Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Blaðsíða 11
SVEITARST JORNARMAL
9
Zóphónias Pálsson, skipnlagsstjóri rikisins, flytur erincli silt á landspingi.
til Suðvesturlandsins, væri ráðlegt að efla
sérstaklega fáeina útvalda bæi, t. d. einn í
hverjum landsfjórðungi, svo þeir gætu með
fjölskrúðugu atvinnu- og menningarlífi,
laðað að sér verulegan liluta af þeirri æsku,
sem annars hyggði á flutning til Suðvestur-
landsins.
Að sjálfsögðu verður að fara að öllu slíku
með gát, en ég tel, að þær ítarlegu rann-
sóknir, sem gerðar voru í sambandi við
þriggja ára framkvæmdaáætlun ríkisstjórn-
arinnar fyrir árin 1963—66, gæti orðið raun-
hæfur grundvöllur nýrrar jákvæðrar stefnu
í skipulagningu bæja, sem miðaði að því
takmarki, að vinnuafl, atvinnutæki og fiski-
mið nýtist sem bezt fyrir þjóðarheildina.
Einhverjum kann nú að finnast ég vera
tekinn að fjarlægjast skipulagsmálin, en
sannleikurinn er sá, að margar þjóðir liafa
tekið upp þann liátt, að gera áætlanir til
ákveðins árafjölda, um byggingu í hinum
ýmsu bæjum, jafnframt því að gerð er
heildaráætlun um notkun alls landsins. Eru
það svo sem vænta mátti landþrengstu
þjóðirnar s. s. Danmörk og Holland, sem
hér hafa riðið á vaðið. Þrátt fyrir víðáttu
íslands tel ég nauðsynlegt fyrir okkur að
fylgjast vel með í þessu efni. í þessu sam-
bandi vil ég benda þingfulltrúum á mjög
athyglisverða tillögu til þingsályktunar um
heildarskipulag Suðurlandsundirlendis, sem
Unnar Stefánsson flutti á alþingi árið 1960
og greinargerð þá, er tillögunni fylgdi.
Með vaxandi velmegun, aukinni bílvæð-
ingu og lengingu sumarfría vex þörf bæjar-
búa fyrir sumarbústaði. Þessi þörf er eðli-
leg og sjálfsagt fyrir sveitarstjórnir lað
stuðla að byggingu skynsamlegra sumarbú-
staðahverfa eftir föngum, en ég tel fráleitt,
að láta það viðgangast lengur, að hvaða
bóndi eða annar aðili sem er, geti selt eða
leigt hverjum sem er, lóð þar sem honum
sýnist og að viðkomandi geti síðan byggt
hús eftir eigin höfði, eða sett upp bragga,