Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 4
Efnisyfirlit
Bls.
Skoðanaskipti ................................................ 4
Forystugrein - Þórður Skúlason ............................... 5
Þjóðarsátt um efnisnám ....................................... 6
Hvað á sveitarfélagið að heita? ........................... 8
Víða valið um ný nöfn í kosningunum ....................... 9
Vel heppnuð sameining er mikilvæg byggðaaðgerð .............. 10
Sveitarfélagið Skagafjörður, Vesturbyggð, Borgafjarðarsveit 12
Fjarðabyggð, Snæfellsbær, Sveitarfélagið Árborg .......... 13
Dalabyggð ................................................ 14
Sameining felld í Fellahreppi ............................... 14
Snæfellsbær: Fiskur, ferðaþjónusta og umtalsverð fjölgun ... 16
Þjóðgarðurinn býður ýmsa möguleika ....................... 18
Umhverfisátak frá haustdöguml 998 ........................ 19
Tilkoma framhaldsskóla nauðsyn ........................... 20
Slysavarnaskólinn á Gufuskálum ........................... 21
i Breyting á lögum um húsnæðismál ............................. 22
Einn listi án kvenna ........................................ 24
Sveitarstjórnarmönnum fækkaði um 99 24
Kópavogshöfn alþjóðleg flutningahöfn ........................ 25
Kjörgengi í nefndir sveitarfélaga ......................... 26'
Mikil umræða um úrskurði Óbyggðanefndar...................... 27
Breytingar á barnaverndarlögum .............................. 28
Landshlutasamtök sveitarfélaganna ........................... 29
Hvers konar sveitarfélag er hagstæðast? - Ritdómur ........ 30
Skoðana-
skipti
Með breytingu á tímaritinu Sveitarstjórn-
armálum var meðal annars að því stefnt
að þar færu fram skoðanaskipi milli sveit-
arstjórnarmanna og annarra um þau fjöl-
mörgu málefni sem til umfjöllunar eru á
vettvangi sveitarfélaganna. Slík skoðana-
skipti gætu til dæmis verið með þeim
hætti að einhver fjallaði um tiltekið mál
og bæði síðan annan að láta í Ijósi álit sitt
á því sjónarmiði sem hann setti fram.
Jafnframt er hægt að nota tímaritið til þess
að bera fram spurningar um álitamál sem
óskað er svara við frá tilgreindum eða
ótilgreindum einstaklingum eða starfs-
mönnum sambandsins. Ætlunin er að
gera tímaritið meira lifandi og áhugaverð-
ara meðal annars með umfjöllun um
álitamál sem ofarlega eru á baugi og um
geta verið skiptar skoðanir.
Það markmið að efla skoðanaskipti í
tímaritinu næst því aðeins að einstakling-
ar verði við því kalli að skrifa í blaðið og
koma með þeim hætti á framfæri skoðun-
um sínum og hugðarefnum. í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninganna nú í vor hefur
glögglega komið í Ijós að uppi eru ýmis
álitamál í sveitarstjórnarmálum sem fólk
hefur þörf fyrir að koma á framfæri og um
eru skiptar skoðanir.
Eina sérritið um
sveitarstjórnarmál
Þótt tímaritið Sveitarstjórnarmál geti
aldrei orðið vettvangur fyrir þrætur um
staðbundin málefni í einstökum sveitar-
félögum er ekkert eðlilegra en að þar sé
fjallað um ólík sjónarmið á vettvangi
sveitarfélaga almennt, svo sem samskipti
ríkis og sveitarfélaga og hlutverk og fram-
tíð sveitarstjórnarstigsins, enda er það
eina sérritið um sveitarstjórnarmál sem
gefið er út í landinu. Lesendur tímaritsins
Sveitarstjórnarmála eru ítrekað hvattirtil
þess að nýta sér tímaritið til slíkra skoð-
anaskipta.
4