Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Síða 12
10
SVEITARST J ÓRNARMÁL
aflóga strætisvagn eða gamalt stýrishús af
bát, sem við öll þekkjum sorgleg dæmi um.
Ég hygg því, að þegar byggingarlöggjöf-
in, sem er frá 1905, verður endurskoðuð,
sem nauðsynlega þarf að gera sem fyrst,
verði hún að ná tif landsins alls, svo sem
hin nýja byggingarlöggjöí Dana t. d. gerir.
l>á vil ég aðeins víkja örfáum orðum að
skipulagslögunum og frumvarpi því sem
sent var öllum sveitarstjórnum til umsagn-
ar á síðast liðnu ári.
Núgildandi lög, frá 1921, vorti sett að
mestu fyrir tilstilli Guðmundar lieitins
Hannessonar prófessors, og sniðin eftir
norskri fyrirmynd. Lög þessi hafa því gilt
með litlum breytingum í 42 ár. Ný frum-
vörp, sem ætlað var að leysa lög þessi af
hólmi, hafa komið fram nokkrum sinnum,
en jafnan dagað uppi. Það frumvarp, sem
nú liggur fyrir og sem þið liafið væntan-
lega allir kynnt ykkur, er ,að ýmsu leyti
frábrugðið núverandi lögum og fyrri frum-
vörpum. Ein helzta breytingin er, að það
gerir ráð fyrir, að hin sérstöku skipulags-
umdæmi, sem eru hin sömu og núverandi
kjördæmi, geti, með samþykki ráðherra,
komið á fót skipulagsnefnd, er ráði sér
tæknilega aðstoð. Skiptdagsnefnd þessari er
síðan ætlað að sjá um gerð og endurskoðun
skipulagsuppdrátta innan umdæmisins, sem
þó verða eftir sem áður háðir samþykki
skipulagsnefndar ríkisins, sem í frumvarp-
inu er lagt til að kallist skipulagsstjórn.
Ymis önnur merk nýmæli eru í frumvarp-
inu og eru þau öll rakin í mjög ítarlegri
greinargerð, er frumvarpinu fylgir, og sé ég
því ekki ástæðu til að orðlengja meira um
þau að sinni, en tel mjög æskilegt að þetta
þing ræði frumvarpið, eftir því sem að-
stæður leyfa, því að hér er vissulega um
Jtýðingarmikið mál að ræða, sem snertir
meira eða minna hag og lieill allra hinna
Forsíðumyndin.
Aðild Islendinga að alþjóðlegu sam-
starfi hefur farið ört vaxandi á sein-
ustu árum og alþjóðahyggja ryður sér
til rúms. Sérstaklega hefur norræn
samvinna átt vinsældum að fagna.
Vinabæjarkerfið, sem komið liefur ver-
ið á fyrir tilstuðlun norrænu félag-
anna, sem starfandi eru á öllum Norð-
urlöndunum, tengir saman fólkið í
fjarlægum sveitarfélögum og stuðlar
að þátttöku almennings í samvinnu
milli ríkja. Eitt af ytri táknum Jressar-
ar norrænu samvinnu hér á landi eru
jólatrén, sem nokkrir kaupstaðir og
kauptún fá að gjöf frá vinabæjum sin-
um á hinum Norðurlöndunum.
Reykjavíkurborg fær árlega jólatré
að gjöf frá Óslóborg, Hafnarfjörður
fær jólatré frá Frederiksberg í Dan-
mörku, Keflavík frá Kristiansand í
Noregi, Akranes frá Tönner, Siglu-
fjörður frá Herning, Akureyri frá
Randers, Isafjörður frá Roskilde,
Hveragerði frá Brande. Fleiri sveitar-
félög kunna að hafa fengið jólatré
að gjöf enda þótt okkur sé ekki um
Jsað kunnugt.
Forsíðumyndin á að minna á þenn-
an þátt í samstarfi sveitarstjórnanna.
Hún er tekin Jregar Hafsteinn Bald-
vinsson bæjarstjóri í Hafnarfirði veit-
ir jólatré kaupstaðarins viðtöku
skipulagsskyldu sveitarfélaga á landinu og
ríður því á miklu, að lögin verði Jtannig
úr garði gerð, að þau nái sem bezt Jteim
tilgangi sínum að verða lyftistöng fyrir
skipulagsstarfið í framtíðinni.