Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 38

Fréttatíminn - 28.03.2014, Side 38
38 bílar Helgin 28.-30. mars 2014  ReynsluakstuR Volkswagen Passat ComfoRtline Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535 www.peugeot.is PEUGEOT 308 Þú finnur okkur á facebook.com/PeugeotIceland LAUGARDAG MILLI KL. 11:00 OG 16:00 Frumsýnum bíl ársins PEUGEOT PEUGEOT 308 kostar frá kr. 3.360.000 Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri frá 3,6L/100km CO2 útblástur frá 93g V olkswagen Passat er kannski ekki alveg fyrsti bíllinn sem manni dettur í hug til að fara yfir Hellisheiði í blindhríð og hálku – en það gerði ég nú samt. Fjölskyldan var á leið í sveitina og ég hafði fengið Passatinn yfir helgi í reynsluakstur – og ákvað því að fara á honum í ferðalag. Á heiðinni var glerhálka og blind­ hríð. Ég ók framhjá allnokkrum bílum sem höfðu hafnað utanveg­ ar, til að mynda tveimur jeppum. Ég flýtti mér hins vegar hægt og keyrði varlega. Ég fann varla fyrir því að bíllinn skrikaði í hálkunni enda nýtist stöðugleikastýringin til hins ítrasta í aðstæðum sem þessum. Ég var samt fegin þegar ég kom niður af heiðinni og veg­ irnir voru aftur auðir. Rennifæri var austur undir Eyjafjöll og gat ég því notið akstursins það sem eftir var leiðarinnar. Ég stillti hraðastillinn rétt yfir leyfilegan hámarkshraða, setti tónlistina í botn (börnin völdu Ásgeir Trausta sem ég spilaði úr símanum mínum í gegnum blá­ tannar­tengingu sem er staðal­ búnaður í Passat) og við sungum með. Í útgáfunni sem ég reynslu­ ók er ný öflug bensínvél sem er mjög skemmtileg, kraftmikil en hljóðlát. Veghljóð var einnig með minnsta móti og truflaði því lítið. Passatinn er rúmgóður að innan og fer vel um ökumann og farþega á langkeyrslu. Fram­ sætin má stilla á alla mögulega og ómögulega vegu og hækkaði ég sætið í hæstu stöðu og sá þá virkilega vel út (það skiptir máli fyrir lágvaxið fólk eins og mig). Sætin styðja vel við mann og eru þægileg. Bílaumboðið Hekla hefur ákveðið að blátannar­ tenging skuli staðalbúnaður í Passat og fjarlægð­ arskynjarar í staðinn fyrir bakk­ myndavél, sem var áður, og er það í samræmi við óskir viðskiptavina, að sögn sölumanna. Fjarlægðarskynj­ arar að framan og aftan nýtast mjög vel til að mynda þegar leggja þarf í þröng stæði eða bakka. Mælaborðið er fallegt og stílhreint og allir takkar í seilingarfjarlægð. Nauðsynlegir takkar eru í stýri og er stýrikerfið fyrir símann í mæla­ borðinu (ekki tölvuskjánum eins og í mörgum bílum) sem er mjög þægi­ legt. Stór og góð geymsluhólf eru á milli framsæta og í hurðum og skottið er rúmgott og tekur mikið. Við vor­ um með farangur í helgarferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu og mat­ arinnkaup fyrir sjö manns (sex inn­ kaupapoka) og rúmaðist það allt vel í skottinu (þeir sem vildu meira skott­ pláss geta auðveldlega valið station­ útgáfuna). Tölvuskjárinn er aðgengilegur og hljóðkerfið gott. Það vakti athygli mína (litlu atriðin skipta máli) að þegar ég hafði stillt hljóðið þannig að eingöngu heyrðist í hátölurunum í aftursæti (Bessi Bjarnason var að lesa sögur fyrir börnin) hringdi sím­ inn og sjálfkrafa skiptist yfir í hátal­ arann mín megin þegar ég svaraði með innbyggða handfrjálsa búnað­ inum. Þegar ég lagði á, hélt Bessi Bjarnason áfram að lesa – en bara í aftursætinu. Annað sem ég var ánægð með – beltainnstungurnar í aftursætinu fóru ekki undir bílstólana og því gátu börnin spennt sig sjálf. Það er allt of algengt í bílum að ekki sé hugsað fyrir þessu (takk Volkswagen). Svo má ég ekki gleyma að nefna að það er ekki bara hiti í sessum í framsæti – líka í bakinu – ótrúlega notalegt. Bíllinn er öruggur – eins og Volkswagen er von og vísa – og sparneytinn (eyddi rúmum 6 lítrum á 100 km á langkeyrslunni minni en á að geta farið niður í 5,3 lítra í kjöraðstæðum). Hann er búinn orkusparnaðsbúnaði sem gerir það að verkum að hann drepur á sér í kyrrstöðu, t.d. á ljósum (mengar þá einnig minna) og startast sjálfkrafa þegar fóturinn er tekinn af bremsunni. Og ég verð að minn­ ast á þægindin við sjálfvirku handbremsuna. Þetta er bíll sem ég gæti vel hugsað mér að eiga. Hann er rúmgóður og rennilegur og þægilegur í akstri jafnt innanbæjar sem á vegum úti. Börnin voru sammála: „Mamma – af hverju getum við ekki keypt þennan bíl?“ Tja... af hverju ekki? Gott pláss fyrir barnastóla Góðir aksturseiginleikar Rúmgóður Hljóðlátur Sparneytinn Kraftmikill Gott hljóðkerfi Ríkulegur staðalbúnaður (blá- tönn og fjarlægðar skynjarar) Fallegur Sjálfvirk handbremsa Frekar dýr Helstu upplýsingar Verð frá 4.390.000 kr Eldsneytisnotkun frá 4,3 l/100 km í blönduðum akstri CO2 í útblæstri frá 114 g/km Í blönduðum akstri Lengd: 4769 mm Breidd: 1820 mm Fantagóður og fallegur fjölskyldubíll Volkswagen Passat er frábær fjölskyldubíll. Hann er þægilegur í langkeyrslu sem og í innanbæjarskutli, fallegur og rúmgóður. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Volkswagen Passat er glæsilegur að innan sem utan. Rauði liturinn á þessu tiltekna eintaki þótti mér einstaklega grípandi. Ljósmyndir/Hari

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.