Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 20

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 20
Viðtal mánaðarins vangi borgarmálanna og við erum góðir félagar, hvort sem er ( pólitíkinni eða annars staðar. Ég tel það hafa verið afdrifaríka ákvörðun hjá Óskari að fara aftur ( meirihluta með sjálfstæðimönnum ( borgarstjórn eftir að slitnað hafði upp úr fyrsta meirihlutanum sem myndaður var á þessu kjörtlmabili. En þessi ákvörðun hans hefur leitt til þess að allt hefur róast í borginni. Fólk er farið að vinna á ný eðlilega að málum og borgarstjórn aftur talin stjórntæk sem tæpast var hægt að segja á tímabili." Stjórnarfundir í fjölmiðlum Eitt af þvl sem leiddi af þessum breytingum var að Óskar kom að máli við Guðlaug og óskaði eftir því að hann tæki að sér for- mennsku I stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. „Þetta kom mér mjög á óvart en Óskari tókst að sannfæra mig um að ég ætti heima í þessu starfi. Við fórum yfir starfsvettvanginn og hvað þyrfti að leggja áherslu á. Orkuveitan hafði lengi búið góðu búi en þegar ég kom til starfa I stjórninni hafði ástandið verið slæmt eins og fólk þekkir af fréttum slðasta árs. Það var ekki búið að Ijúka þeim málum sem tengdust REI og fyrirtækið var án for- stjóra en starfandi forstjóri sinnti daglegum rekstri. Þegar ég kom að þessu höfðu stjórn- arfundir Orkuveitunnar verið að meira og minna leyti úthverfir I fjölmiðlum og starfs- fólkið var farið að upplifa að það væri bein- llnis óþægilegt að vinna hjá Orkuveitunni. Ég hef einbeitt mér að þvl að koma ró á fyrir- tækið að innan, hlúa að starfsfólki og koma málum þannig fyrir að fólki finnist eft- irsóknarvert að starfa þar eins og á að vera. Ég held að við höfum náð góðum árangri og hef ég unnið að því að undanförnu með nýráðnum forstjóra, Hjörleifi Kvaran, að koma á ákveðinni formfestu. Við sem sitjum I stjórn OR I dag erum af heilum hug að kynna OR sem gott þjónustufyrirtæki fyrir Reykvíkinga og aðra sem njóta þjónustu þess." Eigum að leggja þekkinguna fram Guðlaugur segir að REI-málinu svonefnda sé að Ijúka og Ijóst sé að engin útrás verði leidd af Orkuveitu Reykjavíkur heldur muni OR koma að slíkum málum sem þjónustuaðili eða ráðgjafi. „Við munum ekki stýra útrás- arverkefnum á fjármálalegum grunni eins og REI var byggt upp. Við munum aftur á móti aðstoða með ánægju þá sem vilja stofna til raforkuframleiðslu eða hitaveitufram- kvæmda, hvort sem um þróunarþjóðir er að ræða eða aðra aðila." Guðlaugur segir að forseti íslands hafi verið dugmikill við að auglýsa Orkuveituna á ferðum sínum um heiminn og það hafi skilað mörgum gestakomum til hennar. „Við höfum fundið að það er mikil eftirspurn eftir þekk- ingu Orkuveitunnar og við viljum koma henni I þann búning að sú þróun haldi áfram. Það er mín sýn að við verðum að hafa erlend samskipti og þá hugsa ég málið út frá þeim sérfræðingum sem starfa hjá okkur; að þeir fái tækifæri til þess að þróa þekkingu sína og að starfsumhverfi þeirra verði ánægju- legra. Ég tel að leið (slands inn á hinn alþjóðlega orkumarkað verði I gegnum ráðgjöf og hönn- un en ekki fjárfestingar Orkuveitunnar I verk- efnum um víða veröld. Við erum vel mannað fyrirtæki með mikla þekkingu innanborðs auk þess sem verkfræðistofur með mjög hæft starfsfólk eru stoðfyrirtæki við Orku- veituna. Við munum hins vegar aldrei hafa fjárhagslega burði til þess að kosta stór verk- efni erlendis þótt við getum orðið þátttak- endur með þvl að leggja fram þá þekkingu Enex skipt upp Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Enex hefur verið I eigu Geysir Green Energy (GGE) að 73% og REI að 26,5%. Þá hefur nokkur fjöldi aðila átt smærri hluti I Enex. Með samkomulaginu yfirtekur REI hlut Enex I lceland America Energy, sem vinnur að þróunarverkefnum á sviði jarðhita, fyrst og fremst I Kaliforníu. REI mun þá eiga 84% hlut I félaginu en afgangurinn er I höndum bandarískra fjárfesta auk smærri innlendra fjárfesta. GGE heldur eftir verkefnum Enex I Þýskalandi og auknum hlut I Enex-Kína, sem vinnur að uppbyggingu jarðvarmaveitna I því landi. Þess má ennfremur geta að REI og GGE hafa unnið saman að verkefnum á Filippseyjum. SFS 20 6 TÖLVUMIÐLUN www.tolvumidlun.is

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.