Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 24

Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 24
K raftaverk Hágæða heyrnatól sem hlotið hafa margvíslegar viðurkenningar fyrir hljómburð og hönnun. Hægt að tengja saman þannig að 2 eða fleiri geti hlustað úr sama tækinu. Fjarstýrð símsvörun og hljóðnemi fyrir „hands free“ símtöl. Hægt að fá í mörgum litum. Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 www. minja.is • facebook: minja TVÆR GERÐIR: PLATTAN kr. 10.900 HUMLAN kr. 9.700 HÁGÆÐA HÖNNUN, HLJÓMFYLLING & GÆÐI raun ekki í stakk búið til að taka á móti velmeg­ andi ríki eins og Íslandi og eiga samninga um aðild á jafnræðisgrundvelli.“ Allt nýtt frá Apple fyrir ráðherra og aðstoðarkonur Byrjendabragur var á Gunnari Braga í em­ bætti. Það voru liðnir um fimm mánuðir af ráðherratíð hans þegar honum hlekktist á nafni Kasakstan í ræðu á Alþingi og hélt að landið væri hluti af Rússlandi. Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi þingmaður Hreyf­ ingarinnar, gagnrýndi ráðherrann á vefsíðu sinni og skrifaði: „Góður utanríkisráðherra þarf að hafa yfirgripsmikla þekkingu á utan­ ríkismálum. Til þess að það sé hægt þarf maður að þekkja heiminn og til dæmis vita hvað löndin heita.“ Gunnar er ekki með háskólapróf og hefur ekki reynslu af því að búa erlendis sem er ókostur í huga sumra þegar utanríkisráðherra er á ferð. Það þykir heldur ekki kostur á eftir­ hrunsárunum að auka útgjöld ríkisfyrirtækja. Gunnar lét hins vegar ráðuneyti sitt kaupa ný Apple fjarskiptatæki fyrir um eina og hálfa milljón króna fyrir sig og aðstoðarkonur sínar tvær, líkt og Fréttatíminn greindi frá í síðustu viku. Þó verður að nefna að ráðneytið hans fékk eins og önnur ráðuneyti á sig 5 prósent hag­ ræðingakröfu. Tugir milljóna sem áður voru ætlaðir ráðuneyti hans voru einnig felldir niður á fjárlögum. Gunnar Bragi hefur núna hafið tiltekt á ráðuneyti sínu vegna þessa en hann ku hafa tekið því mjög illa að fá ekki áður áætlaðar tekjur fyrir sendiráðið í Brussel og Strassborg. Skjótur frami á þingi Gunnar Bragi var sveitarstjórnarmaður í Skagafirði áður en hann settist á þing árið 2009 fyrir Framsóknarflokkinn í Norðvestur kjördæmi. Hann varð strax þingflokks­ formaður og sat m.a. í utanríkismálanefnd Alþingis. Hann tók stúdentspróf frá Fjöl­ brautaskóla Norðurlands Vestra á Sauðár­ króki 1989 og nam atvinnulífsfélagsfræði við Háskóla Íslands árið 1995 en útskrifaðist ekki. Gunnar Bragi verður 45 ára í sumar og er fimm barna faðir. Eiginkona hans, Elva Björk Guðmundsdóttir húsmóðir, er ári yngri en hann og þau eiga saman fimm syni á aldrinum 14 til 26 ára. Tveir elstu synirnir eru stjúpsynir Gunnars og synir Elvu. Gunn­ ar á tvo bræður. Elstur er Björgvin, smiður á Sauðárkróki, og sá yngsti, Atli, rekur Ís­ lensku auglýsingastofuna í Reykjavík. Gunn­ ar Bragi er sá eini í fjölskyldunni sem hefur lagt fyrir sig stjórnmál ef frá er talinn faðir hans Sveinn Friðvinsson bifvélavirki sem tók þátt í sveitarstjórnarmálum á Króknum fyrir Framsókn. Á tónleikaferðalagi með Geirmundi Björgvin segir yngri bróður sinn hafi verið „þægi­ legan dreng“ og minnist þess að stundum hafi þeir tveir fengið að fara í tónleikaferðalög með Geir­ mundi Valtýssyni. Æskuvinir Gunnars eru þeir Björn Jóhann Björnsson, blaðamaður á Morgun­ blaðinu, og Eyjólfur Sverrisson knattspyrnumaður og eru þeir enn nánir. Eyjólfur segir Gunnar hafa tekið þátt í nánast öllum íþróttagreinum: „Hann var í öllu og bæði harður í horn að taka og fylginn sér á vellinum. Í ræðuliði í Fjölbrautarskólanum var hann fyrirferðamikill og mjög góður í að rífa kjaft. Annars vorum við dæmigerðir unglings­ strákar sem hlustuðum á svona „fantamúsík“ eins og Iron Maiden og Pink Floyd,“ segir Eyjólfur. Eins og fleiri í fjölskyldunni tók Gunnar líka af krafti þátt í Leikfélagi Sauðárkróks. Með Framsókn og Liverpool í blóðinu Gunnar Bragi hefur gegnt mörgum ólíkum störf­ um, m.a. fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknar­ flokkinn. Sjálfur segist hann vera framsóknar­ maður fyrst og fremst. Vera með Framsókn í blóðinu eins og hann orðaði það í viðtali við vef­ ritið skagafjordur.com. Framsókn og Liverpool eru hluti af æðakerfinu fullyrti Gunnar Bragi árið 2006 og titlaði sig þá sem pylsusala og pólitíkus. Það ár var hann framkvæmdastjóri Ábæjar­veit­ inga en sama ár sinnti hann líka a.m.k. sex trún­ aðarstörfum. Hann var formaður stjórnar sveitar­ félaga á Norðurlandi vestra, formaður gagnaveitu Skagafjarðar, formaður byggðaráðs, varaforseti sveitarstjórnar Skagafjarðar ásamt fleiru. Ætlaði í útrás með kaffihús Starfsferillinn spannar vítt svið. Gæsla í Steinull­ arverksmiðjunni, starf á verslunarsviði Kaupfélags Skagfirðinga og einnig var hann sölu­ og versl­ unarstjóri hjá Skeljungi. Hann ritstýrði héraðs­ fréttablaðinu Einherja og var aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997­1999 en einnig um tíma markaðsráðgjafi hjá auglýsingastofu litla bróður síns. Það má því segja að Gunnar Bragi fari hratt yfir sviðið en sjálfur segist hann pirrast yfir fáu nema óstundvísi. Í dag situr hann í stjórn nýsköp­ unarfyrirtækisins Umhverfið þitt SES á Sauðár­ króki. Einnig reyndi hann fyrir sér árið 2007 með viðskiptahugmynd ásamt Pétri Friðjónssyni spari­ sjóðsstjóra Skagafjarðar. Hugmyndin gekk út á að stofna kaffihúsakeðjuna Kaffi­Buna hér á landi og víðar á Norðurlöndum. Fátt virðist hafa ræst úr þeim áformum. Áður sat Gunnar Bragi í stjórn Fast­eignarhald ehf sem skráð er á Sauðárkróki á heimili Péturs og leigir út atvinnuhúsnæði. Óljóst hverjir eru bandamenn Bakland Gunnars Braga er heima í Skagafirði. Fá augljós eða bein tengsl eru á milli hans og Þórólfs Gíslasonar kaupfélagsstjóra Skagfirðinga, valdamesta manns héraðsins með áralöng ítök innan Framsóknarflokksins. Þó má eitt­ hvað ráða í þá staðreynd að Gunnar Bragi starfaði fyrir kaupfélagið undir stjórn Þórólfs frá 2000 til 2002. Af viðtölum Fréttatímans við alþingismenn virðist ekki ljóst í dag hverjir bandamenn Gunnars eru. Sigmundur Davíð er helst nefndur en ekki telst neitt öruggt með að t.d. Ás­ mundur Einar Daðason, sem kemur úr sama kjördæmi, sé sérstakur stuðningsmaður Gunnars eins og halda mætti. Margir nýir þingmenn eru í þingflokknum og erfitt að ráða í hverjir standa með hverjum, sagði þingmaður. Aldrei boðið í viðtöl í sjónvarpi Þótt Gunnar Bragi hafi sjálfur sagt að hann þoli ekki kvart og kvein, kveinkar hann sér undan fjölmiðlum, sér í lagi RÚV. Í byrjun mars ákvað Gunnar Bragi að synja RÚV um við­ töl nema hann fengi þau birt í heild óklippt eða vera að öðrum kosti að­ eins í beinum útsendingum. Þessar kröfur frá ráðherra hljómuðu fram­ andi árið 2014. Hann sagði vandann vera að rétt skilaboð kæmust ekki til almennings. Á Facebooksíðu sinni velti hann þessu fyrir sér: „Hvað er til ráða? Að taka sjálfur upp viðtölin samhliða RÚV? Hví ekki.“ Í grein í Morgunblaðinu í janúar 2012 taldi hann sig hins vegar ekki fá jafn mikla athygli og aðrir stjór­ nmálamenn: „Það er rétt að taka það fram að ég er móðgaður við Ríkis­ útvarpið vegna þess að RÚV hefur aldrei boðið mér í einn einasta þátt í sjónvarpi frá því ég var kjörinn á þing. Ekki einn. Þó er ég fyrsti þing­ maður Framsóknarflokksins í NV­ kjördæmi og formaður þingflokks framsóknarmanna!“ stóð í greininni. „Stjórnmálamenn eru óskaplega hræddir við gagnrýni fjölmiðla,“ játaði hann í viðtali á Bylgjunni um svipað leyti. Valdavíma? Áfram verður fylgst grannt með störfum Gunnars Braga. Mótmæli eru á Austurvelli og rúmlega 50 þúsund hafa skrifað á undirskriftar­ lista fyrir þjóðaratkvæði um aðildar­ viðræðurnar við ESB. „Fólk hefur rétt til að mótmæla en ríkisstjórnin ræður ferðinni,“ segir Gunnar. Einn þingmaður sagði í samtali við Frétta­ tímann að þingmenn Framsóknar væru eins og í einhverri „valdavímu“. Næstu þrjú árin eru án efa tækifæri Gunnars Braga til sýna hvað í honum býr sem stjórnmálamaður úr Skaga­ firðinum. 1. Gunnar Bragi með Eyjólfi Sverrissyni, Friðriki Steinssyni og Stefáni Héðinssyni. 2. Sverrir Björn Björnsson, Gunnar Bragi og Hólmar Ástvaldsson. 3. Guttar á Hólaveginum á Króknum, f.v. Eyjólfur Sverrisson, Björn Jóhann Björnsson og Gunnar Bragi. 4. Tvítugsafmæli Björns Jóhanns sem er fremst á myndinni. F.v. Jón Unnar Friðjónsson, Eyjólfur Sverrisson, Gunnar Bragi, Sverrir Björn Björnsson og Friðrik Steinsson. 1 2 3 4 24 nærmynd Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.