Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 6

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 6
Efnisnám Þjóðarsátt um efnisnám Samkomulag-um leikreglur varðandi efnistöku vegna framkvæmda og um frágang námusvæða kynnt með vönduðu kynningarriti. Lengi var takmarkaða samstöðu að finna um hvernig standa bæri að efnisnámi hér á landi. Efni var tekið eftir þörfum hvar sem það var að finna og oft lítið hirt um frágang efnisnáma þegar efnistöku var lok- ið. Víða mátti sjá og má enn augum líta gamlar og jafnvel nýlegar efnisnámur eins og sár í landinu. Oft hafa námur verið notaðar af mönnum til þess að losa sig við ónýt tæki og annað rusl. Á síðari árum hefur orðið ákveðin hugarfarsbreyting um hvernig standa skuli að efnistöku og frá- gangi námusvæða þegar notkun þeirra hefur verið hætt. Nýlega kynnti vinnuhópur um námur, efnistöku og frágang námusvæða sam- komulag um leikreglur þar að lútandi og einnig ítarlegt og vandað kynningarrit, „Námur - efnistaka og frágangur", sem unnið hefur verið um málið. Að sögn Gunnars Bjarnasonar hjá Vegagerðinni, eins af aðstandendum kynningarritsins, var miðað að því að miðla margvíslegum upplýsingum og fróðleik er varðar frágang þeirra staða þar sem efnistaka hefur farið fram. Kynningarritið er því kjörið til upp- sláttar fyrir sveitarstjórnarmenn og aðra er um slík mál þurfa að annast. Grasrótarstarf og kynning Frumkvæði að þessu verkefni áttu starfs- menn Náttúruverndar ríkisins ogVega- gerðarinnar en fljótlega kom starfsfólk frá Landsvirkjun og umhverfisráðuneytinu að málinu. Auk framangreindra eiga embætti veiðimálstjóra, Hafrannsóknastofnun, iðn- aðarráðuneytið, Landgræðsla ríkisins, Sigl- ingamálastofnun íslands, Veiðimálastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga aðild að þessu samkomulagi og útgáfu kynning- arefnis. Að sögn Ragnheiðar Ólafsdóttur, um- hverfisstjóra hjá Landsvirkjun, sem átti sæti í starfshópnum, tók vinna hópsins og gerð kynningarritsins um eitt ár. Hún segir í ritinu kemur fram að liðlega 3.000 námur eru skráðar hjá Vegagerðinni og að þar af eru um 1.250 þeirra ófrágengnar auk nokkurs fjölda náma sem er frágenginn að hluta en verki er ekki lokið. að þar hafi verið um ákveðið grasrótarstarf að ræða. Höfundar ritsins hafi kynnst af eigin raun þeim vandamálum og einnig álitamálum sem koma upp vegna efnis- töku og frágangs náma. Einnig hafi þeir kynnst deilum af ýmsu tagi sem risið hafa af þessu efni, oftast vegna þess að fjár- muni hefur skort til þess að framkvæma nauðsynlegar lagfæringar og frágang. í ritinu er að finna kynningu á lögum og reglugerðum sem snerta efnistöku en í sumum tilvikum er þó ekki um nein bein lagafyrirmæli að ræða né ákvæði reglu- gerða. Þar sem ekki er um nein slík fyrri- mæli að ræða er leitast við að leiðbeina um verklag þegar kemur að frágangi og uppgræðslu námusvæða. Um 3.000 skráðar efnisnámur Ritið „Námur - efnistaka og frágangur" skiptist í 9 kafla auk inngangs og þriggja viðauka þar sem gerð er grein fyrir hug- tökum varðandi efnistöku, verndarflokkun Vegagerðarinnar og laga- og reglugerðar- ákvæði sem snerta málið. í ritinu kemur fram að liðlega 3.000 efnisnámur eru skráðar hjá Vegagerðinni og eru um 1.250 þeirra ófrágengnar auk nokkurs fjölda Frágangi lokið og vel að verki staðið. 6

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.