SSFblaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 14
14
„Þar sem útibúin eru heldur fleiri á hvern íbúa á íslandi en að
meðaltali í evrópusambandinu mætti ætla að Þau væru heldur
smærri. Þegar litið er til stærðar útibúa er m.a. unnt að horfa á tvenns
konar mælikvarða. Annars vegar fjölda starfsmanna á hvert útibú og hins
vegar heildareignir á hvert útibú. Íslensk útibú virðast vera lítillega yfir
meðalstærð ef horft er til starfsmannafjölda á hvert útibú, þvert á það
sem ætla mætti miðað við fjölda íbúa á hvert útibú og smæð og dreifbýli
Íslands“ segir í skýrslunni. Að meðaltali voru um 27 starfsmenn á
hvert útibú á Íslandi en að meðaltali í Evrópusambandinu voru 20
starfsmenn á hvert útibú í lok árs 2010.
Þótt fjöldi starfsmanna á hvert útibú sé heldur meiri á Íslandi
virðist fjöldinn þó vera svipaður og í nágrannalöndum okkar, þ.e.
Danmörku og Svíþjóð. Hins vegar er fjöldi viðskiptavina á hvert
útibú í Svíþjóð og Danmörku meiri en á Íslandi og því eðlilegt að
útibúin séu stærri. Að mati skýrsluhöfunda er talið að líkleg skýring
á þessu sé sú að starfsmannafjöldi höfuðstöðva sé meiri í hlutfalli
við útibú á Íslandi en annarsstaðar í Evrópu vegna smæðar íslenskra
innlánsstofnana. „Kostnaður við stoðkerfi í bankarekstri eykst sjaldnast
línulega með stærð. Vægi stoðkerfa hefur aukist verulega á síðustu árum.
Samkvæmt rannsóknum fræðimanna er það ein helsta ástæða þess að
stærðarhagkvæmni í bankarekstri hefur aukist jafn mikið og raun
ber vitni. Kostnaður við rekstur tölvu– og upplýsingakerfa eykst lítið
með stærð, en mikill stofnkostnaður fylgir oftast fjárfestingu í þeim.“
Þá er regluverk þyngra og eftirlit með bönkum meira en áður.
Vaxtaumhverfi bankanna skiptir einnig miklu máli, hár vaxtamunur
og hátt vaxtastig geta skýlt óhagkvæmum rekstrareiningum.
meðAlstArfsmAnnAfjöldi fjármálAfyrirtækjA árið 2012
Í febrúar 2008 voru 5.500 manns starfandi í bönkum og sparisjóðum
á Íslandi en að meðaltali störfuðu 4360 manns í bönkum og
sparisjóðum árið 2012.
yfirlit yfir stArfsmAnnAfjöldA stArfsfólks
fjármálAfyrirtækjA.
Viðskiptabankar
Arion banki hf. 927
Íslandsbanki hf. 1.119
Landsbankinn hf. 1.283
MP banki hf. 97
Samtals: 3.426
Sparisjóðir:
AFL sparisjóður 41
Sparisjóður Bolungarvíkur 10
Sparisjóður Höfðhverfinga 9
Sparisjóður Norðfjarðar 8
Sparisjóður Strandamanna 5
Sparisjóður Suður-Þingeyinga 11
Sparisjóður Svarfdæla 9
Sparisjóður Vestmannaeyja 30
Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis 10
Samtals: 133
Reiknistofa bankanna hf. 166
Fjármögnunarfyrirtæki
Borgun hf. 93
Byggðastofnun 21
Íbúðalánasjóður 98
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. 3
Lýsing hf. 46
Straumur fjárfestingabanki hf. 33
Valitor hf. 154
Samtals: 448
Verðbréfafyrirtæki:
ALM Fjármálaráðgjöf hf. 4
Arev verðbréfafyrirtæki hf. 5
Arctica Finance hf. 18
Auður Capital hf. 30
Centra Fyrirtækjaráðgjöf hf. 5
H.F. Verðbréf hf. 9
Íslensk verðbréf hf. 21
Jöklar- Verðbréf hf. 2
T-Plús hf. 7
Virðing hf. 18
Samtals: 119
Aðrir 68
Meðalfjöldi starfsmanna fjármálafyrirtækja árið 2012: 4.360
Heimild: Skýrsla Fjármálaeftirlitsins um fjármálafyrirtæki.
Heildarniðurstöður ársreikninga 2012. Útgefið 2013.
STARFSMENN Í FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU