Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Page 24

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2002, Page 24
Sveitastjórnarkosningar Einn listi án kvenna Elsti frambjóðandinn í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum var 92 ára. Þrír höfðu náð níræðisaldri, þrír eru átján ára. Konur voru í meirihluta á aðeins 11 listum. Samkvæmt samantekt félagsmálaráðu- neytisins á kosningavefnum www.kosning- ar2002.is voru boðnir fram 182 listar í ný- afstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Sjálf- stæðisflokkurinn bauð fram lista á flestum stöðum, eða í 37 sveitarfélögum, næstur kom Framsóknarflokkurinn sem bauð fram sérstakan lista í 30 sveitarfélögum,Sam- fylkingin í tíu, Vinstri hreyfingin - grænt framboð í átta sveitarfélögum og Frjáls- lyndi flokkurinn í þremur. í nokkrum sveit- arfélögum var sjálfkjörið þar sem aðeins einn listi var borinn fram en flestir urðu listarnir í Reykjavík og ísafjarðarbæ, eða sex. Á framboðslistum fyrir kosningarnar nú voru 2.714 manns eða tæplega einn af hverjum hundrað íslendingum. Rétt tæp- lega sex frambjóðendur af hverjum tíu voru karlar en fjórir af hverjum tíu voru konur. Konum hefur heldur fjölgað á fram- boðslistum frá þvf í kosningunum 1998, þegar þær voru 38 af hverjum hundrað frambjóðendum. Jafnræði á 44 listum f tölfræði yfir þrjú efstu sæti allra lista kemur í Ijós að karlar eru í fyrsta sæti á átta af hverjum tíu listum, eða samtals 146 listum en konur á 36 listum. Konur eru í öðru sæti á 76 listum en karlar á 106. Hlutfallið er síðan heldur lakara hjá konunum í þriðja sæti listanna en þar sátu 67 konur en 115 karlmenn. Á 44 listum voru jafnmargir frambjóðendur af hvoru kyni, karlar voru í meirihluta á 127 listum en konur á 11 listum. Á einum lista var engin kona í framboði. Ekkert kjördæmi sker sig sérstaklega úr í þátttöku kvenna en þó eru hlutfallslega fæstar konur í framboði á Austurlandi en mest er þátt- taka kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Sá elsti 92 ára í samantekt félagsmálaráðuneytisins er enn fremur örlítill fróðleikur um aldur frambjóðenda. Sá elsti á lista nú er 92 ára en þrír frambjóðendur höfðu náð níræðis- aldri. Þrír frambjóðendur eru 18 ára. Meðalaldur frambjóðenda var 43 ár. Sveitarstjórnarmönnum fækkaði um 99 Með kosningum í nýlega sameinuðum sveitarfélögum og með breytingum á samþykktum sveitarfélaga sem urðu til við sameiningar á árunum 1990-1998 hefur sveitarstjórnarmönnum fækkað um 99 á fjórum árum. Eftir almennar kosningar til sveitarstjórna í maí 1998 voru kjörnir fulltrúar í sveitar- stjórnum 756 í 124 sveitarfélögum en eftir kosningarnar nú eru þeir 657 í 105 sveit- arfélögum. Við þessar breytingar hefur fjölgað í hverri sveitarstjórn að meðaltali úr 6,1 í 6,3. Mesta breytingin verður við þær sameiningar sveitarfélaga sem sam- þykktar hafa verið undanfarna mán- uði en einnig voru samþykktar breytingar á fjölda kjörinna fulltrúa í allmörgum sveitarfélögum sem áður höfðu orðið til við sameiningu. Fækkar við sameiningu í Fjarðabyggð og Sveitarfélaginu Skagafirði fækkaði fulltrúum í sveit- arstjórn úr 11 í 9 og úr 11 í 7 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þá var fulltrúum í sveitarstjórnum Austur- Héraðs og Vesturbyggðar fækkað úr 9 í 7 en úr 7 í 5 í Djúpavogshreppi, Mýrdalshreppi og Norður-Héraði. Þessi sveitarfélög eiga það sameiginlegt að hafa orðið til við sameiningu sveitarfélaga á árunum 1990-1998. Með framantöldum breytingum fækkaði sveitarstjórnarmönn- um um átján. Sameiningar sveitarfélaga nú nýlega leiða hins vegar til öllu meiri fækkunar sveitarstjórnarmanna en þær breytingar sem gerðar hafa verið í framangreindum sveitarfélögum. í nýafstöðnum sveitar- stjórnarkosningum var kosið til nýrrar sveitarstjórnar í níu sameinuðum sveitarfé- lögum sem urðu til við samein- ingu 26 sveitarfélaga. Þessu til við- bótar tók ein sameining sveitarfé- laga gildi á kjörtímabilinu, þegar Glæsibæjarhreppur, Skriðuhreppur og Öxnadalshreppur sameinuðust undir nafni Hörgárbyggðar. í þeim 29 sveitarfélögum sem „hverfa" í sameiningum á kjörtfmabilinu voru kjörnir fulltrúar í sveitar- stjórnum 151 en verða 72 og hef- ur þeim því fækkað um 79. Jafnframt fækkun sveitarstjórn- armanna fjölgar þeim íbúum sem eru á bak við hvern fulltrúa. Eftir kosningarnar 1998 voru 360 íbúar á hvern sveitarstjórnarmann en þeir eru nú 434. Með sameiningu Ljósavatnshrepps, Bárðdælahrepps, Hálshrepps og Reykdælahrepps í Suður-Þingeyjarsýslu fækkar sveitarstjórnarmönnum á því svæði verulega. Myndin er frá gróðursetningu við Stórutjarnaskóla í Ljósavatnshreppi. 24 -----

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.