Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Qupperneq 13

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Qupperneq 13
Fjarðabyggð Sameiningin í Fjarðabyggð hefur nokkra sérstöðu meðal þeirra sameininga sem skoðaðar voru. Um var að ræða þrjú þéttbýlis- sveitarfélög, þar af tvo kaupstaði, sem öll höfðu fyrir sameining- una byggt upp eigin stjórnsýslu og þjónustukerfi. Því þarf ekki að koma á óvart að meirihluti íbúa Fjarðabyggðar telur sambærilega þjónustu ríkja í öllum þremur bæjunum þótt sjónarmið íbúa Eski- fjarðar og Reyðarfjarðar séu ekki eins afdráttarlaus og Norðfirð- inga. Finna má það viðhorf á meðal sveitarstjórnarmanna að óæski- legt sé að dreifa stjórnsýslunni með þeim hætti sem gert er því dreifð stjórnsýsla sé mun kostnaðarsamari en samþjöppuð. íbú- arnir eru aftur á móti fremur sáttir við núverandi stjórnkerfi og stjórnsýslufyrirkomulag og telja að allgóður jöfnuður ríki á meðal íbúa bæjanna um aðgang að stjórnsýslunni. Meirihluti íbúa á Eskifirði og Reyðarfirði telur þó að vald hafi þjappast saman í Neskaupstað, sem stafar ef til vill af því að bæjarstjórinn og for- seti bæjarstjórnar eru búsettir þar. Formaður bæjarráðs er þó bú- settur á Eskifirði og þar er einnig lögheimili sveitarfélagsins. Betur horfir nú um fjármál Fjarðabyggðar eftir erfið fjárhagsár 1998 og 1999. Útgjöld til félagsþjónustu og skólamála hafa ekki hækkað að raunvirði frá sameiningunni. Skýr tengsl eru á milli byggðaþróunar og atvinnulífs í hugum íbúa Fjarðabyggðar sem líta til mikilvægis sameiningarinnar fyrir atvinnulíf á svæðinu. Fjarðabyggð var sameinuð úr þremur bæjarfélögum árið 1998. Snæfellsbær Sameiningin í Snæfellsbæ tók gildi árið 1994 en þar sameinuðust fjögur sveitarfélög. Var þetta eina sameiningartillagan sem sam- þykkt var af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum í sameiningar- átakinu 1993. íbúar Snæfellsbæjar eru nokkuð sáttir við félagsþjónustu og skólamál en skólar voru ekki sameinaðir heldur aukið við starf- semi skóla á Lýsuhóli. Flestir íbúanna telja sambærilega þjónustu í sveitarfélaginu en undantekningar er helst að finna á meðal íbúa þess svæðis er áður var Breiðavíkurhreppur. Tekjur Snæfellsbæjar hafa farið stighækkandi frá sameining- unni og skýrist mikið stökk á milli áranna 1995 til 1997 af aukn- um tekjum við yfirtöku grunnskólans en einnig af nokkurri upp- sveiflu í atvinnulífinu. Félagsþjónusta jókst verulega enda var hún vart til staðar í dreifbýlinu fyrir sameiningu. Sameiningin hefur styrkt þróun atvinnulífsins og samgöngubætur innan marka sveitarfélagsins hafa hjálpað til við eflingu atvinnu og þjónustu. Meirihluti íbúa allra byggða Snæfellsbæjar telja að erfiðara sé um aðgang að bæjarfulltrúum og að hafa áhrif á gang mála. Mest ber á þessu sjónarmiði á meðal íbúa dreifbýlisins. Skrifstofa sveitarfélagsins er staðsett á Hellissandi en Ólafsvík er langstærsti byggðakjarninn og „tapaði" því bæjarskrifstofunum yfir í minna byggðarlag. Sýnir það mikilvægi höfuðstöðva sveitarfélagsins og hversu táknrænt gildi staðsetning þeirra hefur í augum íbúanna að sú staðsetning hefur valdið nokkurri óánægju í Ólafsvík þrátt fyrir að meirihluti bæjarfulltrúa sé þaðan og bæjarstjórinn einnig búsettur þar. Sveitarfélagið Árborg íbúar Sveitarfélagsins Árborgar telja almennar forsendur fyrir fag- legri og formfastari þjónustu hafa aukist og þjónustustig hækkað frá því sem var fyrir sameiningu. Skoðanir eru þó nokkuð skiptar og telja íbúar Eyrarbakka og Stokkseyrar þjónustu fremur hafa versnað á meðan íbúar dreifbýlisins telja almennt að um betri þjónustu sé að ræða. Breytinga sjást hins hins vegar lítil merki hjá Selfyssingum. íbúarnir líta almennt til ákveðins hlutverks sveitarfélagsins varðandi uppbyggingu á þjónustu. Nálægð þess við höfuðborgarsvæðið veldur því hins vegar að það gegnir ekki sambærilegu lykilhlutverki við uppbyggingu atvinnulífs og þegar fjær dregur. Tekjur sveitarfélagsins hafa hækkað eftir sameiningu þótt fram- lög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga lækkuðu við hana. Skýringa á því er að leita í hærra útsvari og hugsanlega hærri tekjum fólks. íbúar telja sig hafa minni möguleika til þess að hafa áhrif á gang mála en fyrir sameiningu. Á það einkum við um íbúa Eyrar- bakka og Stokkseyrar en stjórnkerfi Selfossbæjar var lagt til grundvallar stjórnsýslu í hinu nýja sveitarfélagi. Bæjarskrifstofurn- ar eru á Selfossi auk þess sem sex af níu sveitarstjórnarmönnum hafa verið búsettir þar. Sveitarfélagið Árborg var myndað við sameiningu fjögurra sveitarfélaga árið 1998. HRAÐFRYSTIHÚS ÍC HELLISSANDS HF Hafnarbakki 1 ■ 360 Hellissandur ■ Sími: 430 7700 13

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.