Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Side 20
Snæfellsbær
Tilkoma framhaldsskóla nauðsyn
„Það er ekkert leyndarmál að við erum að missa fólk í burt vegna þess að ekkert framhaldsnám er fyrir
ungmennin, “ segir Kristinn lónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ.
í gnægtum Snæfellsbæjar blasir einn
vandi við. Hann er sá að ungmenni verða
að fara í burtu til þess að sækja nám þeg-
ar grunnskóla lýkur. Til þess að bregðast
við mesta vandanum hefur verið gripið til
þess ráðs að kenna námsefni fyrsta árs
framhaldsskólanna heima og hefur Fjöl-
brautaskóli Vesturlands séð um fram-
kvæmd og skipulagningu námsins. Nú er
unnið að því ásamt öðrum sveitarfélögum
á Snæfellsnesi að koma upp framhalds-
skóla á Nesinu. Ætlunin er að staðsetja
hann f Grundarfirði, sem er miðsvæðis á
milli Snæfellsbæjar og Stykkishólms. Með
því móti er hagkvæmast að aka nemend-
um til og frá skóla á hverjum degi.
Heilu fjölskyldurnar fara
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfells-
bæ, segir þetta mál hafa verið á borði
Björns Bjarnasonar, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, og eftirmaður hans, Tómas
Ingi Olrich, hafi tekið mjög vel í að halda
því áfram. Kristinn segir að ef þær hug-
myndir, sem nú er unnið eftir nái fram að
ganga verði framhaldsskólinn að veruleika
haustið 2003. Þetta sé afar brýnt hags-
munamál. Ekki einvörðungu fyrir Snæ-
fellsbæ heldur einnig aðrar byggðir á Nes-
inu. „Það er ekkert leyndarmál að við
erum að missa fólk í burt vegna þess að
ekkert framhaldsnám er fyrir ungmennin.
Margir foreldrar hugsa sig um þegar kem-
ur að þessum tímamótum og það endar
stundum með því að öll fjölskyldan flytur
burt til þeirra staða þar sem framhaldsnám
er í boði." Kristinn segir að ungmenni úr
Snæfellsbæ sæki framhaldsnám helst til
þriggja staða, Reykjavíkur, Akraness og
Akureyrar. „Þetta er óþolandi staða og til-
koma framhaldsskóla er mikil nauðsyn ef
við eigum að viðhalda og efla byggð hér á
Snæfellsnesi. Oft koma þessir krakkar ekki
til baka og verst er að missa heilu fjöl-
skyldurnar í burtu. Tilkoma framhaldsskóla
er næsta stóra málið sem við þurfum að
vinna að í samvinnu við nágrannabæjarfé-
lögin og ríkið."
Vantar þig
aðstoð?
Við tökum að okkur
textavinnslu, fréttaþjónustu,
vefþjónustu, prófarkalestur,
þýðingar, ársskýrslugerð,
útgáfu bæklinga og fréttabréfa,
ráðstefnur og margt fleira.
Fremri kynningarþjónusta
Furuvöllum 13 • 600 Akureyri
Sími 461 3666 • Fax 461 3667
fremri@fremri.is
i___________________________________i
20