Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 8
Heiti sveitarfélaga
Hvað á sveitarfélagið að heita?
Heiti sveitarfélaga verða fjölbreyttari með hverju árinu og hverri sameiningu sem tekur giidi.
Kaupstöðum og hreppum fækkar og til verða byggðir, þing og bæir.
Öðru hverju kemur upp umræða um nöfn
sveitarfélaga, fegurð þeirra og fylgni við
reglur íslenskunnar, samræmi milli nafna
sveitarfélaga, reglur um nafngiftir og fleira.
Algengast er að fólk velti fyrir sér nöfnum
sveitarfélaga og reglum um þau í tengsl-
um við sameiningu sveitarfélaga og upp-
töku nýrra nafna. En jafnframt er fróðlegt
að velta fyrir sér tengslum milli nafna
sveitarfélaganna sem stjórnsýslueininga
annars vegar og svo hins vegar þeirra
heita sem notuð eru í daglegu tali, ræðu
eða riti. Þar er nokkur munur á og víst að
sum stjórnsýsluheitin eru flestum íbúum
viðkomandi sveitarfélags lítt töm í munni.
Hér er aðallega átt við endingar á heitum
sveitarfélaga.
Kaupstaðarbær
Það er einkum kaupstaðar-endingin sem
síst er notuð í daglegu tali fólks og jafnvel
í ræðu og Viti, þótt tiltekið sveitarfélag beri
þá endingu. Sem dæmi um sveitarfélög
sem heita kaupstaður en eru mun oftar
nefnd bær þegar vísað er í stjórnsýsluein-
inguna má nefna Akureyri, Hafnarfjörð og
Húsavík. Akureyrarbær er mun algengara í
ræðu og riti en Akureyrarkaupstaður.
Ekki eru þeir þó margir kaupstaðirnir,
það er sveitarfélögin sem hafa endinguna
kaupstaður í stjórnsýsluheiti sínu og hefur
þeim farið fækkandi. Það eru Akranes-,
Akureyrar-, Bolungarvíkur-, Grindavíkur-,
Hafnarfjarðar-, Húsavíkur-, Seltjarnarnes-,
Seyðisfjarðar- og Siglufjarðarkaupstaður.
Þetta'eru níu sveitarfélög en þeim fækkar
um eitt við kosningarnar nú, því Húsavík-
urkaupstaður hefur sameinast Reykja-
hreppi og breytist í bæ, byggð eða þing.
Niðurstaða úr kosningu íbúanna var ekki
komin þegar blaðið var í vinnslu.
Nokkrir kaupstaðir hafa breytt um nafn
án sameiningar og tekið upp endinguna
bær í stað kaupstaðar. Þetta eru Vest-
mannaeyjabær, Kópavogsbær og Ólafs-
fjarðarbær. Dæmi um breytingu úr sveit í
bæ er Eyrarsveit sem áður hét en ber nú
nafnið Grundarfjarðarbær. Þrettán sveitar-
félög bera nú heiti sem endar á bær. Þrír
þeirra urðu til við sameiningu sveitarfé-
laga, Snæfellsbær, ísafjarðarbær og
Reykjanesbær.
Margir hreppar en fer fækkandi
Heiti langflestra sveitarfélaga enda á
hreppur en þeim sveitarfélögum fer þó
óðum fækkandi með sameiningu sveitar-
félaga því algengt er að nokkrir hreppar
sameinist og taki upp nafn sem endar á
bær eða byggð. Hin síðari ár hafa ending-
arnar byggð og þing orðið algengari með
tilkomu nýrra sveitarfélaga eftir samein-
ingu.
Dæmi um nýjar endingar á sveitarfé-
lögum eru sex byggðir; Borgar-, Dala-,
Vestur, Hörgár-, Dalvíkur- og Fjarðabyggð.
Þrjú sveitarfélög sem orðið hafa til við
sameiningu hafa tekið upp heitið Sveitar-
félagið en auk þess hefur orðið til
Sveitarfélagið Ölfus. Fyrrnefndu
sveitarfélögin þrjú eru Sveitarfélagið
Skagafjörður, Sveitarfélagið Hornafjörður
og Sveitarfélagið Árborg. Enn bera nokkur
sveitarfélög endinguna sveit, þar af tvær
sem urðu til við sameiningu nokkurra
hreppa, Borgarfjarðarsveit og Eyjafjarðar-
sveit. Þá eru ótaldar nýjar endingar og ný
nöfn sveitarfélaganna Austur-Hérað, Norð-
ur-Hérað, Húnaþing vestra, Rangárþing
eystra og svo gamla góða Reykjavíkur-
borg.
Kannast einhver við...?
Við Fáskrúðsfjörð eru sveitarfélögin Fá-
skrúðsfjarðarhreppur og Búðahreppur.
Þéttbýlið við Fáskrúðsfjörð gengur jafnan
undir nafninu Fáskrúðsfjörður og myndi
einhver telja að óreyndu að það sveitarfé-
lag héti Fáskrúðsfjarðarhreppur - en svo er
ekki. Þéttbýlið heitir Búðahreppur en
sveitin Fáskrúðsfjarðarhreppur. Margir
kannast við Skagaströnd af ýmsum ástæð-
um sem ekki verða raktar hér. En hve
margir þeirra sem komið hafa á Kántrýhá-
tíð á Skagaströnd vita að sveitarfélagið
heitir Höfðahreppur?
Þekkt nöfn þéttbýlisstaða hafa horfið úr
heiti sveitarfélaga með sameiningu en eru
þó áfram notuð sem staðarheiti. Dæmi
um það eru Borgarnes, Ólafsvík, Patreks-
fjörður, Flateyri, Hvammstangi, Egilsstaðir,
Reyðarfjörður, Eskifjörður og Selfoss - og
svo líklega það frægasta í þessum hópi,
Keflavík.
Við sveitarstjórnarkosningarnar nú urðu
til nokkur ný nöfn á sameinuð sveitarfélög
og er greint frá þeim á næstu blaðsíðu.
Fiskibátur á leið til veiða frá Crundarfirði. Meðal þeirra sveitarfélaga sem skiptu um nafn á kjörtímabilinu
1998-2002 er Eyrarsveit sem nú heitir Grundarfjarðarbær. - Mynd: Áskell Þórisson.
8