Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Blaðsíða 3

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Blaðsíða 3
S VEITARSTJ ORNARMAL 23. ÁRGANGUR 5.—6. HEFTI TÍMARIT UM MÁLEFNI ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFELAGA RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: JONAS GUÐMUNDSSON Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavik. LAUNASKRÁ starfsmanna sveitarfélaga. í skýrslu stjórnar sambandsins til lands- þings, sem birtist í seinasta hefti tímarits- ins, er kafli um launakjör sveitarstjórnar- manna. Er þar fjallað almennt um fram- vindu þessara mála, um launakjör oddvita og sveitarstjóra, setningu laga um kjara- samninga opinberra starfsmanna og þau nýju viðhorf, sem skapazt höfðu með því að starfsmönnum sveitarfélaga var veittur full- ur samningsréttur. Á landsþinginu var síðan gerð ályktun um kjaramál, þar sem talið var nauðsyn- legt, „að sem mest samvinna náist milli sveitarfélaga um nýskipan kjaramála, þann- ig, að eins mikið samræmi fáist milli ein- stakra sveitarfélaga og aðstæður leyfa. Kaus þingið 7 manna milliþinganefnd til að fjalla um slíkt samstarf. Var því beint til hennar: 1. að reyna að samræma kjarasamninga kaupstaðanna. 2. að setja reglur til leiðbeiningar nm þóknun fyrir störf í sveitarstjórn. 3. að setja reglur um kjör sveitarstjóra. 4. gera lillögur tim þóknun fyrir störf oddvita. Taldi þingið eðlilegt, að höfð yrði hlið- sjón af niðurstöðum kjaradóms um kaup ríkisstarfsmanna við gerð kjarasamninga kaupstaðanna. Lann bœjarstarfsmanna. Reykjavíkurborg reið á vaðið með samn- ingaumleitanir við starfsmenn sína, og fljót- lega eftir að Jieirri samningagerð var lokið, kom launamálanefndin saman í Reykjavík. Nefndin hélt fundi nokkra daga í röð og lagði síðan tillögur sínar fyrir fund, sem haldinn var 26. október s. 1. með fulltrúum frá öllum kaupstöðunum nema þremur. Fjallaði fundurinn um tillögur nefndar- innar tim röðun bæjarstarfsmanna í launa- flokka, og lýsti sig í meginatriðum sam- þykkan hugmyndum nefndarinnar. Stjórn sambandsins samþykkti síðan á fundi að senda tillögurnar til bæjarstjórna, sem ábendingu, er þær gætu haft hliðsjón

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.