Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 13
að ræða. „Við höfum byggt upp góðan skóla
og íþróttamannvirki. Krakkarnir geta labbað í
skólann og annað sem þau þurfa að fara
dags daglega. Jafnvel út á golfvöll. Hér er
hægt að koma með börnin hálfátta á
morgnana og þau geta verið í skólanum til
rúmlega fimm á daginn þar sem þau fá mat,
gæslu, aðstoð við heimanám auk tónlist-
arkennslu og Iþróttaiðkunar. Þannig geta
þau verið búin með öll verkefni dagsins þegar
þau koma heim og átt kvöldið með fjöl-
skyldum sínum."
Nauðsynlegt að nýta
fjármagnið sem best
„Við afgreiddum fjárhagsáætlun fyrir Ölfusið
skömmu eftir jól. Hún miðast við að sveitar-
félagið verði ekki í beinum framkvæmdum á
þessu ári. Við höfum framkvæmt mikið að
undanförnu og áform um að hægja þar á
voru komin fram áður en dró til hins verra i
efnahagsmálum þjóðarinnar. En við erum að
vinna að ákveðnu viðhaldi og höfum verið að
bæta í þjónustuna," segir Ólafur Áki þegar
talið berst að hinu sígilda umtalsefni sveit-
arstjórnarmanna.
„Við höfum lækkað leikskólagjöld og nú
er frítt I leikskólann frá kl. 08 til 10 á morgn-
ana. Það hefur líka verið frítt í sund frá
áramótum. Við höfum ekki farið út I að
stokka stofnanir sveitarfélagsins upp eða lagt
út í lækkun launa. Við höfum engu að síður
brýnt fyrir öllum að fara vel með og það á
jafnt við hvort sem um gott eða slæmt ár-
ferði er að ræða. Öllum er nauðsynlegt að
nýta fjármagnið sem best og það þarf að
hafa í huga við gerð hverrar fjárhagsáætl-
unar. Við höldum okkar striki þótt við höfum
hægt á framkvæmdum um sinn. Næsta verk-
efni okkar er að bæta leikskólann. Það er
verið að hanna þær breytíngar og þegar rofar
til I efnahagsmálum þá förum við i það verk,."
segir Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri.
Reykjavíkurborg
Austurhöfn tekin við tónlistarhúsinu
Ákveðið hefur verið að halda áfram framkvæmdum við Tónlistar- og
ráðstefnuhúsið sem er (byggingu við Reykjavíkurhöfn en framkvæmd-
ir við það stöðvuðust I kjölfar bankahrunsins. Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri undir-
rituðu fyrir skömmu viljayfirlýsingu um áframhaldandi framkvæmdir
við Tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík.
Félagið Austurhöfn-TR ehf., sem er í eigu ríkis og borgar, mun taka
verkefnið yfir.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við húsið Ijúki á árinu 2011 en
það er um einu ári síðar en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.
Kostnaður við að Ijúka byggingunni er áætlaður um 13,3 milljarðar
króna og gert er ráð fyrir að allt að 600 störf skapist vegna fram-
kvæmdarinnar og allt að helmingur þeirra verði á verkstaðnum. Allar
áætlanir miðast við að ekki þurfi að koma til aukin opinber framlög
frá því sem ákveðið var á árinu 2004 þegar framkvæmdir og rekstur
tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar voru boðin út.
Á blaðamannafundi, sem haldinn var (tilefni af undirritun viljayfir-
lýsingarinnar, sagði Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austur-
hafnar, að Landsbankinn muni annast fjármögnum verksins og væru
samningar við bankann á lokastigi. Þótt Austurhöfn-TR ehf. leysi til sín
byggingu mannvirkisins er gert ráð fyrir að um tímabundna ráðstöfun
verði að ræða. Austurhöfn-TR ehf. og dótturfélög þess munu vinna
að heildaruppbyggingu alls svæðisins með það að markmiði að
tryggja rekstrargrundvöll tónlistar- og ráðstefnuhússins og að öflug
ferðaþjónusta og önnur atvinnustarfsemi geti náð fótfestu á þessu
svæði.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri
undirrita viljayfirlýsingu um framhald byggingar Tónlistar- og ráðstefnuhúss i
Reykjavik.
<%>
TÖLVUMIÐLUN
www.h3.is
13