Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 45

Fréttatíminn - 28.03.2014, Blaðsíða 45
heilsa 45Helgin 28.-30. mars 2014 Ragnheiður Garðarsdóttir hefur starfað sem leikskólakennari í 19 ár. Hún vinnur mikið á gólfinu og þarf þar af leiðandi sífellt að vera að setjast og standa upp aftur. Ragnheiður er greind með slitgigt og hefur fundið fyrir verkjum í hægri mjöðminni um árabil. "Haustið 2012 var ég í berjamó og varð svo slæm á eftir að ég þurfti að fá sprautur og sterk verkjalyf fyrir mjöðmina. Ég skánaði við það en var alltaf með seyðing og verki. Suma daga var ég þokkaleg en aðrir voru hreint helvíti á jörð. Næturnar hafa líka í gegnum árin verið mér erfiðar. Ég var með eilífan seyðing í mjöðminni og niður í tá og gat ómögulega legið á hægri hliðinni. Ég sá best hversu slæmt ástandið var á því hvað göngulagið mitt var orðið skelfilegt í myndbandi frá Flórídaferð fjölskyldunnar haustið 2011." Öðlaðist nýtt líf "Ég hef notað NUTRILENK GOLD síðan í september 2012 með frábærum árangri, og þá meina ég árangri. Í byrjun tók ég 6 töflur á dag í 2 mánuði en í dag tek ég 3 töflur á dag. Ég hef stundað æfingar í Meta- bolic af fullum krafti síðan vorið 2013 og tek þá aðeins meira af NUTRILENK GOLD. Núna sef ég allar nætur og get beygt mig án sársauka. Ég átti mjög erfitt með að klæða mig í sokka og skó á morgnana og þurfti að fá aðstoð. Það er allt annað í dag, ég get bókstaflega allt! Ég er meira að segja farin að fara í kraftgöngur á ný. Ykkur finnst þetta kannski vera ýkt saga … en hún er sönn. Ég öðlaðist nýtt líf með NUTRILENK GOLD." Nutrilenk er fáanlegt í estum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna Skráðu þig á facebook síðuna Nutrilenk fyrir liðina - því getur fylgt heppni! Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is P R E N T U N .IS NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina Verkirnir hreint helvíti á jörð Hvað getur Nutrilenk gert fyrir þig? Heilbrigður liður Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó- tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið og beinin Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika. Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki. Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og slitnum liðum. NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf - upplifið breytinguna! Liður með slitnum brjóskvef Ragnheiður Garðar sdóttir leikskólakennari – Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 82 47 0 3/ 14 www.lyfja.is Fyrir þig í Lyfju Læg a verð í LyfjuAntiac Activ Nýtt á Íslandi! Burt með bólurnar á náttúrulegan hátt. 20% afsláttur – kynningarverð Gildir út mars Flúor Regluleg notkun flúors er best þekkta vörnin gegn tannskemmd- um. Flúor herðir glerunginn og „gerir við" byrjandi tannskemmd- ir á snertiflötum tanna og virkar þannig staðbundið. Tannburstun með flúortann- kremi að styrkleika 1000-1500 ppm F, tvisvar sinnum á dag, viðheldur lágmarksflúorstyrk í munnholi og er því afar áhrifa- mikill þáttur í daglegri vörn gegn tannskemmdum. Þar sem tannskemmdir hjá ís- lenskum börnum og unglingum eru algengar er einnig mælt með reglulegri flúorskolun tanna með 0,2% NaF munnskoli, frá 6 ára aldri. Hjá yngri börnum er mælt með aukatannburstun eftir hádegismat. Mataræði Tíð og mikil neysla á drykkjum með lágt sýrustig, aðallega gos-, íþrótta-, orku- og ávaxta- drykkjum, er talin helsta orsök glerungseyðingar. Það sem veldur glerungseyðingu eru fosfórsýra, sem er t.d. að finna í kóladrykkj- um, og sítrónusýra, sem er t.d. í ávaxtasafa, appelsíni og sumum vatnsdrykkjum. Um er að ræða mjög kröftugar sýrur sem fletta glerungnum af tönnunum þannig að ysta lag glerungsins þynnist og eyðist. Aldrei ætti að gefa barni hreinan ávaxtasafa eða aðra sæta drykki í pela, hvorki á nóttu né degi, því að sykur skemmir tenn- urnar og sítrónusýra eyðir tann- glerungi. Í kjölfar tanntöku er æskilegt að draga úr næturgjöf- um, sérstaklega hjá börnum sem nærast á þurrmjólk með pela og gefa þeim í staðinn vatn að drekka á nóttunni. Reglulegt tanneftirlit Þekking okkar á orsakaþáttum tannsjúkdóma er alltaf að aukast og vel upplýst getum við haldið tönnum okkar hreinum og heilum ævina á enda. Hér áður fyrr var farið til tannlæknis þegar bora þurfti skemmd úr tönn. Í dag vilj- um við að gripið sé inn í áður en tönnin skemmist, eða meðan sá möguleiki er raunhæfur að stöðva vöxt byrjandi tannskemmdar. Það er nauðsynlegt að mæta reglulega í tanneftirlit og fyrsta heimsókn barns til tannlæknis á að vera ánægjuleg upplifun. Mælt er með skráningu barns hjá heimilistannlækni í Réttindagátt á www.sjukra.is við eins árs aldur. Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir - Embætti landlæknis, landlaeknir.is Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir starfar hjá embætti landlæknis. Flúorstyrkur Ráðlagður flúorstyrkur í tann- kremi og magn flúortannkrems samsvarar: • ¼ af nöglinni á litlafingri barns, yngri en 3 ára (1000 ppm F) • nöglinni á litlafingri barns 3-5 ára (1000 ppm F) • 1 cm fyrir 6 ára börn og eldri (1350 1500 ppm F) Leiðbeiningar um flúorskolun • 6-9 ára: 5ml af 0,2% NaF munn- skoli, einu sinni í viku. • 10-16 ára: 10 ml af 0,2% NaF munn- skoli, einu sinni í viku. Munnskolinu er velt um munninn í eina mínútu og síðan spýtt. Bestur árangur næst ef hvorki er borðað né drukkið í 1-2 klst eftir skolun og því ráðlagt að skola með flúor áður en farið er að sofa. Börn yngri en 10 ára þurfa aðstoð foreldra við flúorskolun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.