Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Blaðsíða 17
an mig sem dæmi þá skrepp ég oft heim í mat í hádeginu," segir Kristinn sem býr f Ólafsvík en starfar á Hellissandi. „Þetta er mun fljótfarnara en oft er á milli hverfa í Reykjavík." Rígurinn er horfinn Kristinn segir það engum vafa undirorpið að samgöngubæturnar hafi skapað farveg- inn fyrir sameiningu sveitarfélaganna. Áður fyrr hafi tæpast þekkst að fólk stund- aði atvinnu utan sinnar nánustu heima- byggðar. Ólsarar og Sandarar hafi ekki far- ið hver yfir í annars byggð til þess að sækja vinnu. Raunar hafi verið talsverður rígur á milli þessara byggðarlaga sem að einhverjum hluta hafi átt rætur í sam- gönguleysinu. Kristinn segir þennan ríg nær algerlega horfinn og eigi það mikinn þátt í því hvernig byggðirnar hafi náð að starfa saman í einu sveitarfélagi. „Fólk hefur gert sér grein fyrir því að þetta er eitt byggðarlag og eitt atvinnusvæði og að mun auðveldara er að efla atvinnu- og mannlíf þegar gömlu byggðirnar standa saman." Kristinn segir nei- kvæð áhrif sameiningarinnar hverf- andi. íbúar Ólafsvíkur hafi verið mis- jafnlega sáttir við þá ákvörðun að staðsetja bæjarskrifstofurnar á Hell- issandi og komi það fram í könnun sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri hafi gert á áhrifum samein- ingarinnar. Flestir séu þó búnir að átta sig á því að þetta skipti engu máli. Vegalengdirnar séu svo litlar auk þess sem fólk eigi ekki oft erindi á bæjar- skrifstofuna. Flestir greiði gjöld sín í gegnum banka svo dæmi sé tekið. „Ég held að flestir þeirra sem eiga erindi við okkur hér á bæjarskrifstofunum þurfi að hitta byggingafulltrúann." Húsnæðisskortur er stærsta vandamálið Þessi orð Kristins rifjuðust upp fyrir tíð- indamanni þegar hann skömmu síðar fór um byggðirnar á Hellissandi, Rifi og Ólafsvík. Nokkur íbúðarhús eru í bygg- ingu og nú er verið að skoða möguleika á að reisa íbúðir fyrir eldri borgara. Kristinn Við íþróttavöllinn á Hellissandi. Völlurinn verður nothæfur tveimur til þremur vikum fyrr á vorin en völlur- inn f Ólafsvík vegna þess að sá fyrrnefndi stendur á hrauni og vatn á greiðan aðgang niður í jörðina. íþróttaáhugi er mikill sem meðal annars má sjá af því að fimm mínútum eftir að Kristinn bæjarstjóri ók í átt að vellinum ásamt tíðindamanni Sveitarstjórnarmála voru íþróttaáhugamenn komnir á eftir honum á jeppum sínum. Frá vinstri: Kristinn jónasson bæjarstjóri; Hjálmar Kristjánsson, framkvæmdastjóri á Rifi, og Viðar Gylfason íþróttakennari. „Manni er veitt athygli. Þeir héldu að nú ætti að fara að gera eitthvað," sagði Kristinn við tíðindamann þegar þeir voru á braut. bæjarstjóri segir húsnæðisskort stærsta vandamálið og hamli hann því að fólk geti flust til bæjarins. Þetta kemur best fram þegar litið er á verð íbúða en það hefur hækkað mikið að undanförnu. Kristinn segir íbúðaverð í Snæfellsbæ hafa hækkað úr um 45 þúsund krónum á fer- metra í allt að 70 þúsund krónur á nokkrum árum. „Okkur vantar bæði íbúð- arhúsnæði til sölu á almennum markaði og einnig leiguhúsnæði," sagði Kristinn eftir að við höfðum rætt við smiði sem voru að vinna að nýbyggingu í brekkunni í Ólafsvík. „Ég verð að taka niður húfuna," sagði einn hinna þriggja glað- beittu húsasmiða, sem voru við vinnu sína í Ólafsvík en þar er nú mikill skortur á húsnæði. Ferðaþjónusta í framtíðinni Kristinn Jónasson segiröll skilyrði til þess að íbúum Snæfellsbæjar fjölgi á næstu árum. Annars vegar vegna þeirrar gullkistu sem Breiðafjörður er og möguleikanna til þess að selja ferskan fisk á mörkuðum í Evrópu. Hinn möguleikinn liggi í stórauk- inni ferðaþjónustu. „Snæfellsnesið hefur alltaf verið vinsælt til ferðalaga og með miklum samgöngubótum hafa þessir möguleikar gjörbreyst til hins betra." Ný- byggð hótel eru bæði í Ólafsvík og á Hell- issandi. Hótelið í Ólafsvík er opið allt árið en hótelið á HelIissandi verður opið frá því í maí og fram í september að minnsta kosti til að byrja með. Þá er rekin gisti- þjónusta á Arnarstapa og Hellnum auk bændagistinga á mörgum sveitabæjum í bæjarfélaginu. Eitthvert glæsilegasta félagsheimili landsins er að finna í Ólafsvík. Húsið var byggt fyrir 15 árum og tekur allt að 500 manns í sæti. Þar er einnig að finna nýtt og glæsilegt 2.400 fermetra íþróttahús auk félagsheimila á Hellissandi, Arn- arstapa og Lýsuhóli. íbúar Snæfells- bæjar búa því að góðri aðstöðu að þessu leyti auk þess sem þessi mann- virki geta nýst ferðaþjónustunni með ýmsu móti. Hugarfarið og umræðan mikilvæg Kristinn Jónasson bæjarstjóri hefur ákveðnar skoðanir þegar rætt er um hvað sé nauðsynlegast fyrir byggð á borð við Snæfellsbæ. „Hugarfarið og umræðan," svarar hann að bragði þegar hann er inntur eftir því. Jákvætt hugarfar fbúanna sé byggðinni ákaflega mikilvægt og einnig sú umræða sem fer fram. „Það er mjög mikilvægt að fréttir frá byggðarlaginu séu á jákvæðum nótum. Ekkert er hættulegra en þegar neikvæð umræða breiðist út. Hún grefur undan samstöðunni og áhuganum á að byggja og bæta og hún gefur einnig mjög neikvæða mynd af viðkomandi bæjarfélagi eða bú- svæði út í samfélagið." ----- 17

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.