Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Blaðsíða 25
SVEITARSTJÓRNARMÁL
23
útgjöldin nema á hvern íbúa, á hvern íbúa
á starfsaldri og í hlutfalli við þjóðartekjur.
Þá er í þessum kafla tafla um sjóðmyndun í
sambandi við félagsmálalöggjöfina, en slík
sjóðmyndun er nær einskorðuð við trygg-
ingarnar.
I þriðja kafla er gerð grein fyrir almenn-
um launatekjum í hverju landi fyrir sig,
sköttum af þeim tekjum og fjölskyldubót-
um.
í fjórða kafla er með töflum og skýring-
um greint frá, hvað gert er fyrir það fé,
sem til félagsmála rennur samkvæmt því,
sem í öðrum kafla segir. Þarna er sundur-
liðun á útgjöldum sjúkratrygginga ásamt
upplýsingum urn fjölda sjúkrarúma, lækna,
hjúkrunarkvenna, ljósmæðra og tannlækna.
Fjöldi elli-, örorku- og ekkjulífeyrisþega er
tilgreindur ásamt bótafjárhæðum. Gerð er
grein fyrir mæðra- og ungbarnavemd,
barnaheimilum og heimilishjálp, og margt
fleira mætti nefna.
II.
í töflu 1 eru teknar saman nokkrar þeirra
upplýsinga, sem birtar eru í öðrum kafla
skýrslunnar.
Við samanburð á félagsmálaútgjöldum
landanna fimrn er rétt að gera sér grein
fyrir ])ví, að engin óhagganleg mörk eru
milli félagsmála og annarra málaflokka og
lengi má um það deila, hvar skilja beri á
milli. Það skiptir því höfuðmáli, að ekki sé
talið með í einu land það, sem ótalið er í
(iðru, en eitt meginverkefni nefndarinnar er
Tafla 2. Atvinnutekjur og skattar almenns launþega 1960.
1. Árslekjur: Danmörk Finnland ísland Noregur Svíþjóð
Millj. d. kr. Millj. f. mk. Millj. ísl. kr. Millj. n. kr. Millj. s. kr.
Atvinnutekjur 15.800 5.963 77.570 16.292 15.750
Atvinnut. að viðbættum fjöl- skyldbótum með 2 börnum . . 16.120 6.251 81.470 16.652 16.650
2. Beinir skatlar:
Beinir skattar (að viðb. trygg- ingargj.) af árstekjum samkv. 1. lið: Ókvæntur maður 3.500 1.269 12.947 4.154 4.391
Kvæntur maður, barnlaus .... 3.300 1.042 11.010 3.539 3.267
Kvæntur maður með 2 börn . . 2.590 815 10.048 2.262 3.267
3. Til ráðstöfunar:
Árstekjur að frádregnum bein- um sköttum samkv. 2. lið: Ókvæntur maður 12.300 4.694 64.623 12.138 11.359
Kvæntur maður, barnlaus .... 12.500 4.921 66.560 12.753 12.483
Kvæntur maður með 2 börn . . 13.530 5.436 71.422 14.390 13.383