Fréttatíminn - 28.03.2014, Qupperneq 16
Samkvæmt nýjum dómi þarf barn að ganga í tvo leikskóla, gegn vilja annars foreldris
Hagur barnsins er ofar foreldrajafnrétti
Á síðustu misserum hefur aukist að sveitarfélög fái beiðnir frá foreldrum, sem ekki eru í sam-
vistum og búa ekki í sama sveitarfélagi
en fara með sameiginlega forsjá yfir
börnum sínum, um að börnin fái leik-
skólavist í tveimur leikskólum samtímis.
Þegar beiðnirnar koma frá sjálfum for-
eldrunum má gefa sér að þeir
séu sammála um þá leið og
séu tilbúnir til að vinna að því
að lágmarka rask fyrir barnið
og að aðstæður þeirra sjálfra
séu þannig að hag barnsins sé
best borgið með þessu fyrir-
komulagi.
Samband íslenskra sveitar-
félaga fékk formlega beiðni
frá Reykjavíkurborg um að
taka málið til umfjöllunar og
á síðasta ári lagði sambandið
fram leiðbeinandi álit vegna
tvöfaldrar leikskólavistar. Í
þessu áliti er lögð áhersla á að hagur
barnsins vegi þyngra en sjónarmið um
jafnrétti foreldra, og bent á að það sé
ennfremur andi íslenskra barnalaga.
Þar segir ennfremur að jöfn búseta til
skiptis hjá foreldrum geti „...þjónað
hagsmunum barnsins svo framarlega
sem foreldrar hafi náið samstarf og sam-
stöðu um að ekki verði veruleg röskun
á högum barns, til dæmis hvað skóla-
göngu varðar.”
Í Fréttatímanum í dag er fjallað um
mál barns sem þarf að ganga í tvo leik-
skóla, ekki vegna þess að foreldrar kom-
ust að þeirri sameiginlegri niðurstöðu
að það væri best fyrir barnið, heldur af
því að niðurstaða héraðsdómstóls var sú
að barnið skyldi dveljast viku og viku hjá
sitthvoru foreldrinu sem búa í sitthvoru
sveitarfélaginu og ganga í tvo leikskóla.
Ef við skoðum þetta í stóra sam-
henginu, ekki endilega bundið við þetta
einstaka mál, þá má sannarlega setja
spurningarmerki við að dómstólar láti
ósamstíga foreldra skipta lífi barns síns
á milli tveggja heima, viku og viku. Eins
og Hrefna Friðriksdóttur, dósent í fjöl-
skyldu- og erfðarétti, bendir á er leik-
skóli fyrsta skólastigið og hver leikskóli
mótar sína eigin stefnu. Í áliti Sambands
íslenskra sveitarfélaga er einnig tekið
fram að sterk vináttutengsl myndast
almennt milli barna á aldrinum þriggja
til fjögurra ára og því skipti miklu að
börn geti þroskað þá hæfileika í öruggu
leikskólaumhverfi með sama félagahópi,
auk þess sem daglegar venjur og stöðug-
leiki séu mikilvæg í lífi ungra barna.
Í því dómsmáli, sem er fjallað um í
blaðinu, var kallaður til dómskvaddur
matsmaður sem komst að þeirri niður-
stöðu að báðir foreldrar væru hæfir
og gætu vel sinnt þörfum barnsins, og
að ekkert ætti að standa í vegi fyrir
umgengni viku og viku. Þetta er niður-
staðan þrátt fyrir að aðeins annað
foreldrið telur það raunhæfan kost að
barnið gangi í tvo leikskóla en hinu
foreldrinu finnst það of mikið rask
fyrir barnið. Þá vekur það óneitan-
lega athygli að samkvæmt dómi skal
umgengnin breytast þegar grunnskóla-
ganga hefst og þykir þá ekki lengur
sjálfsagt að barnið dvelji viku og viku
hjá hvoru foreldri, aðra vikuna á höfuð-
borgarsvæðinu og hina vikuna úti á
landi.
Samfélag okkar er að breytast og
í auknum mæli taka foreldrar jafna
ábyrgð á börnum sínum þó að þeir
slíti samvistum, og samhliða því þykir
sjaldnast lengur tiltökumál að barn sé
viku hjá öðru foreldri og viku hjá hinu.
Það sem samstíga foreldrar reyna yfir-
leitt að gera til að þetta gangi betur er
að halda heimili það nálægt hvort öðru
að það sé ekki vandamál að barnið sé á
einum leikskóla. Auðvitað er ekki alltaf
hægt að koma slíku við en þá þurfa
foreldrar að geta sett sjálfa sig í annað
sætið og barnið í forgang. Þetta snýst
aldrei um foreldrajafnrétti, þetta snýst
um hag barnsins.
Hollir
ávaxta- og grænmetisdrykkir
með safapressunni frá SOLIS
SOLIS
SAFAPRESSAN
VINSÆLA
AEG TÖFRASPROTI
MEÐ AUKAHLUTUM
Dásamlegt verkfæri
í öll alvöru eldhús
EÐAL POTTAR OG PÖNNUR
ACTIFRY
Tryggir holla og næringaríka
eldamennsku
Nýtt snilldartæki í eldhúsið
Fallegur borðbúnaður
Hnífaparasett úr burstuðu stáli
FÆST Í ÁTTA LITUM
Ankarsrum® Original
matvinnsluvélin - er lífstíðareign
TÖKUM VEL Á MÓTI
VÆNTANLEGUM
BRÚÐHJÓNUM
OG STOFNUM
BRÚÐARGJAFALISTA
Í ÞEIRRA NAFNI
Frábært
úrval AEG
heimilistækja
Jamie Oliver ÍTALSKT ESPRESSÓ
Beint í bollann og ilmandi ferskt
TÆR
SNILLD
Hágæða
stálhnífar
í eldhúsið
– úrval af
úrvalshnífum
Gjafakort frá Ormsson
er mjög góð gjöf! LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · www.ormsson.isV ER S L A N I R O G U M B O Ð S M E N N U M L A N D A L LT
Vikan sem Var
Þvílík lykt!
Þau eru víst mjög hænd
hvort að öðru og hann
hefur fundið lyktina af
eiganda sínum og reynir
þá auðvitað að finna
hana.
Jónas Guðmundsson hjá
Landsbjörgu lýsir því hvernig
hundurinn Sámur fann Dorrit Moussaieff
forsetafrú sem hafði verið grafin í fönn.
Forsetahjónin tóku þátt í æfingu Lands-
bjargar á Hólmavík.
Það er einmitt það
Íslendingar fyllast
bjartsýni á horfur í
efnahagsmálum, enda
rík ástæða til.
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra telur
að landið sé að rísa á
Facebook.
Af hverju leggurðu þá
ekki inn á fólk?
Svo virðist umsóknar-
ferlið vera auðveldara
en að panta sér pizzu.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson var ánægður
með skuldalækkunartillög-
urnar á Facebook-síðu sinni.
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
sjónarhóll
16 viðhorf Helgin 28.-30. mars 2014