Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Page 20

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Page 20
18 SVEITARST JÓRNARMÁL launþegar hljóta. í greininni eru fjölskyldu- bætur undanteknar þessari hækkun. Segja má, að fjölskyldubætur hafi lík áhrif og persónufrádráttur, sem veittur er vegna barna við álagningu tekjuskatts og útsvars. í því sambandi má benda á það, að í Dan- mörku og Svíþjóð er enginn persónufrá- dráttur veittur vegna barna, en í þess stað eru veittar jafnháar fjölskyldubætur með öllum börnum og eru ekki lagðir skattar á þær. Ákvæðin um persónufrádrátt eru nú í athugun hjá ríkisstjórninni. Með hliðsjón af því þykir ekki rétt að hækka upphæð fjölskyldubóta að svo stöddu, því síður sem gera má ráð fyrir að persónufrádráttur verði hækkaður allverulega. Nýju lögin um almannatryggingar, nr. 40/1963, koma ekki til framkvæmda fyrr en um n. k. áramót. Verður því að miða hækk- un bótanna á þessu ári við ákvæði þau, sem nú gilda, eins og gert er í fyrri málsgrein. Síðari málsgrein fjallar um liækkun bót- anna frá áramótum og er þá miðað við lög nr. 40/1963, sem korna í gildi 1. janúar 1964. El' um frekari launahækkanir verður að ræða, verður að sjálfsögðu að endurskoða hækkun bótanna, þegar þær launahækkanir liggja fyrir. Um kostnað vegna þeirra hækkana bóta, sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir, vísast til fylgiskjals, sem fylgir frumvárpinu. Um 2.-3. gr. Þarfnast ekki skýringa. Fylgiskjal. Áætluð útgjaldaaukning almannatrygg- inga á tímabilinu 1/7 1963 til 31./12 1964, miðað við 15% hækkun bóta, annarra en fjölskyldubóta. A. Lifeyristryggingar. millj. kr. 1. Ellilífeyrir ..................... 58.8 2. Örorkidífeyrir og örorkustyrkur 15.5 3. Aðrar bætur ...................... 14.7 4. Tillag til varasjóðs ............. 1.8 Samtals 90.8 Af ofangreindum útgjöldum mundu 27.8 rnillj. kr. vera vegna ársins 1963, en 63.0 millj. kr. vegna ársins 1964. Útgjaldaaukning skiptist þannig á aðila: millj. kr. Ríkisjóður .................... 32.7 Hinir tryggðu.................. 29.1 Sveitarsjóðir ................. 16.3 Atvinnurekendur ............... 12.7 Samtals 90.8 B. Slysatryggmgar. Áætla má aukningu ársútgjalda slysa- trygginga 3.5 millj. kr. Þegar undan er skil- in iðgjaldahækkun vegna hækkunar dánar- bóta lögskráðra sjómanna árið 1959, hafa iðgjaldabreytingar ekki átt sér stað síðan í árslok 1957. Um þessar mundir er unnið að endurskoðun iðgjalda, og verður niður- staða liennar án efa veruleg iðgjaldahækk- un. Hefur 15% hækkun bóta í för með sér a. m. k. 15% hækkun iðgjalda umfram það, sem ella hefði orðið. C. Sjúkratryggingar. Miðað við 15% liækkun sjúkradagpen- inga, má áætla útgjaldaaukningu sjúkra- samlaga árið 1964 2.3 millj. kr., er skiptast þannig á aðila: millj. kr. Ríkissjóður....................... 1.0 Hinir tryggðu..................... 0.9 Sveitarsjóðir .................... 0.4 Samtals 2.3

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.