Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 36
36 fjölskyldan Helgin 28.-30. mars 2014
Vellaunaður og lukkulegur gröfustjóri eða óhamingusamur og atvinnulaus mannfræðingur?
H vort vilt þú frekar að sonur þinn verði vellaunaður og lukkulegur gröfu-stjóri eða óhamingusamur og atvinnulaus mannfræðingur?“ Ég leyfði mér að varpa þessari spurningu fram á fjölmennum kvennafundi um
skólamál og einhverjar dugmiklar mæður supu hveljur. Það voru trúlega þær
sem ætla að koma börnunum sínum í gegum framhaldsskólanám hvað sem
tautar og raular því að gamla ímyndin um stúdentsmyndirnar í röðum á stofu-
skenknum eða arinhillunni hjá ömmu lifir enn góðu lífi.
Gamla goðsögnin er sprellifandi; goðsögnin um stúdentsprófið sem aðgöngu-
miða að háskólanámi og þar með að öruggu millistéttarlífi og jafnvel aðgengi
að hástétt síðustu aldar þegar læknar, lögfræðingar, prestar og meira að
segja skólastjórar voru valdakarlarnir í samfélaginu. Hvíti kollurinn sem
við trúum enn að grundvalli góð laun og framtíðaröryggi fjölskyldunnar.
Blessaður bókalærdómurinn og menntaskólanámið og háskólanámið
sem síðasta öld skammtaði best í askana. Hillingarnar eru slíkar að
menntaskólanámsefni síðustu aldar sem upphaflega var ætlað fámennum
bóknámshópum, á núna að keyra fyrir alla unglinga landsins. Þá skiptir
engu hvort nafn skólans er dulbúið sem fjölbrautarskóli eða tækniskóli.
Ungmenni sem velja sér félagsfræðibraut skulu klára 4-5 íslenskuáfanga
og velja sér þriðja tungumálið til viðbótar ensku og dönsku. Þau skulu
ljúka stærðfræðiáföngum þar sem mengi, veldi og rætur, annars stigs
fleygbogar og svo föll og margliður eru meðal námsþátta. Stærðfræði-
áfangar 102 og 122 eru skylda fyrir nema í háriðn og íslensku áfangar
með bókmenntahugtökum blómsta í námi húsamíðanema. Ég legg ekki
meira á ykkur.
Allir skulu læra öll fög
Sama ástandið er í hinum 10 ára grunnskóla sem er þegnskylda fyrir
lítil 6 ára börn og allt upp í sextán ára unglinga. Þar skulu allir læra öll
fög og námskráin gefur enn engin grið með það. Mínútur á viku í hverri
grein eru skilgreindar fyrir hvert aldursstig fyrir sig. Sama magn af
stærðfræði, dönsku og íþróttum skal vera óháð áhuga og getu barna og að auki
kennt inni í einu rými þar sem getustig 24 nemenda er breiðara en orð fá lýst
bæði námslega og félagslega. Skóli án aðgreiningar hljómar fallega en hver
er veruleikinn í heimi þar sem streita samfélagsins birtist í hegðun og líðan
allflestra ungmennanna okkar og börn með mikla náms-, félags- og tilfinn-
ingasérstöðu fá ekki að finna styrkinn sinn, heldur gjalda fyrir veikleikana á
hverjum skóladegi. Afneitun og feluleikur með sérþarfir barna í stað hrein-
skiptni og viðurkenningar á fjölbreytni.
Samúð mín liggur hjá öllum þeim börnum og unglingum sem við reynum
að þrýsta í mót sem hentar þeim ekki og eru síðan kölluð „brottfall“ þegar þau
velja sér önnur verkefni en bóknám. Samúð mín er líka hjá þeim sem mótið er
sniðið fyrir því að þau fá ekki að njóta hæfileika sinna ótrufluð. Samúð mín er
líka hjá illa launuðum kennurum sem eru með það óvinnandi verkefni að kenna
og þjálfa viðfangsefni sem hluti hópsins ræður ekki við, hvað sem allar nám-
skrár segja og fá svo skömm í hattinn fyrir skort á árangri. Samúð mín er hjá
foreldrum sem trúa enn að þeir verði að berja á grunnskólunum fyrir að kenna
ekki nóg og þrýsta svo ungmennunum sínum gegnum stúdentsprófið. Samúð
mín er hjá yfirvöldum skólamála sem sitja uppi með skólakerfi sem betur þjón-
ar fortíð kennaranna heldur en framtíð barnanna sjálfra sem flest hver eigi eftir
að vinna störf sem við vitum ekki einu sinni hvað heita – hvað þá meira.
Viltu vinna með barninu þínu?
Við breytum ekki heiminum á einum degi en við getum byrjað. Foreldrar verða
að svara upphafsspurningu þessa pistils, þ.e. vil ég vinna með barninu mínu að
því að finna hvar hæfileikar þess liggja og samþykkja að hvíti kollurinn sé ekki
væntanlegur í myndasafn ömmu. Skólafólk verður að svara hversu langt það
vill ganga til að fjölga valkostum. Skólayfirvöld verða að svara hvernig styðja
má við nýsköpun í skólamálum, gefa undanþágur frá ofstýringu námskrár og
samþykkja ólíka skóla. Alls konar skóla, alls konar námsleiðir og alls konar
verkefni. Það er nefnilega best að breyta kerfum með aðferðum Che Guevara í
frelsisstríði Kúbu; að ráðast ekki að öllu valdakerfinu á einum stað með öllum
mannaflanum heldur með litlum hópum sem allra víðast og með sem allra
mestri fjölbreytni.
Samúð mín liggur hjá öllum þeim börnum og ungling-
um sem við reynum að þrýsta í mót sem hentar þeim
ekki og eru síðan kölluð „brottfall“ þegar þau velja sér
önnur verkefni en bóknám.
Goðsögnin um stúdentsprófið lifir
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
Heimur barna
Hallgrímskirkja er eitt
helsta kennileiti Reykja-
víkur. Hún stendur 75
metra há og glæsileg á
Skólavorðuholtinu og
dregur að sér athygli
jafnt Reykvíkinga sem
ferðamanna. Það eru
þó aðallega ferðamenn
sem heimsækja þessa
hávöxnu kirkju á meðan
Reykvíkingar fara þang-
að aðallega til að sækja
kristilega viðburði. En
Hallgrímskirkja býður
upp á fjölskylduskemmt-
un sem oft vill fara fram
hjá heimamönnum,
þrátt fyrir að vera sýni-
leg úr öllum áttum. Það
er nefninlega varla til
það barn sem ekki hefur
gaman að því að upplifa
eina lengstu lyftuferð
Íslands og enda svo
efst uppi í turni þaðan
sem sést til allra átta.
Að horfa til fjalla og út
á sjó og sjá öll marglitu
þökin. Nýtt sjónarhorn
í hversdagsleikanum
hlýtur bara að vera
holl og góð fjölskyldu-
skemmtun. -hh
Nýtt sjónarhorn
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 19.03.14- 25.03.14
1 2
Sannleikurinn um mál
Harrys Quebert
Joel Dicker
Hljóðin í nóttinni
Björg Guðrún Gísladóttir
5 6
7 8
109
43
Iceland Small World - lítil
Sigurgeir Sigurjónsson
5:2 Mataræðið
Michael Mosley / Mimi Spencer
Marco áhrifin
Jussi Adler Olsen
HHhH
Laurent Binet
Konungsmorðið
Hanne-Vibeke Holst
Skrifað í stjörnurnar
John Green
Verjandi Jakobs
William Landay
Kroppurinn er kraftaverk
Sigrún Daníelsdóttir