Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 24

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 24
Reykjavíkurborg Aðgerðaáætlun gegn efnahagsvanda Undir lok slðasta árs var hafin vinna við sérstaka sóknaráætlun á veg- um Reykjavíkurborgar. Áætlunin var unnin í Ijósi þeirra verkefna sem borgin stendur frammi fyrir vegna mjög breyttra aðstæðna í þjóð- félaginu. Markmið borgaryfirvalda með sóknaráætluninni er stefnu- mótun til framtíðar um forystuhlut- verk borgarinnar að því er varðar llfsgæði fyrir borgarbúa og valkost fólks og fyrirtækja til búsetu og staðsetningar. (framhaldi af því hef- ur Borgarstjórn Reykjavlkurborgar lagt fram aðgerðaáætlun til að bregðast við því ástandi sem nú er I efna- hags- og atvinnumálum íslendinga. Markmiðið með áætluninni er að viðhafa ábyrga fjármálstjórn og vaðveita stöðugleika í rekstri auk þess að tryggja öfluga grunn- þjónustu við íbúa. Gert er ráð fyrir að starfs- hópur um fjármál á vegum borgarinnar hafi náið samband við stjórnvöld og önnur sveit- arfélög auk stéttarfélaga starfsfólks borgar- innar og aðra viðsemjendur á vinnumarkaði. Sátt hefur náðst á milli meiri- og minnihluta borg-arstjórnar um þær megináherslur sem kynntar hafa verið, sem er í fullu samræmi við stefnu borgarstjórnar um nauðsyn náins samráðs við þær aðstæður sem nú eru fyrir hendi. Nauðsyn víðtækrar samstöðu Áhersla er lögð á að nýta kosti nærsam- félagsins og þróa þjónustu þeirra fjölmörgu sem vinna að velferð borgaranna. Komið hefur verið á fót sérstökum samráðshópum í Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar nær til ýmissa sviða borgarlifsins og þar á meðal til (þróttastarfsemi. Þessar stúlkur stunda íþróttir hjá |R. tengslum við allar þjónustumiðstöðvar borg- arinnar. Hlutverk þeirra er að renna styrkari stoðum undir möguleika hennar að mæta þörfum þeirra Ibúa sem á því þurfa að halda. Þessir samráðshópar eru samráðsvettvangur fyrir stofnanir og félagasamtök auk sjálf- boðaliða sem starfa í hverfum borgarinnar. I því sambandi má nefna heilsugæslu, lög- reglu, skóla, íþróttafélög, trúfélög, vinnu- miðlun, stéttarfélög auk ýmissa frjálsra félagasamtaka. Þessir hópar fylgjast nú með framvindu mála og vinna að samhæfðum viðbrögðum auk þess að miðla upplýsingum til velferðarráðs borgarinnar og til hverfis- ráða. Fjárhagsaðstoð hækkar um 16,35% Borgaryfirvöld ætla ekki að mæta þrengri fjárhagsstöðu með hækkunum á gjald- skrám fyrir grunnþjónustu eða skerða þá þjónustu sem íbúar vænta frá leikskólum, grunn- skólum, frístundaheimilum og al- mennri velferðarþjónustu. Á fundi borgarráðs í byrjun þessa árs var samþykkt að grunnfjárhæðir fjár- hagsaðstoðar til framfærslu hækki um 16,35% frá 1. janúar 2009 sem er (samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs milli ára og leiðbein- ingar félags- og tryggingamála- ráðuneytisins. Framfærsla til ein- staklinga hækkar úr 99.329 krón- um á mánuði í kr. 115.567 og framfærsla til hjóna og fólks I skráðri sambúð úr kr. 158.926 í kr. 184.907 kr. (sömu samþykkt kemur fram að heimildagreiðslur vegna barna hækka um sömu prósentutölu eða 16,35%. Aðhald í innkaupum en fram- kvæmdir tryggðar Engin áform eru um uppsagnir starfsfólks hjá Reykjavíkurborg en dregið verður úr kostnaði og nýráðningum í stjórnsýslu borgarinnar. Einnig kemur fram að fjárheimildir sviða verða að jafnaði ekki auknar frá árinu 2008 þrátt fyrir vaxandi verðbólgu, en útgjöld endurskoðuð með það að markmiði að ná fram sparnaði og samhæfingu í stjórnkerf- inu. Þá er stefnt að stórauknu aðhaldi í inn- kaupum og að allt að 15% sparnaði á næstu mánuðum og árum. Þá verður leitast við að tryggja fjármögnun fyrir nauðsynlegum framkvæmdum en forgangsröðun þeirra endurskoðuð og verkefnum sem geta beð- ið eða kalla á aukinn rekstrarkostnað frestað. Ný menntastefna í mótun Borgarráð hefur skipað vinnuhóp til að móta nýja menntastefnu fyrir Reykjavíkurborg. ( hópnum eru Kjartan Magnússon, sem er formaður hópsins, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir, Oddný Sturludóttir og Sigríður Pétursdóttir. Verkefni vinnuhópsins verður að móta menntastefnuna á grund- velli nýrra laga um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla auk mennt- unar og ráðningu kennara og skólastjórnenda. Fræðslustjóri Reykja- vlkurborgar, sviðsstjóri leikskólasviðs og framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundaráðs munu starfa með hópnum. Gert er ráð fyrir að hóp- urinn hafi samráð við nemendur, foreldra, kennara, skólastjórnendur og aðra starfsmenn borgarinnar eftir því sem tilefni gefst til. (frétt frá Reykjavíkurborg segir að vinnuhópurinn eigi ennfremur að huga sérstaklega að því að efla samstarf milli skólastiga og sam- vinnu tónlistarskóla, leikskóla og grunnskóla. Einnig er ætlunin að huga að enn frekari samþættingu skólastarfs við frístundastarf sem rekið er á vegum íþrótta- og tómstundaráðs. Hópurinn mun einnig taka til athugunar tengsl milli grunnskóla og framhaldsskóla. 24 TÖLVUMIÐLUN SFS www.tolvumidlun.is

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.