Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 26

Fréttatíminn - 28.03.2014, Page 26
N ú þegar alþjóðlegur þrýst-ingur vegna hvalveiða hér við land er að aukast bend- ir margt til þess að aðgerðunum sé í meira mæli en áður beint gegn Kristjáni Loftssyni, persónugerv- ingi hvalveiða Íslendinga bæði hér heima og á alþjóðlegum vettvangi. Búist er við því að í næstu viku muni Barack Obama, forseti Banda- ríkjanna, kynna um afstöðu sína til þess hvort beita eigi Íslendinga refsiaðgerðum vegna hvalveiða og viðskipta með hvalaafurðir. Bandaríkjastjórn telur að Íslend- inga brjóta gegn alþjóðlegum sátt- mála um viðskipti með tegundir í útrýmingarhættu. Innanríkisráð- herra Bandaríkjanna lagði beiðni um refsiaðgerðirnar á borð banda- ríkjaforseta þann 6. febrúar og lög- um samkvæmt er Obama skylt að taka ákvörðun innan 60 daga frá þeim tíma. Sams konar staða kom upp á árinu 2011 en þá ákvað Obama að beita ekki refsiaðgerðum en leggja þess í stað áherslu á að beita Ís- lendinga fortölum eftir diplómat- ískum leiðum til þess að fá þá til að hætta hvalveiðum. Eins og kunn- ugt er hafa þær fortölur ekki borið árangur. Engan bilbug er að sjá á stuðningi íslenskra stjórnvalda við hvalveiðar eins og sést af því að í desember á síðasta ári gáfu þau út kvóta fyrir hvalveiðar næstu fimm ára og gáfu Hval hf. leyfi til að veiða 154 langreyðar í ár. Gefið er til kynna í yfirlýsingu stjórnvalda að veiða megi sama fjölda, 154 dýr, ár hvert fram til ársins 2018. Það verður fróðlegt að sjá hver niðurstaða Obama verður – en krafa innanríkisráðuneytisins nú er ólík þeirri sem gerð var árið 2011 að því leyti að nú er Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, í fyrsta skipti persónulega tilgreindur sem ábyrgðarmaður ólöglegra veiða og sölu hvalaafurða. Heimildir telja að í því felist ákveðin von fyrir Íslendinga um það að komast hjá víðtækum refsiaðgerðum; Bandaríkjamönn- um sé eins og friðunarsamtökum orðið ljóst að réttara sé að tala um hvalveiðar Kristjáns Loftssonar en hvalveiðar Íslendinga; þetta sé eitt fyrirtæki, sem sé bara með nokkra menn í vinnu við árstíðabundna starfsemi yfir hásumarið. Það er líka veidd hrefna hér við land á vegum eins fyrirtækis en engin alþjóðleg viðskipti eru með þær afurðir og þær eru virðast ekki vera skotspónn friðunarsinna um þessar mundir. Kristján í skotlínunni Listi yfir helstu umsvif Kristjáns er birtur á næstu opnu. Þar sést að hann er áhrifamaður í slensku við- skiptalífi og hluthafi og stjórnar- maður í stórfyrirtækjum á borð við HB Granda og Hampiðjunni sem eiga mikilla hagsmuna að gæta í viðskiptum á alþjóðlegum vett- vangi. Kristján leggur mikla áherslu á að halda áfram hvalveiðum á veg- um Hvals hf. en tekur með því vax- andi áhættu. Ólíklegt er að mikið sé upp úr því að hafa að veiða lang- reyðar og verka kjötið á erlenda markaði um þessar mundir. Við- skipti með hvalkjöt er nú iðulega nefnt í sömu andrá og viðskipti með aðra bannvöru, fílabein, á al- þjóðlegum vettvangi. Nýlegt dæmi um slíkt var að finna í breska dag- blaðinu Guardian. Þar var bent á að japanska stórfyrirtækið Rakuten sé hið stærsta í sölu á bæði hvala- afurðum og afurðum úr fílabeini í alþjóðlegum netviðskiptum um þessar mundir. Herferð er í gangi til þess að hvetja neytendur til að sniðganga Rakuten og dótturfyrir- tæki þess. Í síðustu viku var sagt frá því að kanadískt stórfyrirtæki High Liner Foods hefði ákveðið að hætta að kaupa íslenskan fisk af HB Granda vegna tengsla Kristjáns Loftssonar við fyrirtækið en hann er þar stór hluthafi og stjórnarformaður. High Liner Foods er nú eigandi vöru- merkisins Icelandic Seafood, sem var áður í eigu íslenskra sölusam- taka og er eitt verðmætasta vöru- Kristján og hvalirnir Enn á ný beinast augu umheimsins að hvalveiðum hér við land sem víðast hvar eru litnar svipuðu hornauga og viðskipti með fííabein og afurðir dýra í útrýmingarhættu. Verndarsinnar beina í auknum mæli spjótum sínum að persónulegum hagsmunum Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals, sem kemur víða við í íslensku viðskiptalífi. Og Obama bandaríkjaforseti er með á borði sínu erindi frá innanríkisráðherra landsins þar sem hann er beðinn um að beita Íslendinga refsiaðgerðum vegna hvalveiða. Ákvörðunar er að vænta í næstu viku. Langreyður er á alþjóðlegum listum yfir dýr í útrýmingarhættu og viðskipti milli landa með afurðirnar eru langt frá því að vera einföld og hindrunarlaus. Það er vakað yfir hverjum einasta gámi sem Hvalur hf. reynir að koma úr landi. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty Framhald á næstu opnu Um klukkan fimm á laugardags- morguninn hætti skipið hins vegar að senda frá sér staðsetn- ingarmerki. Það var þá komið um 100 mílur suður af Reykjanesi og sigldi á 14 hnúta hraða til suðurs. Ekkert hefur spurst til ferða skipsins síðan þá. merkið í sögu íslensks fiskútflutnings. Í yfirlýsingu gerði HB Grandi lítið úr áhrifum aðgerða High Liner Foods á sölumál fyrirtækisins en reyndi um leið að fjarlægja sig frá hvalveiðum Kristjáns Loftssonar. Varðandi eignarhald Krist- jáns á HB Granda sagði í yfirlýsingunni að hlutabréf félagsins gangi kaupum og sölum á markaði og útilokað sé fyrir HB Granda að hlutast til um hvernig einstakir hlut- hafar hagi sínum málum. „Við erum sam- mála stjórnvöldum í skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda en höfum ekkert með það að gera hvaða starfsemi einstakir hluthafar kjósa að stunda eða stunda ekki,“ sagði þar. Það er enginn vafi á því að Kristján Lofts- son hefur einbeittan vilja til að stunda hval- veiðar og lætur ekki auðveldlega undan þrýsting. Það er hins vegar hægara sagt en gert fyrir hann að koma kjötinu á markað við núverandi aðstæður. Þau dæmi, sem hér fara á eftir, sýna að alþjóðleg viðskipti með hvalkjöt draga nú dám af svartamark- aðsbraski eða smygli fremur en venjuleg- um inn- og útflutningi í okkar nágranna- löndum. Uppnám í Kanada Í fyrra gerðu tollayfirvöld Hamborg og Rotter dam skip frá Samskipum afturreka með þrjá frystigáma með rúmlega 100 tonn af langreyðakjöti frá Íslandi á leið til Japans. Samskip lýstu því yfir í framhaldinu að skip fyrirtækisins væru hætt að flytja hvalaafurðir. Í síðasta mánuði uppgötvaðist það svo í Vancouver í Kanada að þar í höfninni voru nokkrir gámar með hvalkjöti. Þeim hafði verið landað úr skipi frá Eimskip í Halifax. Síðan höfðu þeir verið fluttir 6.000 kíló- metra leið með lestum þvert yfir Kanada til Vancouver á vesturströndinni þaðan sem flytja átti gámana með skipi til Japans. Málið vakti mikla athygli og umræður í Kanada en kanadísk stjórnvöld skárust ekki í leikinn og ekki er annað vitað en að kjötið hafi óhindrað haldið áfram til Japans. 26 fréttaskýring Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.