Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Side 19
TRYGGINGAMAL
----- RITSTJÓRI: GUÐJÓN HANSEN -
Löé um liæltltiiii. á bótum
almannatry^m^a.
í desembermánuði síðastliðnum sam-
þykkti Alþingi sem lög frumvarp rikisstjórn-
arinnar urn 15% hækkun á bótum almanna-
trygginga, öðrum en fjölskyldubótum, og
greiðist hækkun þessi frá 1. júlí 1963.
Lögin ásamt greinargerð þeirri, sem
frumvarpinu fylgdi, fara hér á eftir. Á fylgi-
skjali um útgjaldaaukninguna er sýnt,
hvernig fjárhagsáætlun sú, fyrir árið 1964,
sem birtist í síðasta hefti, breytist vegna sam-
þykktar laga þessara. Þess má enn fremur
geta, að hækkun sú, sem varð á daggjöldum
sjúkrahúsa 1. janúar s. 1. og greint er frá á
öðrum stað í þessu hefti, er talin munu
hækka iðgjöld og framlög til sjúkratrygg-
inga um 33,1 millj. kr. til viðbótar.
Lög um hœkkun á bótum almanna-
trygginganna.
1. gr.
Bætur samkv. lögum nr. 24/1956 um al-
mannatryggingar, sbr. lög nr. 13/1960, urn
breyting á þeim lögum, lög nr. 86/1960, um
bráðabirgðabreyting sömu laga, lög nr.
95/1961, um hækkun á bótum almanna-
trygginganna og lög nr. 89/1962, um bráða-
birgðabreyting á lögum nr. 24/1956, um al-
mannatryggingar, að undanteknum fjöl-
skyldubótum, skulu, eftir því sem við getur
átt, hækka um 15% frá 1. júlí 1963.
Frá 1. janúar 1964 skulu bætur, sam-
kvæmt lögum nr. 40 30. apríl 1963, um al-
mannatryggingar, að undanteknum fjöl-
skyldubótum, samkvæmt 15. gr. laganna,
hækka um 15%.
2. gr.
Tryggingastolnun ríkisins skal greiða
hækkun þá á bótum á árinu 1963, sem um
ræðir í 1. mgr. til hvers bótaþega í einu
lagi fyrir árslok 1963.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir:
Um 1. gr.
Svo sem kunnugt er liafa orðið almennar
launahækkanir í landinu á yfirstandandi
ári. Almenn verkalaun hækkuðu um 5% frá
23. jan. s. 1. og aftur um 7.5% frá 23. júní
s. 1., eða launahækkun samtals 12.875% frá
23. júní s. 1. Það verður ekki hjá því kom-
izt að hækka bætur almannatrygginganna
til samræmis við almennar launahækkanir
svo sem ætíð hefur tíðkazt þegar þær hafa
orðið. Lagt er til í 1. gr., að bæturnar verði
hækkaðar um 15% frá 1. júlí s. 1., en það
lætur nærri að bótaþegar fái þá hlutfalls-
lega sömu hækkun á árinu eins og almennir