Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 11

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 11
eða einstakir sveitarstjórnarmenn búa. Ástæða þess virðist einfaldlega sú að fólk- ið skynji valdið þar sem höfuðstöðvarnar eru staðsettar. Meira fyrir skattpeningana Hluti rannsóknar þeirra Grétars Þórs og Hjalta beindist að fjármálum og rekstri þeirra sveitarfélaga sem hún náði til. Að sögn þeirra er þó ekki um tæmandi athug- un að ræða er mæli öll áhrif sameining- anna á rekstur þeirra. Einkum hafi verið reynt að nálgast meginþróun útgjalda og tekna auk skuldastöðu og leitast við að fá fram hvort rekja megi einhverjar megin- hreyfingar í rekstri til sameininganna. Ekki sé verið að kveða upp dóma um fjárhags- stöðu sveitarfélaganna eða fjármálastjórn þeirra enda hafi það ekki verið tilgangur rannsóknarinnar. Grétar Þór og Hjalti segja niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ekki sé raunhæft að vænta mikils fjárhagslegs ávinnings af sameiningunum. Komi áþreifanlegur ár- angur fram, hvort sem hann hafi náðst með hagræðingu eða auknum framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, þá fari hann oftar en ekki til þess að bæta og efla þjón- ustu við íbúana. Peningar aukist því lítið í Skagfirskir skokkarar teygja á vöðvunum meö auðkenni héraðsins, fjallið Tindastól, í baksýn. íSkagafirði sameinuðust mörg sveitarfélög, dreifbýli og þéttbýli, alls 11 sveitarfélög og er það stærsta sameining sveit- arfélaga sem gerð hefur verið á íslandi fram til þessa. - Mynd: Feykir á Sauðárkróki. ustu. Útgjöld til félagsþjónustu hafa aukist sem og til grunnskólans en útgjaldaaukn- ingu til skólans má rekja til annarra þátta eins og flutnings skólans frá ríki til sveitar- félaga og einsetningar skóla. Dæmi eru þó um að náðst hafi hagræðing í rekstri skól- ans, svo sem í Dalabyggð. Vel heppnuð sameining mikilvæg byggðaaðgerð Þeir Grétar Þór Eyþórsson og Hjalti Jó- hannesson segja glöggt koma fram í nið- urstöðum rannsóknarinnar að sameinuðu sveitarfélögin séu sterkari til sóknar í upp- byggingu grunngerðar sveitarfélaganna og í atvinnumálum. Þau hafi að öllu jöfnu meiri slagkraft til þess að ráðast í kostnað- arsamari framkvæmdir og verkefni en áður. Þetta eigi til dæmis við um byggingu hafna, veitna og annarra framkvæmda er heyra til grunngerðar þeirra. Þeir segja að nokkur munur sé á þeim sveitarfélögum er urðu til við sameiningu 1994 og 1998. Ljóst sé að tíminn vinni með mönnum og áhrifa sameininganna gæti meira í eldri sveitarfélögunum, einkum á sviði atvinnu- mála. Grétar Þór Eyþórsson og Hjalti Jó- hannesson telja að fengnum niðurstöðum rannsóknar sinnar að sveitarfélögin og þeir þættir sem þau standa fyrir gegni miklu hlutverki í byggðaþróuninni í land- inu. Þeir segja að vel heppnuð sameining, sem góð eining sé um, geti verið mjög mikilvæg aðgerð til að hafa jákvæð áhrif á byggðaþróun á viðkomandi svæði. Staðsetning höfuðstöðva sveit- arfélags skiptir íbúana verulegu máli og virðist hafa mun meira táknrænt gildi en búseta sveitar- stjórnarmanna. Ástæða þess virðist einfaldlega sú að fólkið skynji valdið þar sem höfuð- stöðvarnar eru staðsettar. sjóði en fólk fái meiri þjónustu fyrir skatt- peninga sína, einkum í dreifbýlinu. í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að útgjöld sveitarfélaganna hafa yfir- leitt aukist við sameiningu þeirra. Má einkum rekja hækkanir til tveggja stærstu málaflokkana, skólamála og félagsþjón- S/ómenn og útgerðarmenn athugið! Rekum uppboðsmarkaði í öllum höfnum Snæfellssness, Þorlákshöfn, Reykjavík og Akranesi. Útvegum löndun, ís og umbúðir. Eigum ávallt fyrirliggjandi flestar gerðir beitu s.s. síld, smokkfisk, loðnu og síli. Einnig seljum við ýmsar rekstrarvörur t.d. ábót, baujur og belgi. Ávallt til þjónustu reiðubúnir Fiskmarkaður Íslands HF. SímtGrundarfjörður 4386971 • ÓlofsYÍk436 1646,436 1647 • ftf436 6971 • Amarstapi435 6777 • Stykkishólmur438 1646 • Akranes43l 4333 • Reykjovík562 3080• hrláksh.483 3038 Fojc 438 6971 436 1648 436 6971 435 6797 438 1647 431 1705 5613399 483 3036 GSM 893 6846 11

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.