Fréttatíminn - 28.03.2014, Qupperneq 40
40 matur & vín Helgin 28.-30. mars 2014
vín vikunnar
Frábært Merlot-vín með helgarsteikinni
Kalifornía er þekktasta vínfylki Bandaríkjanna en Washingtonfylki hefur vaxið ásmegin. Þar
spilar Columbia-dalurinn lykilhlutverk. Hann er á sömu breiddargráðu og
Bordeaux og Búrgúndí-héruð Frakklands þar sem frægustu vín
veraldar eru framleidd. Aðstæður í Columbia-dalnum eru allar
hinar ákjósanlegustu til vínrækt-
ar enda eru flestar tegundir
hinna hefðbundnu vínþrúgna
ræktaðar þar.
Merlot-vínþrúgan hefur oft
fengið á baukinn fyrir að vera
flöt og óáhugaverð en það er mikill
misskilningur. Hún er mikið notuð til að blanda vín, eins og í Bor-
deaux, en þegar vel tekst til stendur hún fyllilega fyrir sínu ein og sér.
Þetta vín frá Columbia Crest Grand Estates er dæmi um frábært Merlot-vín. Það
er þroskað, eikað og með mjúkri fyllingu. Fullkomið með hvaða kjötmeti sem er.
Columbia Crest Grand Estates Merlot
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Merlot.
Uppruni: Bandaríkin, 2009.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum: 2.999 kr. (750 ml)
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Uppskrift vikunnar
Kraftmikið osso buco til að kveðja veturinn
Nú fer vonandi að hylla undir
vorið hér á landi en þó gætum
við þurft að bíða enn um sinn
eftir góðu veðri, alla vega ef
marka má þessa viku á höfuð-
borgarsvæðinu. Á meðan enn
telst vetur er um að gera að
njóta þess að elda og borða
kröftuga vetrarmáltíð um
helgina.
Afar viðeigandi er að kveðja
veturinn með osso buco
sem getur mallað í ofninum
á meðan þú sinnir öðrum
störfum.
fyrir 6
10 sneiðar osso buco
4 gulrætur
2 laukar
1 sellerístöng
3 hvítlauksrif
1 glas hvítvín
1 msk saxað, ferskt rósmarín eða
tímían (eftir smekk)
3 dósir tómatar
Salt og pipar
Kjötsneiðunum er velt upp úr
hveiti og þær brúnaðar á pönnu
í stórum potti sem má fara í
ofn. Grænmetið er léttsteikt
í pönnunni og hvítvíninu og
tómötunum bætt út í þar til
suðan kemur upp. Þá er kjötið
sett aftur út í sósuna, saltað
og piprað að smekk. Eldað í
ofni undir lokið við 150 gráður
í 4 klst.
Borið fram með kartöflumús,
risotto eða polenta ásamt
gremolata
Gremolata
6 msk flöt steinselja, söxuð
3 msk sítrónusafi
6 hvítlauksgeirar
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Mikið úrval - Vönduð vinna
legsteinar og fylgihlutir
10-50% afsláttur
Steinsmiðjan Mosaik
TILBOÐSDAGAR
Prófaðu
þennan krydd-
aða Delicato
Shiraz með
réttinum,
þetta gæti
verið
skemmtileg
blanda.
Bæði er
hægt
að nota
kálfakjöt
eða
ungnau-
taskanka í
osso buco.
Rétturinn fær
að malla í ofni í um fjórar klukkustundir.
Osso Buco er
borið fram
með risotto
eða polentu
ásamt gremo-
lata.
Ljósmyndir/
NordicPhotos/Getty
Zorzal Gran
Terroir Malbec
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Malbec.
Uppruni: Argentína,
2010.
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 2.999 kr.
(750 ml)
Umsögn: Þetta
argentínska vín með
nafnið svakalega er
tiltölulega mikið og
jafnvel flókið, með
smá kryddi og eik en
töluverðu tanníni.
Best með fitumiklu
kjöti, helst grilluðu.
Alamos Cabernet
Sauvignon
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Cabernet
Sauvignon.
Uppruni: Argentína,
2012.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúð-
unum: 2.199 kr.
(750 ml)
Umsögn: Þó Malbec
sé helsta þrúga Arg-
entínumanna gera
þeir líka ágætis vín
úr öðrum þrúgum.
Þetta vín sver sig í
ætt með kröftugum
Cabernet Sauvignon-
vínum, þurrt en ekki
með yfirgnæfandi
tanníni. Gott með
kjötbollum og vetrar
pottréttum.
Montalto Organic
Nero d'Avola
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Nero d'Avola.
Uppruni: Ítalía,
2012.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.850 kr.
(750 ml)
Umsögn: Lífrænt
ræktað rauðvín frá
Sikiley. Þetta er létt-
asta vínið í hópnum,
ferskt og ungt. Það
passar vel með mat
af léttari gerðinni;
fuglakjöti, svínakjöti
og pasta.
Fréttatíminn mælir með
Síðumúla 30 - 108 Reykjavík - Sími 533 3500
Hofsbót 4 - 600 Akureyri- Sími 462 3504
FERMINGAR
TILBOÐ
FERMINGARRÚM
Verð frá: 92.900.-
Thermofit heilsukoddi að andvirði kr. 14.900.-
fylgir hverju seldu rúmi.
Höfðagafl fylgir ekki