Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Qupperneq 29

Fréttatíminn - 28.03.2014, Qupperneq 29
Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is 4 400 400 00 600 4 400 630 4 400 573 Steypustöðin óskar Hildi og Rúnu til hamingju með bekkinn Klett Klettur er steinsteyptur útibekkur sem hentar vel í almenningsrými og einkagarða Útibekkur sem hentar vel í almenningsrými og einkagarða Grapevine, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð og dómnefnd sem skipuð er aðilum frá Listaháskóla Íslands, Hönnunarmiðstöð, verslunar eigendum í Reykjavík og fleirum, veitti Rúnu Thors vöruhönnuði og Hildi Steinþórsdóttur arkitekt viðurkenninguna Award of Excellence fyrir hönnun Kletts. • Bekkur með tvær setstöður • Styrkur, ending og falleg hönnun • Klettur er til í þremur steypulitum • Hægt er að fá Klett sérmerktan sveitarfélagi • Íslensk hönnun Runner Up Th e R ey kja vík Grapevine Design Aw ards PRODUCTOF THE YEAR2013 Áhrifamaðurinn Kristján Loftsson Kristján Loftsson er forstjóri Hvals hf., eina fyrirtækisins sem stundar stórhvalaveiðar hér við land. Kristján er einnig einn stærsti hluthafi Hvals hf., á persónulega í því 21,5% hlut en er ráðandi um stefnu félagsins. Hann hefur lengi verið umsvifamikill áhrifamaður í íslensku viðskiptalífi og hefur gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hvalur hf. hefur leyfi íslenskra stjórnvalda til þess að skjóta 154 lang- reyðar í ár. Auk þess að stunda hvalveiðar er Hvalur hf. öflugt fjárfestingarfélag í gegnum 98% eignarhald sitt í fjárfestingarfyrir- tækinu Vogun. Vogun er stærsti hluthafinn í HB Granda, stærsta sjávarútvegs- fyrirtæki landsins, og í Hampiðjunni. Kristján var endurkjör- inn í stjórn HB Granda á aðalfundi nú í mars. Hann er stjórnarformaður fyrir- tækisins, en HB Grandi er ásamt Samherja stærsta og öflugasta sjávarútvegs- fyritæki landsins og selur afurðir sínar beint á fjölmarga erlenda markaði, austan hafs og vestan, og er eigandi að fyrirtækjum í Japan, Nýja Sjálandi og Chile. Kristján situr einnig í stjórn Hampiðjunnar, sem framleiðir veiðarfæri, reipi og tóg, er um- svifamikið á alþjóðlegum mörkuðum og með yfir 500 starfsmenn sem starfa á þrettán stöðum í fjórum heimsálfum. Starfsemi undir nafni Hampiðjunnar er rekin í Kanada, Litháen, Nýja Sjá- landi og í Seattle í Banda- ríkjunum. Hampiðjan á einnig dótturfyrirtæki í Írlandi og Danmörku og í Boston í Bandaríkjunum. Hvalur á einnig mikilla hagsmuna að gæta í upp- lýsingatæknifyrirtækinu Nýherja í gegnum eignar- haldsfyrirtækið Væntingu, sem er í eigu Hvals, og er stærsti eigandi Nýjherja. Kristján Loftsson sat áður fyrr í stjórnum Fiskifélags Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna og hann var um skeið varaformaður Viðskiptaráðs Íslands og sat í stjórn Samtaka atvinnulífsins. „Þú spyrð um hvað Obama muni gera vegna bréfs innanríkisráðuneytis USA byggt á Pelly Amendment. Það er um þetta að segja að Pelly ákvæðið er frá 1971 og hefur verið notað oft. Japan, Noregur og Ísland hafa endað á borði forseta USA oft og aftur í gegn um árin vegna hvalveiða sinna þegna. Það sem er nýtt í þetta sinn er að nú er það innan- ríkisráðuneytið, sem dregur vagninn og notar CITES (Convention on International Trade in Endangered Species), en fram að þessu hefur það verið Commerce Secretary, sem hefur sent bréfið til forsetans og notað þá IWC eða alþjóða hvalveiðiráðið. Forsetinn hefur vanalega svarað þessu þannig að ræða þurfi við viðkomandi ríki nánar um hvalveiðar. Svarið núna verður eitthvað í takt við það síðasta er Ísland átti í hlut. Flóknara er það ekki. Ekkert uppnám og mega versla við hvern sem hentar Ég kannast ekki við neitt uppnám í Kanada vegna hvalkjötssendinga okkar um Kanada. Yfirvöld í Kan- ada lýstu því yfir að okkar flutningar uppfylltu allar kröfur þeirra. High Liner Foods er frjálst að versla við hvern sem þeim hentar. HB Grandi hefur engar áhyggjur, þó þeir séu með einhverjar yfirlýsingar um fyrirtækið og við- skipti við það, sem hafa verið nær engin. Þetta „anty-everything“ lið, „anty-allt“ lið hefur stundað sjávarútvegssýningar og haft í frammi mót- mæli um allt mögulegt í áraraðir, svo þetta er ekkert nýtt. Er það frétt að skip flytji afurðir? Ef leigt er skip til að flytja afurðir frá Íslandi á er- lendan markað, að það sé nú allt í einu orðin einhver frétt, þá átta ég mig ekki á hvar þið blaðamenn margir hverjir hafið haldið ykkur. Er við stunduðum hvalveiðar fram til 1989, komu árlega eitt eða fleiri skip til Hafnarfjarðar og tóku frystar afurðir okkar til Japan. Það geta margir Hafn- firðingar er komnir eru á miðjan aldur vitnað um. Ég hélt það væri flestum ljóst að við stundum hval- veiðar og vinnum síðan aflann til að selja hann. Okkar aðal markaður er Japan, eins og margoft hefur komið fram, þannig að flutningar afurðanna til Japan, hljóta að vera inni í myndinni og ætti ekki að koma á óvart.“ Ekkert nýtt við aðgerðir þessa „anty-everything“ liðs Við vinnslu þessarar úttektar var reynt að ná tali af Kristjáni Loftssyni. Það tókst ekki og voru því sendar ítarlegar spurningar í tölvupósti um þau atriði sem fjallað er um í greininni. Skrifleg svör Kristjáns við spurningunum bárust skömmu áður en blaðið fór í prentun og eru birt í heild hér að neðan. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, stjórnar- formaður HB Granda, stjórnarmaður í Hampiðjunni og fleira. Verndarsinnar reyna í sívaxandi mæli að beina spjótum sínum að þeim fyrirtækjum og hagsmunum sem tengjast Kristjáni í baráttu sinni. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty úttekt 29 Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.