimshöfum.
Hvalirnir okkar synda um alla
heimskringluna á langri ævi
sinni – en eru drepnir hér.
Hvaða rétt höfum við á því?
Hvers vegna lútum við ekki alþjóðasamningum
og almannavilja? Hvers vegna gilda ekki sömu
reglur um okkur Íslendinga og aðra?
Snýst þetta mál – eins og svo mörg önnur – um
„rétt“ okkar Íslendinga, „þjóðarréttindi“, „sjálf-
stæði“, „eigin ákvörðunarrétt“ og að láta ekki
„kúga“ okkur? Hvers vegna þurfum við alltaf að
vera svona þversum? Og það sérstaklega í máli
sem skiptir nákvæmlega engu máli í stóra sam-
henginu?
Við höfum engra hagsmuna að gæta í þessu
máli. Ef Kristján Loftsson hefði ekki þann
óslökkvandi áhuga á hvalveiðum sem hann virð-
ist hafa, væru hér einfaldlega ekki stundaðar
veiðar á stórhvelum. Enginn hefur sýnt þeim
áhuga utan Kristjáns. Hér er því heil þjóð í stríði
við umheiminn til að gæta þess að einn maður
geti leikið sér að því að skjóta stærstu spendýr
jarðar.
Við erum reyndar ekki eina þjóðin sem stundar
hvalveiðar. En hvað varðar það okkur? Mamma
mín sagði stundum við mig þegar ég var lítil og
ég var að afsaka mig yfir einhverju sem ég hafði
gert af mér á þeim forsendum að aðrir hefðu gert
það líka: „Myndir þú éta skít ef aðrir ætu skít?“
Það á svo sannarlega við í þessu tilfelli.
Við höfum engar ástæður, engar afsakanir, til
að halda áfram hvalveiðum. Þó svo að við séum
ekki sammála sjónarmiðum hvalfriðunarsinna
getum við samt haft samúð með þeim. Við get-
um sett okkur í þeirra spor. Hvalveiðar okkar
Íslendinga eru algjörlega tilgangslausar – það
er meginatriðið. Við höfum enga ástæðu til þess
að berjast fyrir réttindum okkar (hvort sem þau
eru raunveruleg eða ekki) – því enginn nema
Kristján Loftsson hefur áhuga á að nýta sér þau.
Heilu herferðirnar eru í gangi víða um heim,
gegn íslenskum sjávarafurðum í Bandaríkjunum,
gegn heimsóknum túrista til Íslands og þar fram
eftir götunum. Ekki er ljóst hversu skaðlegar
þær reynist – eða hvort þær skaði okkur yfir
höfuð – en víst er að gott væri að vera án þeirra.
Ferðamálayfirvöld telja hvalveiðar Íslendinga
skaða ímynd landsins – og fyrir það eitt ættum
við að hætta þeim.
Ein stærsta útflutningsgrein okkar er túrismi.
Við höfum lagt mikla fyrirhöfn í að byggja hér
upp túrisma undanfarna áratugi með því að aug-
lýsa að hér sé að finna samfélag sem byggir á
endurnýjanlegum orkugjöfum í góðu samspili
við hreina og óspjallaða náttúru. Hingað kemur
fólk einmitt til að njóta þess sem landið hefur upp
á að bjóða. Eitt af því eru hvalirnir. Æ fleiri hafa
lifibrauð af hvalaskoðunum ferðamanna – rétt
eins og að fjöldi fólks lifir á því að ferja túrista á
Gullfoss og Geysi.
Áhugamál Kristjáns Loftsson hefur áhrif á orðspor þjóðarinnar
Hvalveiðar eins manns
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Roma hornsófi 2H2
Basel sófasett 3+1+1
Rín tungusófi
* í völdum áklæðum
hefjast 31. mars og 1. apríl
4 vikna námskeið
Ný námskeið
N
ý
ná
m
sk
ei
ð
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
60 ára og eldri:
Í form fyrir golfið
Sérhæfð þjálfun fyrir golfara
Þri. og fim. kl. 11:10 og 12:10.
Jóga
Þri. og fim. kl. 12:00.
Zumba og Zumba toning
Dansaðu þig í form!
Þri. og fim. kl. 16:30.
Kvennaleikfimi
Gamla góða leikfimin fyrir konur
Mán., mið. og föst. kl. 16:30.
Morgunþrek
Fjölbreyttir púl tímar fyrir karla og konur
Mán., mið. og föst. kl. 7:45 eða 09:00
Leikfimi 60+
Mán. og mið. kl. 11:00.
Mán. og mið. kl. 15:00.
Þri. og fim. kl. 10:00.
Zumba Gold 60+
Fyrir þá sem hafa gaman af að dansa.
Þri. og fim. kl. 11:00.
14 viðhorf Helgin 28.-30. mars 2014