Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Page 12
Sameining sveitarfélaga
Sveitarfélagið Skagafjörður var sameinað úr 11 sveitarfélögum
árið 1998 og er þess vegna stærsta sameining sem framkvæmd
hefur verið hér á landi til þessa.
Yfirgnæfandi fjöldi íbúa vill að hverfanefndum verði komið á
fót í sveitarfélaginu. Hugmynd að þeim varð til við sameininguna
og ætlunin að frumkvæði um þær kæmi frá íbúunum. Sveitar-
stjórnin hefur því ekki haft frumkvæði um skipun þeirra og þeim
hefur heldur ekki verið ætlað neitt valdssvið, en það er forsenda
fyrir því að þær geti gegnt hlutverki sínu.
Draga má þann lærdóm af sameiningu sveitarfélaga í Skaga-
firði að laga þurfi stjórnkerfi og stjórnsýslu að nýju hlutverki og
umbjóðendum þegar bæjarskrifstofur stærsta bæjarfélagsins
halda lítt breyttri starfsemi eftir sameiningu.
Fjármál Skagafjarðar hafa versnað fremur en hitt eftir samein-
inguna. Raunútgjöld til félagsþjónustu og skólamála hafa hækkað
en þjónusta hefur verið bætt á móti.
í hugum Skagfirðinga eru bein tengsl á milli sameiningarinnar
og þróunar byggðamála og byggjast væntingar um aukna og betri
byggð í framtíðinni á getu sveitarfélagsins til þess að veita þá
þjónustu sem nauðsynleg er til þess að fólk kjósi að flytjast þang-
að. íbúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar telja sig eiga erfiðara með
að hafa áhrif á gang mála og aðgangur að sveitarstjórnarmönn-
um hafi versnað eftir því sem fólk býr lengra frá Sauðárkróki.
Vesturbyggð
Fjögur sveitarfélög sameinuðust íVesturbyggð árið 1994. Tillaga
um sameiningu þar gerði hins vegar ráð fyrir að fimm sveitarfé-
lög sameinuðust en hin fjögur voru sameinuð á grundvelli heim-
ildarákvæðis í sveitarstjórnarlögum, svokallaðrar 2/3 reglu.
Tekjur Vesturbyggðar hafa farið vaxandi eftir sameininguna
þrátt fyrir að íbúum hafi fækkað verulega á tímabilinu. Kostnaður
við yfirstjórn hefur verið hár en heldur
farið niður á við að undanförnu. Útgjöld
til félagsmála jukust verulega á árunum
1994 og 1995 en hafa heldur lækkað á
undanförnum árum. Enn eru þau hærri en
1994 en engu að síður mun lægri en hjá
viðmiðunarhópi sambærilegra sveitarfé-
laga. Kostnaður vegna reksturs skóla er
nokkru hærri en viðmiðunarhópa.
Fólk íVesturbyggð telur framboð á
þjónustu sveitarfélagsins mikils virði í
byggðamálum en vegna erfiðrar skuldastöðu hefur lítið verið um
fjárfestingar og lítið aflögu til uppbyggingar á þjónustu.
íbúar Bíldudals og dreifbýlishreppanna telja að stjórnsýsla
sveitarfélagsins hafi þjappast of mikið saman á Patreksfirði.
Óánægju með sameininguna er einkum að finna á Bíldudal en
þar er andstaða við hana mjög almenn, nú 8 árum eftir samein-
ingu. Lokun þjónustuskrifstofu á Bíldudal hafði neikvæð áhrif á
einingu um sveitarfélagið en aftur hefur verið horfið til þess að
koma þar upp stöðu þjónustufulltrúa.
Viðhorf íbúa í sameinuðum sveitarfélögum til árangurs af sameiningu eru nokk-
uð mismunandi eftir svæðum. Myndin er úr Snæfellsbæ.
Borgarfjarðarsveit
Borgarfjarðarsveit var sameinuð úr fjórum sveitarfélögum árið
1998. íbúar fyrrum Hálsahrepps og Reykholtsdalshrepps telja
þjónustu ekki fyllilega sambærilega í öllu sveitarfélaginu. Þeir
upplifa þó ekki miklar breytingar enda var félagsþjónustan orðin
sameiginlegt verkefni áður en sameining gömlu sveitarfélaganna
kom til. Sambærileg viðhorf er að finna til skólamála en lítil
breyting hefur orðið í þeim málafiokki eftir sameininguna.
Tekjur sveitarfélagsins hækkuðu við
sameininguna og munar þar mestu um
aukin framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga. Útgjöld til félagsþjónustu og
fræðslumála hafa hækkað en kostnaður
vegna yfirstjórnunar lækkað. Hér ber þó
að hafa í huga að Jöfnunarsjóður greiðir
hluta kostnaðar við yfirstjórn fyrsta kjör-
tímabilið. Til þessa hefur Borgarfjarðar-
sveit lítil afskipti haft af atvinnumálum.
Samdráttur hefur verið í atvinnu og fólks-
fækkun nokkur. Ákveðin breyting hefur orðið í samsetningu
atvinnulífs og hefur vægi þjónustugreina aukist á kostnað land-
búnaðar. Sóknarfæri gætu þó skapasttil uppbyggingar, meðal
annars vegna greiðari samgangna við höfuðborgarsvæðið.
íbúar efri hluta Borgarfjarðarsveitar, fyrrum Háls- og Reyk-
holtsdalshrepps, telja aðgang að fulltrúum sveitarfélagsins og
möguleika til að hafa áhrif á gang mála fremur hafa versnað eftir
sameiningu. í neðri sveitunum, Lundareykjadal ogAndakíl, eru
skoðanir nokkuð skiptar en góð samstaða ríkir um staðsetningu
skrifstofu sveitarfélagsins í Reykholti.
Tekjur Borgarfjarðarsveitar
hækkuðu við sameininguna og
munar þar mestu um aukin
framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Sveitarfélagið
Skagafjörður
12