Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Page 35
MENNINGARMÁL
og aðstoöa við gerð náttúrusýn-
inga.
Enn frekar er kveðið á um hlut-
verk náttúrustofa í reglugerðum um
viðkomandi stofur. I reglugerð um
skipulag og starfsemi Náttúrustofu
Norðurlands vestra á Sauðárkróki
nr. 96 ffá árinu 1998 er tekið ffam
að hlutverk Náttúrustofu Norður-
lands vestra á Sauðárkróki sé:
a. að stunda vísindalegar rann-
sóknir á náttúru Norðurlands
vestra.
b. að safna gögnum og varðveita
heimildir um náttúrufar og
stuðla að almennum náttúru-
rannsóknum og skal einkum lögð
áhersla á Norðurland vestra og
sérstöðu náttúrufars á þeim slóð-
um.
c. að stuðla að œskilegri landnýt-
ingu, náttúruvernd og frœðslu
um umhverfismál bœði fýrir al-
menning, fýrirtæki og í skólum á
Norðurlandi vestra. Skal í þessu
sambandi hafa náið samstarf við
starfsmenn annarra stofnana
sem vinna að sömu málum.
d. að veita frœðslu um náttúrufrœði
og aðstoða við gerð náttúrusýn-
inga á Norðurlandi vestra.
e. að veita sveitarfélögum á Norð-
urlandi vestra umbeðna aðstoð
og ráðgjöf á verksviði stofunnar,
m.a. vegna verndar og nýtingar
náttúrulegra auðlinda, skipu-
lagsmála og mats á umhverfis-
áhrifum framkvœmda, enda komi
greiðsla Jýrir.
Svipaðar reglugerðir eru til um
aðrar náttúrustofur í landinu.
En hvaða þýðingu hefur tilkoma
Náttúrustofu Norðurlands vestra
fyrir sveitarfélögin á Norðurlandi
vestra? Eru einhver not fyrir slíka
stofu eða er þetta óþörf pappírs-
stofnun? Þessari spumingu er best
að svara út frá reglugerðinni um
starfsemi Náttúrustofu Norðurlands
vestra.
a. að stunda vísindalegar rann-
sóknir á náttúru Norðurlands
vestra.
í þessum lið er kveðið á um rann-
sóknarhlutverk stofunnar, sem er án
efa mikilvægasta hlutverk hennar.
Augljóst er að mikil þörf er á ýms-
um grunnrannsóknum hér á landi og
hafa minni verk oft setið á hakanum
vegna stærri verka og einfaldlega
vegna fjárskorts. Með tilkomu stof-
unnar kemur aukið fé til rannsókna
inn í fjórðunginn bæði í formi
Náttúrustofa Norðurlands vestra hefur
látið útbúa auðkenni fyrir stofuna. Það
var hannað af Hjördísi G. Bergsdóttur
(Doslu) listamanni. Merkið er samsett úr
nokkrum atriðum sem eru einkennandi í
náttúru Skagafjarðar. Efri hluti merkisins
er útlínur Tindastóls séð frá Sauðárkróki.
Miðhluti þess er útsýni frá Sauðárkróki í
norður til Málmeyjar. Þar undir er lárétt
stuðlaberg, sem er til dæmis einkenn-
andi fyrir strandsvæðið við Hofsós og á
að vera táknrænt fyrir hinn lífvana heim
náttúruvísindanna, þ.e. jarðvísindi. I
merkinu eru einnig fuglar og fífur sem
eru táknrænar fyrir lífheim náttúruvísind-
anna, bæði dýraríkið og jurtarfkið. Til
hægri á myndinni teygir sig hönd niður
undir stuðlabergið og á hún að tákna
hönd móður náttúru.
beinna styrkja ffá riki og sveitarfé-
lögunum og í formi rannsókna-
styrkja sem starfsmenn stofunnar
sækja sér í innienda og erlenda
sjóði. Mikilvægt er fyrir sveitarfé-
lög að gera sér grein fyrir að kröfiir
samfélagsins eru að aukast hvað
varðar vitneskju á okkar nánasta
umhverfi. Því er mikilvægt fyrir þau
að geta haft einhver áhrif á hvaða
náttúrurannsóknir verði stundaðar
og ekki síður að fá yfirlit yfir hvaða
rannsóknir hafa verið stundaðar í
viðkomandi landsfjórðungi.
Lögð verður mikil áhersla á að
kynna starfsemi Náttúrustofu Norð-
urlands vestra erlendis og að hefja
samstarf við erlenda vísindamenn.
Stefnt er að því að geta boðið jafnt
erlendum sem innlendum vísinda-
mönnum og stúdentum aðstöðu til
rannsókna á stofunni.
Flestir sem stundað hafa fram-
haldsnám í náttúruffæðum jafnt sem
öðrum fræðigreinum sækjast eftir
störfum þar sem þeir geta fengið
tækifæri til að sinna rannsóknum á
sínu fagsviði. Rannsóknarhlutverk
náttúrustofa hefur því mikið aðdrátt-
arafl fyrir hæfa vísindamenn og
þannig getur náttúrustofan lokkað
vel menntaða náttúrufræðinga til
búsem á Norðurlandi vestra og ann-
ars staðar þar sem náttúrustofur
starfa. Vel menntað og hæft fólk er
einnig undirstaða þess að náttúru-
stofur geti þjónað fræðslu- og ráð-
gjafarhlutverki sínu almennilega.
b. að safna gögnum og varðveita
heimildir um náttúrufar og
stuðla að almennum náttúru-
rannsóknum og skal einkum lögð
áhersla á Norðurland vestra og
sérstöðu náttúrufars á þeim slóð-
um.
í þessum lið er kveðið á um söfh-
un og varðveislu gagna um náttúm
Norðurlands vestra. Stefnt er að því
að safna saman upplýsingum um
náttúmfar á Norðurlandi vestra og
reyndar landsins alls og byggja upp
öflugt bókasafn þar sem fólk getur
leitað sér upplýsinga um náttúmfar,
náttúmvemd og aðra þætti í nánasta
umhverfi þess. Mikilvægt er að gera
öllum kleift að nálgast þessar upp-
lýsingar á sem aðgengilegastan hátt
og stefnt er að því að hafa þessar
upplýsingar aðgengilegar á Netinu í
nánusm ffamtíð.
I þessum lið reglugerðarinnar er
kveðið á um að náttúmstofan skuli
stuðla að almennum náttúrurann-
sóknum í fjórðungnum. Með til-
komu Náttúrustofu Norðurlands
vestra á Sauðárkróki skapast hvetj-
andi gmndvöllur fyrir slíkar rann-
289