Fréttatíminn - 28.03.2014, Síða 34
Grauturinn hjá ömmu
É
Ég er svo heppinn að hafa átt frábærar
ömmur og ég er sérstaklega glaður með
að börnin mín eiga líka frábærar ömmur.
Enda eru ömmur einhver nauðsynlegasti
hluturinn í þessu nútíma samfélagi þar
sem allir vinna utan heimilisins. Reyndar
á það líka oftar en ekki við um téðar
ömmur en þær virðast alltaf geta reddað
hlutunum þrátt fyrir það.
Ég á ekkert nema góðar minningar um
ömmur mínar. Hvort sem það er þegar
önnur þeirra mundi aldrei hvað hver
okkar óknyttadrengjanna, sem vorum að
prakkarast, hét og kallaði okkur því alla
Gvend í hita leiksins, eða hitt, sem er enn
betri minning og það er grautur að malla
í stórum potti.
Ömmur sjá líka barnabörnin alltaf fyrir
sér sem börn. Fyrir sléttum 25 árum, á
sjálfan fermingardaginn minn, sagðist
amma ætla að þvo mér fyrir ferminguna
svo ég yrði nú alveg skínandi hreinn á
stóra daginn! Þessa athöfn hafði ég séð
um sjálfur eins og gefur að skilja í tals-
verðan tíma þegar þarna var komið. Ég
tók því þessari yfirlýsingu ættmóðurinn-
ar með stóískri ró og fyrirvara. En sem
ég var að dudda mér við þvottinn er hurð-
inni á baðher-
berginu
lokið
upp
og
inn kemur frúin með skrúbb og tilheyr-
andi. Ég reyndi að hylja það heilagasta
með sápubúbblum og malda í móinn en
þeirri gömlu varð ekki haggað. Nei, nú
skyldi drengurinn skrúbbaður hátt og
lágt. Sem svo var og gert. Hreinni hef ég
ekki verið. Hvorki fyrr né síðar.
Það er gaman að sjá að hlutverk ömm-
unnar hefur ekki breyst mikið milli kyn-
slóða. Börnin sækja í návist þeirra og við
foreldrarnir eigum ekki roð í þær. Enda
ekki þeirra hlutverk að ala barnabörnin
upp heldur að láta þeim líða vel. Hvort
sem það er með aðeins of miklu af ís,
sendingu af handprjónuðum ullarsokk-
um eða hárburstum sem flækjast ekki í
hársárum síðhærðum kollum. Þær sjá um
sína og láta ekkert stoppa sig í því.
En mestu skiptir þó reynslan sem þær
gefa af sér. Á spjalli við ömmur koma
enda upp alls konar sögur. Sögur af
horfnum tímum sem eru kannski ekki
svo langt í fyrndinni þegar hugsað er út í
það. En tímarnir hafa bara breyst svo ört
hér á Fróni þessi síðastliðnu ár að það er
ótrúlegt. Enn ótrúlegra er að ömmurnar
og afarnir líka, gleymum þeim ekki, hafa
lifað þessar breytingar. Það er svo mikil-
vægt að fá þessari reynslu miðlað áfram
svo komandi kynslóðir haldi ekki að
maturinn komi úr vél og fötin sömuleiðis.
Að taka slátur með ömmu var upplifun.
Blóðug upp að öxlum tróð hún hvern
keppinn á fætur öðrum svo unun var á að
horfa. Þetta var manneskja sem upplifði
það að Ísland var hertekið fyrir 74 árum.
Að heyra sögurnar frá fyrstu hendi af
því þegar herinn kom, var líka upplifun
en amma var 10 ára þegar herinn mætti
á svæðið. Hún mundi vel tilfinningarnar,
hræðsluna og seinna gleðina yfir því að
þetta voru þó réttu mennirnir.
En mestu munar um hvað ömmur
eru góðar í að elda mat. Gamaldags
íslenskan mat. Einfaldur réttur eins
og grjónagrautur varð einhvern-
veginn allt annar í meðförum
þeirra. Jafnvel með smá
lifrapylsustúf.
Sama hvað ég
reyni, og ég hef
reynt mikið, þá
bara get ég ekki
gert grjónagraut jafn
góðan og þessar góðu
konur fóru létt með. Ég
hef prófað að elda hann á ótal
mismunandi vegu. Hef meira segja
bakað hann! Þegar ég bar þessi
vandræði mín upp við ömmu eitt
sinn sagði hún að til að gera góðan
graut þurfi að setja smá af sálinni
út í pottinn. Hún fór svo sem ekk-
ert nánar út í hvernig í ósköpunum
maður fer að því en ég
er nokkuð viss um að
uppskriftin af því er
ekki í matreiðslubók
Helgu Sigurðar. Ég hef
leitað.
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
RV
0214
Tilboð
Verð frá 2.588 kr.
Úti- og innimottur á tilboði
– úrval af frábærum mottum í mörgum gerðum og stærðum
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
NÝLEGIR OG
LÍTIÐ EKNIR
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
KIA SPORTAGE EX III
Nýskr. 02/13, ekinn 28 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.490 þús.
Rnr. 141977.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 05/12, ekinn 35 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 4.790.000
Rnr. 151602.
TOYOTA YARiS SOL
Nýskr. 01/12, ekinn 75 þús km.
dísil,sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr. 142026.
KIA PICANTO EX
Nýskr. 11/12, ekinn 18 þús. km.
bensín, sjalfskiptur.
VERÐ kr. 2.220 þús.
Rnr. 281513.
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/11, ekinn 82 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.990 þús.
Rnr. 281074.
VW TOURAN
Nýskr. 09/12, ekinn 8 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.690 þús.
Rnr. 281536.
Tilboðsverð
4.350 þús.
Ekinn aðeins
35 þús. km.
TILBOÐSBÍLL
RENAULT MEGANE SPORT T.
Nýskr. 05/13, ekinn 29 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.390.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
Rnr. 141914 Rnr. 281226
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
34 viðhorf Helgin 28.-30. mars 2014