Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 7

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 7
Umhverfismál Suðvesturlandi 2009-2020: - ný hugsun Frá fundi verkefnisstjórnar, talið frá vinstri: Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs., sem vann með verkefnisstjórninni;, Ögmundur Einarsson, formaður verkefnisstjórnar, Hrefna B. Jónsdóttir frá Sorpurðun Vesturlands, Guðmundur Tryggvi Ólafsson frá Sorpstöð Suðurlands, Herdís Sigurjónsdóttir frá Sorpu og Aron Jóhannsson frá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sem sat fundinn í fjarveru Guðjóns Guðmundssonar. Svæðisáætlun sorpsamlaga á Nýjar leiðir Sorpsamlög sveitarfélaganna á Suðvesturlandi hafa gert tillögu að endurskoðun á svæðis- áætlun til ársins 2020 þar sem stefnt er að því að þá verði engin Iffræn eða brennanleg efni urðuð á starfssvæði samlaganna. Náist þessi markmið verða kaflaskil f umhverfis- málum á svæðinu sem spannar 34 sveitarfé- lög og um 80% þjóðarinnar búa. Sveitar- stjórnir á svæðinu munu fá áætlunina til afgreiðslu nú f marsmánuði. Endurskoðun á svæðisáætlun um með- höndlun úrgangs sveitarfélaga frá Gils- fjarðarbotni í vestri að Markarfljóti í austri hófst sfðla árs 2007 og var gengið frá drögum að endurskoðun hennar ( janúar 2009. Áætlunin fellur undir lög um umhverfismat og er hún því í lögboðnu ferli hvað það varðar. Sérstök verkefnisstjórn á vegum stjórna Sorpu bs., Sorpstöðvar Suðurlands bs., Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. og Sorpurðunar Vesturlands hf. hefur unnið að málinu og má fullyrða að tillögur hennar marki viss þáttaskil. Það er mat verkefnisstjórnarinnar að með samstilltum aðgerðum megi ná verulegum árangri í því að auka endurnýtingu og draga úr urðun úrgangs. Jafnframt er áhersla lögð á að mestri hagkvæmni megi ná (þessu starfi með því að sorpsamlögin starfi náið saman að aðgerðum. Blönduð lausn Tillögurnar sem nú liggja fyrir fela í sér blandaða lausn. Stefnt er að því að draga úr myndun úrgangs í starfsemi sveitarfélaganna á svæðinu, auka endurnýtingu og endur- notkun en meðhöndla lífrænan úrgang með umhverfisvænum gas- og jarðgerðarstöðv- um. Jafnframt felur stefnan í sér að brenni (fast eldsneyti) verði framleitt til að nýta orku I stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Aðalráðgjafi verkefnisstjórnarinnar var verkfræðistofan Mannvit hf. en sænska fyrir- tækið WSP var fengið til að bera saman um- hverfisáhrif mismunandi aðferða með vist- ferilsgreiningu, einkum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar land- notkunarþörf. Niðurstaða sænsku sérfræð- inganna var sú að sem mest endurvinnsla væri langhagstæðust en þar á eftir kæmi framleiðsla á gasi og brenni. Dregið úr urðun ( svæðisáætluninni er áhersla lögð á sam- hæfingu við meðhöndlun úrgangs af svæðinu öllu. Kröfur um að draga úr urðun lífræns úrgangs og nýjar reglur um urðunarstaði sem taka gildi 2009, kalla á að sveitarfélög og sorpsamlög taki höndum saman um hag- kvæmustu leiðir við meðhöndlun úrgangs, sem gætu falist í meira samstarfi og hag- kvæmni stærðar. Verkefnisstjórnin vekur athygli á því að möguleikar sveitarfélaga til að hafa áhrif á magn úrgangs eru mjög takmarkaðir fyrir utan ráðstafanir varðandi eigin rekstur. Stefnt er að því að setja í gang vinnu til að greina möguleika sveitarfélaga á þessu sviði. Magn lífræns úrgangs sem fer til urðunar er undir viðmiðunarmörkum fram til 2013 en eftir það þurfa að koma til nýjar leiðir til að draga úr urðun hans. Verkefnisstjórn leggur til að urðunarstaðir ( Álfsnesi, að Fíflholtum og Strönd verði opnir áfram og þannig full- nýtt það land sem þegar hefur verið tekið til þessarar notkunar. Markvissar aðgerðir Helstu tillögur verkefnisstjórnar um aðgerðir næstu ár eru þessar: • Umflokkunar- og umhleðslustöðvar verði byggð- ar • Tilrauna gasvinnslustöð verði reist sem fyrst í Álfsnesi • Jarðgerðarstöðvar byggðar ef hagkvæmt reynist • Könnuð verður hagkvæmni þess að framleiða brenni til orkuframleiðslu • Jarðvegstippum breytt (vinnslusvæði fyrir nýtan- leg jarðefni • Sveitarfélög leiti leiða til að hafa áhrif á magn úrgangs f eigin fyrirtækjum og stofnunum • Unnið að samræmingu samþykkta, fyrirkomulagi sorphirðu o.fl. • Stofnuð verði sérstök samstarfsnefnd vegna svæðisáætlunarinnar Samstilltur hópur í verkefnisstjórn Sameiginlegrar svæðisáætl- unar um meðhöndlun úrgangs 2009-2020 sátu þau Ögmundur Einarsson og Herdís Sig- urjónsdóttir frá Sorpu bs„ Guðmundur T. Ólafsson frá Sorpstöð Suðurlands bs„ Guð- jón Guðmundsson frá Sorpeyðingarstöð Suð- urnesja sf. og Hrefna B. Jónsdóttir frá Sorp- urðun Vesturlands hf. Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs„ vann með verk- efnisstjórninni. Tillögur verkefnisstjórnar að endurskoð- aðri áætlun ásamt umhverfismatsskýrslu er að finna á vefsíðunni www.samlausn.is <$> TÖLVUMIÐLUN www.h3.is 7

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.