Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 30

Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 30
SÍÐUMÚLA 9 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2900 VERSLANIR OG UMBOÐSMENN UM LAND ALLT samsungsetrid.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 10-18 OG LAUGARDAGA FRÁ 12–16 NX 1000 { TIL BÆÐI SVÖRT OG HVÍT } NX 210 20.3 milljón pixlar • 20-50 mm linsa fylgir • APS-CMOS Sensor • 8 rammar á sek. • Direct Wi-Fi • I-Function linsa • Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek. • ISO 100-12800 • Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge skráarsnið • Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði • Hristivörn (DIS og OIS innbyggt) Verð: 99.900 kr SAMSUNG NX 210 20.3 milljón pixlar • 18-50 mm linsa fylgir • APS-CMOS Sensor • 8 rammar á sek. • Direct Wi-Fi • I-Function linsa • Lokarahraði frá 1/4000 upp í 30 sek. • ISO 100-12800 • Notar RAW, JPEG, EXIF, DPOF og PictBridge skráarsnið • Tekur upp 1080p (30fps) myndbönd (H.264) með hljóði • Hristivörn (DIS og OIS innbyggt) TILBOÐSVERÐ: 129.900 kr MYNDAVÉLATILBOÐ FRÁ SAMSUNG fylgir með báðum vélunum M itt markmið er að halda íslenska hænsnastofninum hreinum og dreifa honum sem víðast um land, bæði í sveitir, bæi og borg. Landnáms- hænan er hluti af arfleifð okkar,“ segir Júl- íus Már Baldursson sem rekur eitt stærsta bú með íslensku landnámshænuna á Íslandi og selur egg, unga og hænsn. „Fyrstu ungar ársins koma úr eggjunum í byrjun apríl og svo koma ungar í vikunni fyrir páska,“ segir hann. Júlíus var áður með bú á Tjörn á Vatnsnesi en eftir að hann missti nánast allan sinn stofn í eldsvoða árið 2010 hóf hann rekstur í Þykkvabæ þar sem hann býr nú. Júlíus var aðeins 18 ára þegar hann fékk sínar fyrstu landnámshænur frá dr. Stefáni Aðalsteinssyni sem upp úr 1970 fór að safna saman landnámshænsnum um allt land til að forða stofninum frá útrýmingu. „Stefán Aðal- steinsson bjargaði íslensku landnámshænunni,“ segir Júlíus. Árið 1978 fékk hann 10 hænur og tvo hana en nú telur stofninn hans 230 hænur og 35 hana, og stefnir Júlíus á að fjölga hæsnunum upp í 400. Alls er talið að íslenski land- námshænustofninn telji um tvö til þrjú þúsund hænsn. Þegar Júlíus byrjað að rækta hænurnar var fjöldafram- leiðsla á kjúklingum vaxandi og er verksmiðjuframleiddur kjúklingur og afurðir hans nú ríkjandi á markaðnum. Sá kjúk- lingur sem er mest ræktaður á stóru búunum er af ítölsku kyni og kallast „hvíti ítalinn.“ Júlíus segir landnámshænuna vera líkari villtum fugli en ræktuðum. „Hún er grönn, ekki holdafugl, og fór halloka fyrir verksmiðjufuglunum sem verpa meira en hún. Meðal- aldur landnámshænunnar er 7-8 ár en á stóru búunum verða fuglarnir aðeins um tveggja ára þannig að það er ekki hægt að líkja þessu saman. 8-12 mán- aða landnámshæna er um 1500 grömm en í búunum er verið að slátra til sölu sex vikna fuglum sem eru þá strax orðnir 1,5 til 1,8 kíló. Landnámshænan er harðgerari og algjört hörkutól, hún þorir meiri veðra- og fóðurbreytingar en ræktaði fuglinn. Hún er með mikla sjálfsbjargarviðleitni og er ein af örfáum hænsnategundum í heiminum sem ekki er búið að rækta úr móðureðlið. Hún er góð móðir, býr til hreiður, verpir og gengur um roggin með ungahópinn sinn. Það er Júlíus Már Baldurs- son hefur haldið landnámshænur í 35 ár og leggur mikið upp úr því að viðhalda þessum dýrmæta menn- ingararfi. Hann segir íslensku lands- námshænuna vera algjört hörkutól, hún hafi þó farið halloka þegar verk- smiðjuframleiðsla á kjúklingi og eggjum kom til sögunnar og um tíma var hún í útrýmingarhættu. Júlíus selur bæði unga og egg, og segir hann egg land- námshænu sem fær að ganga um frjáls séu með skærari rauðu og þykkari hvítu. LandnámsHæna í fóstur Júlíus Már Baldursson hefur í um áratug boðið fólki að taka landnáms- hænur í fóstur, fyrst á Tjörn í Vatnsnesi en nú í Þykkvabæ. Mark- miðið með fóstrinu er að styðja við ræktun ís- lenska landnámshænu- stofnsins og fá fóstur- foreldrar egg hænunnar sinnar. Að taka hænu í fóstur í tvö ár kostar 25 þúsund krónur sem dekkar fóður og uppihald, auk þess sem hænan gefur af sér um 440 egg á tveimur árum, eða um 20 egg á mánuði. Hænan fellir fiður í ágúst/september og fellur varp þá niður. Eggin er hægt að sækja í verslanir Frú Laugu eða beint í Þykkvabæ. Sjá Samning á landnamShaenan.iS. LandnámsHæna á leigu „Mjög margir sumarbústaðaeigendur hafa haft á orði við mig undanfarin misseri að þá langi til að vera með hænur á lóðinni hjá sér á meðan þeir eru í bústaðnum en vita svo ekki hvað þeir eigi að gera við fuglana þegar hausta tekur,“ segir Júl- íus Már Baldursson sem hefur komið til móts við þessar óskir og býður landnámshænur til leigu yfir sumartímann. Hann segir þetta mestmegnis miðalda og eldra fólk sem jafnvel leigur nokkrar hænur. Júlíus lætur taka út aðstæður komandi leigjenda með velferð hænsnanna í huga. Leiguverð er 1800 krónur fyrir hvern fugl á mánuði og greiðist fyrir- fram. Sumir þeirra, sem hafa aðstöðu til, festa í framhaldinu kaup á landnámshænu í varpi sem kostar 6 þúsund krónur. Sjá Samning á landnamShaenan.iS. unun að horfa á það. Flestar tegundir gera þetta ekki lengur því kynslóð eftir kynslóð er ekki leyft að unga út, eggin eru þá tekin í bakstur eða til heimilis- nota, og búrhænurnar verpa aldrei frjóum eggjum.“ Júlíus segir það algengan misskilning að hænur verpi ekki nema hani sé annars vegar. „Hænur verpa alltaf þegar þær eru orðnar kynþroska. Búrhænurnar eru bara í búrinu sínu, og fara aldrei frjálsar út á gólf, þær hitta aldrei hana og verpa ekki frjóum eggjum,“ segir Júlíus en eggin frá honum fást í verslunum Frú Laugu. Einnig er hægt að taka hænu í fóstur og þá sækja fósturforeldrar eggin þangað. „Hvítan í eggi landnámshæn- unnar er þykkri en úr hefðbundnu eggi út úr búð og rauðan minnir á mandarínu en er fölgul úr verksmiðjuframleiddum eggjum. Bragðið af eggjum úr frjálsum fuglum er líka sterkara og fyllra. Það er auðvitað markaðurinn sem kallaði eftir því að hægt væri að fá kjúkling og egg í meira magni og fyrir minni pening og því dafnar verksmiðjuframleiðslan. Við ger- um hlutina bara á annan hátt.“ Eggin frá Þykkvabæ eru því að sama skapi dýrari enda allt ræktunarferlið annað en þegar kemur að verksmiðjubúskap. Með auknum ferðamannastraumi um Suðurland hefur Júlíus fundið fyrir því að fólk vill heimsækja búið, skoða ræktunina og kaupa egg. Hann býður því upp á það gegn gjaldi sem er hugsað sem styrkur til landnáms- hænunnar. „Það er besta kynningin þegar fólk sér fuglinn með eigin augum og kynnist því hvað hann er einstakur,“ segir hann. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Tileinkaði líf sitt landnámshænunni Júlíus Már Baldursson fékk sínar fyrstu landnámshænur þegar hann var aðeins 18 ára og hefur haldið þær síðan. Hænsnahópurinn hér er mjög litskrúðugur og eru fuglar til í má segja ótal litum á bænum og koma nýjir litir fram á hverju ári. Vistvænn búskapur fuglarnir eru frjálsir ferða sinna í rúmgóðu húsi sem kappkostað er að sé alltaf þurrt og hreint. Fuglarnir fá jafnframt alltaf að fara út, allt árið um kring , svo framarlega sem veður leyfir. Þeir hafa frjálsan aðgang í fóður og vatn sem er sjálfvirkt og skammta sér því sjálfir hvorttveggja eftir þörfum. 30 viðtal Helgin 28.-30. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.