Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 5
Forystugrein
Starfsumhverfi sveitarstjórnarmanna
í mörgum sveitarfélögum gaf fjöldi
einstaklinga kost á sér til setu á fram-
boðslistum í nýafstöðnum sveitar-
stjórnarkosningum og prófkjör fóru
fram til uppröðunar á lista. Víðar en
áður heyrðist þó undan því kvartað að
erfitt væri að fá fólk til að taka sæti á
framboðslistum. Það leiðir hugann að
starfsumhverfi sveitarstjórnarmanna.
Fleiri og margbrotnari verkefni og
auknar skyldur hafa verið lagðar á
herðar sveitarfélaganna á undanförn-
um árum og í raun er þeim fátt óvið-
komandi. Sífellt er nánar kveðið á um
útfærslu þessara verkefna í lögum og
reglugerðum og frelsi sveitarstjórna er
skert með ýmsum hætti. Meðferð
sveitarstjórnarmála er vandasöm í
Ijósi stjórnsýslu- og upplýsingalaga og
krefst fjölþættrar þekkingar sem þarf
að viðhalda. Störf í sveitarstjórnum
verða því sífellt tímafrekari og flókn-
ari, samhliða því að svigrúm til at-
hafna hefur þrengst, m.a. vegna
skuldasöfnunar ýmissa sveitarfélaga
sökum þess efnahagslega umhverfis
sem þeim hefur verið búið.
í ýmsum sveitarfélögum hefur nán-
ast verið litið á störf í sveitarstjórnum
og nefndum sveitarfélaga sem sjálf-
boðastörf og þau launuð í samræmi
við það viðhorf. Sveitarstjórnirnar
taka sjálfar ákvarðanir um þóknun
fyrir störf sveitarstjórnarmanna og
nefndarfulltrúa og veigra sér við að
laga þóknunina að umfangi starfsins
og almennu launa- og kjaraumhverfi.
Þær sveitarstjórnir sem það hafa gert
hafa jafnvel verið vændar um óeðli-
lega sjálftöku. Tímafrek sveitarstjórn-
arstörf eru í langflestum tilvikum
aukastörf unnin samhliða annarri
vinnu og því langt f frá fjölskylduvæn,
auk þess sem þeim fylgir áreiti og
tíðum vanþakklæti.
Þrátt fyrir mikið álag og fórn frí-
stunda eru sveitarstjórnarstörfin afar
gefandi og áhugaverð. Þau eru gríðar-
lega fjölbreytt, leiða til náinna sam-
skipta við fjölda fólks og þar gefst
tækifæri til þess að hafa áhrif á sitt
nánasta umhverfi, þróun þess og
framtíð. Störf í sveitarstjórnum ættu
að vera eftirsótt og freistandi áskorun
fyrir alla þá sem vilja láta til sín taka
og gott af sér leiða og víst er að þau
eru lærdómsríkur skóli í mörgu tilliti.
Sveitarstjórnarstarfið þarf að gera
aðlaðandi með bættum kjörum og
starfsumhverfi, þannig að á hverjum
tíma sé áhugavert fyrir hæfa og vel
menntaða einstaklinga að taka þátt í
þeim störfum. Það er fyrst og fremst
hlutverk sveitarstjórnarmannanna
sjálfra að hafa forystu þar um, ekki
endilega vegna þeirra sem nú verða
valdir til þeirra starfa, heldur miklu
frekar til framtíðar litið.
Sveitarfélögin gegna gríðarlega
þýðingarmiklu hlutverki í samfélaginu
og annast nú flesta mikilvægustu
þætti samfélagsþjónustunnar við fólk-
ið í landinu. Sveitarstjórnarstigið þarf
á öflugu fólki að halda til að standa
vörð um og efla stöðu þess og takast
á við þau fjölþættu verkefni sem því
eru falin.
Þórður Skúlason
framkvæmdastjóri
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
Útgefandi: Samband íslenskra sveitarfélaga Auglýsingar: P. J. Markaðs- og auglýsingaþjónusta
Háaleitisbraut 11-13 108 Reykjavík. Símar: 566 8262 & 861 8262
Sími: 515 4900 • Bréfasími: 515 4903 Netfang: pallj@islandia.is
Netfang: samband@samband.is ■ Veffang: www.samband.is Umbrot og prentun:
Ritstjórar: Magnús Karel Hannesson (ábm.) Alprent, Glerárgötu 24, 600 Akureyri, s. 462 2844.
magnus@samband.is Dreifing: Islandspóstur
bragi V. Bergmann
bragi@fremri.is Forsíðumyndin: Frá Rangárbökkum. Mynd: Áskell Þórisson.
Ritstjórn: Fremri kynningarþjónusta
Furuvöllum 13 600 Akureyri Tímaritið Sveitarstjórmál kemur út mánaðarlega, að undanskildum
Sími 461 3666 ■ Bréfasími: 461 3667 júlí- og ágústmánuði, í 3.500 eintökum.
Netfang: fremri@fremri.is Áskriftarsíminn er 461 3666.