Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Blaðsíða 28
26
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
KosiS í tryágingaráS.
í almannatryggingalögunum er kveðið
svo á, að kosning í tryggingaráð skuli fara
fram á fyrsta þingi eftir hverjar almennar
alþingiskosningar. Kosning fór fram í sanr-
einuðu Alþingi 11. desember s. 1., og er
tryggingaráð nú þannig skipað:
Aðalmenn:
Asgeir Bjarnason, alþingismaður, Ásgarði.
Bjarni Bjarnason, fv. skólastj., Laugarvatni.
Gunnar f. Möller, framkvstjóri, Reykjavík.
Kjartan J. Jóhannsson, héraðslæknir, Kópa-
vogi.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, rithöfundur,
Reykjavík.
Varamenn: '
Jón Arnþórsson, fulltrúi, Kópavogi.
Daníel Ágústínusson, fyrrv. bæjarstjóri,
Akranesi.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingis-
maður, Reykjavík.
Ágúst Bjarnason, skrifstofustj., Reykjavík.
Björgvin Guðmundsson, viðskiptafræðing-
ur, Reykjavík.
Ásgeir Bjarnason, alþingismaður, hefur
ekki áður átt sæti í tryggingaráði. Tekur
hann sæti Brynjólfs Bjarnasonar, fv. ráð-
herra, sem hverfur nú úr ráðinu eftir langa
setu þar.
Ráðherra hefur endurskipað Vilhjálm S.
Vilhjálmsson formann og Gunnar J. Möller
varaformann ráðsins.
Sjúkrasamlög og laga-
breytin^ar 1/1 1964.
í bréfi til sjúkrasamlaga, dags. 10. desem-
ber s. 1., benti Tryggingastofnunin á nokk-
ur atriði í lögum nr. 40 1963 um almanna-
tryggingar, sem öðluðust gildi 1. janúar
1964, og gerði jafnframt nokkra grein fyr-
ir framkvæmd þeirra. Birtist hér sá kafli
bréfsins, þar sem um þetta er fjallað.
a) Sjúkrahúsvist.
Sjúkrasamlög greiða framvegis fyrstu 30
daga sjúkrahúsvistar á hverjum 12 mánuð-
uðum, en héraðssamlög greiða sjúkrahús-
vist að öðru leyti.
Þegar lögin taka gildi 1. janúar n.k., er
talið, að greiðsluskylda héraðssamlaga hefj-
ist og geti þá sjúkrasamlög krafið héraðs-
samlög um greiðslu frá þeim tíma, hafi
sjúklingur legið á sjúkrahúsi meira en 30
daga á liðnum 12 mánuðum.
Hjá Tryggingastofnun ríkisins verður
l'ramvegis sama fyrirkomulag og verið hefur
á fyrirgreiðslu vegna reikninga á sjúkrasam-
lög. Sjúkrahúsreikningar verða skuldfærðir
á sjúkrasamlög, en gert ráð fyrir, að sanrlög-
in krefji síðan héraðssamlögin um þann
hluta sjúkrahúskostnaðar, er þau eiga að
greiða.
Ábyrgðir fyrir sjúkrahúsvist gefa samlög
út eins og áður.
b) Röntgenskoðanir.
Frá 1. janúar greiða sjúkrasamlög J4 hluta
kostnaðar rönlgenskoðana í stað y2 eins og
áður var.
c) Sjúkradagpeningar.
Mikil breyting verður á greiðslu sjúkra-