Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 22

Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 22
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn og sér. www.odalsostar.is ÓÐALSOSTUR TIGNARLEGUR Skagfirski ráðherrann Fyrir tæpu ári varð Gunnar Bragi Sveins- son utanríkis- ráðherra. Bak- grunnur hans í pólitík er fyrir norðan en fyrir hvað stendur Gunnar Bragi? Fréttatíminn kynnti sér líf og störf þessa umtalaða manns. Á afrekaskránni er meðal annars pylsusala og tónleikaferðalög með Geirmundi Valtýssyni. F ramganga Gunnars Braga Sveins-sonar utanríkisráðherra undan-farið í málefnum Úkraínu og Rússlands hefur vakið athygli. Nefnt er að hann hafi sýnt ákveðni og sent skýr skilaboð um að hann ætli að stýra utan- ríkisstefnu landsins sama hvað forsetinn gerir eða segir. Slík staðfesta hefur ekki alltaf einkennt störf hans. Á flokksþingi Framsóknarflokksins árið 2009 var hann einn af aðalhöfundum ályktunar um Evr- ópusambandsviðræður en ári síðar lagði hann til að Alþingi drægi umsóknina til baka sem hann ítrekaði svo aftur á þingi í febrúar síðastliðnum. Skapmikill en fljótur niður aftur Styrkur Gunnars Braga felst í því að hann er kraftmikill, duglegur og fús að tileinka sér nýja hluti. „Hann er skap- maður, reiðist auðveldlega en er fljótur niður aftur,“ segir þingmaður úr stjórnar- liðinu. „Hann er tilfinningasamur maður en þú veist alltaf hvar þú hefur hann. Hann er hreinn og beinn sem getur kom- ið illa við suma,“ segir sá sami. Reynslu- leysi Gunnar sem utanríkisráðherra og þekkingaskortur á málaflokknum er talinn hans helsti veikleiki. Umtöluð ferð til Kænugarðs Egill Helgason skrifaði á Eyjunni að Gunnar Bragi hafi sýnt forystutilburði: „Gunnar Bragi drífur sig til Úkraínu, talar við heimamenn, sýnir þeim stuðn- ing í baráttunni fyrir lýðræði og gegn yfirgangi og spillingu.“ Ferðin var fyrst og fremst táknræn en aðrir sáu þetta sem ferð í kynningarskyni á ráðherr- anum. Hann hitti utanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, mannrétt- indasamtök, fulltrúa mómælenda og þingmenn Héraðsflokksins, liðsmenn Viktors Janukovits, fráfarandi forseta landsins og orkumálaráðherrans fyrr- verandi sem var handtekinn eftir að 42 kíló af gulli og tvær milljónir bandarískra dollara fundust heima hjá honum. Málin ytra eru flókin en spyrja má hvort að Gunnar Bragi hafi rætt við þá sem mestu máli skipta. Málar ESB dökkum litum Gunnar hefur lýst því yfir að Ísland styðji þvingunaraðgerðir ESB og Bandaríkj- anna og verði með í eftirliti Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í Úkraínu. Hann er þó þekktur fyrir að nota öll tækifæri til að mála ESB dökkum litum. Í febrúar voru mjög umdeild ummæli höfð eftir Gunnari: „Í kjölfar ákvörðunar úkraínskra stjórnvalda um að skrifa ekki undir viðskiptasamkomulag við ESB, brutust út mótmæli í Kænugarði sem hafa nú kostað um 100 manns lífið.“ Fljótlega sagði hann þó að ekki mætti skilja orð sín svo að hann hafi verið að kenna ESB um ástandið í Úkraínu. En sagði samt um leið þetta: „Það er vont að hugsa til þess að ESB hafi ekki getað komið í veg fyrir ofbeldið sem þarna er að eiga sér stað.“ Og nýlega sagði hann að hér á landi væri of mikil velmegun til að landið gengi í sambandið: „ESB er í Framhald á næstu opnu Linda Blöndal ritstjorn@frettatiminn.is Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er æskuvinur Eyjólfs Sverrissonar knatt- spyrnukappa og Björns Jóhanns Björns- sonar blaðamanns á Morgunblaðinu. Hann er gallharður stuðningsmaður Liverpool og hlustaði á Iron Maiden og Pink Floyd á unglingsárunum. Ljósmynd/Hari Það er rétt að taka það fram að ég er móðgað- ur við Rík- isútvarpið vegna þess að RÚV hefur aldrei boðið mér í einn einasta þátt í sjón- varpi frá því ég var kjör- inn á þing. Ekki einn. 22 nærmynd Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.