Fréttatíminn - 28.03.2014, Síða 54
Baileys-terta
sími: 588 8998
rósaterta með
Frönsku hindBerja-smjörkremi
kökur og kruðerí
að hætti jóa Fel
Gulrótarterta
Broskallar
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Óli G.
Jóhannsson
– In Memoriam –
13. mars - 5. apríl 2014
F ólk má eiga von á allsherjar samsýn-ingu allra listforma.
Þarna verða um 25 verk
sýnd í öllum krókum og
kimum og verkin eru eins
ólík og þau eru mörg,“
segir Harpa Fönn Sigur-
jónsdóttir, einn aðstand-
enda listahópsins Vinnsl-
unnar. Hópurinn stýrir
opnunarhátíð Tjarnarbíós
sem verður á laugardags-
kvöld klukkan 19.
Guðmundur Ingi Þor-
valdsson leikari var ný-
lega ráðinn framkvæmda-
stjóri Tjarnarbíós. Stefna
og starfsemi Tjarnarbíós
hefur í kjölfarið verið
skoðuð ofan í kjölinn og
ýmsar breytingar hafa
verið settar í gang. Stefnu-
breytingunni verður
fagnað á opnunarhá-
tíðinni annað kvöld. Hið
nýja Tjarnarbíó verður
ekki bara lítið leikhús við
Tjörnina, heldur lifandi
vettvangur sköpunar og
miðstöð allra listforma,
þar sem listir eru iðkaðar í
TímamóT OpnunarháTíð Tjarnarbíós á laugardag
Brjóta niður
landamæri listgreina
Tjarnarbíó breytist í miðstöð allra lista í borginni og verður stefnubreytingunni fagnað með
opnunarhátíð á laugardagskvöld. Listahópurinn Vinnslan stýrir opnunarhátíðinni og má finna
verk í hverjum krók og kima hússins.
Um fimmtíu manns taka þátt í opnunarhátíð Tjarnarbíós á laugardagskvöld. Hluti hópsins var á fullu í undirbúningi þegar ljós-
myndari Fréttatímans leit við í vikunni. Ljósmynd/Hari
hverju rými hússins.
„Leiklistin hefur verið
mest áberandi í Tjarnar-
bíói en við tökum því fagn-
andi að opna fyrir fleiri
listform,“ segir Harpa
Fönn. „Við ætlum að brjóta
niður landamæri listgreina
og gera þetta líflegra. Við
viljum breyta Tjarnarbíói
í miðstöð lista í Reykjavík.
Við erum ótrúlega þakklát
að fá að stýra opnunarhá-
tíðinni og vonumst til að
eiga frekara samstarf við
fólkið í húsinu.“
Listahópurinn Vinnslan
er samansettur af lista-
mönnum úr mismunandi
greinum, sem leggja
áherslu á að skapa og
setja upp verk sem ganga
þvert á listform. Nokkr-
um sinnum á ári heldur
hópurinn samsýningu
og býður þá fleiri lista-
mönnum að setja upp verk
sín í vinnslu fyrir framan
áhorfendur. Hópur-
inn hefur sett upp sex
vinnslur, og opnunarhátíð
Tjarnarbíós verður þeirra
sjöunda.
Meðal þess sem gestir
á opnunarhátíðinni mega
eiga von á er nýtt verk
VaVaVoom theatre í
samstarfi við Bedroom
Community, Vinnslan
sýnir stuttmyndina sína
ROF, Ásdís Sif Gunnars-
dóttir vídeólistamaður
frumflytur efni af glæ-
nýrri ljóðaplötu sinni,
Steinunn Ketilsdóttir
sýnir dansverk og Pétur
Ben flytur nýtt efni.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
54 menning Helgin 28.-30. mars 2014