Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 18

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Blaðsíða 18
Viðtal mánaðarins Eigum að I Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur, segir samninginn við Norðurál ákaflega mikilvægan fyrir íslenskt athafnalíf. Hann kveðst einnig telja að leið íslands inn á hinn alþjóðlega orkumarkvað verði í gegnum ráðgjöf og hönnun en ekki fjárfestingar Orkuveitunnar í verkefnum um víða veröld. „Ég tel að eitt af stærri verkefnum Orkuveit- unnar nú sé að afla orku vegna þessa samn- ings við Norðurál til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Samningurinn er í rauninni lykill að endurreisn íslands, gangi hann eftir. Þessi samningur mun opna fyrir fjárfestingar er- lendra aðila hér á landi og að erlendir bankar hefji á ný lánveitingar hingað sem algerlega er lokað fyrir í dag. Ég lít því á byggingu Norðuráls sem lykilverkefni til þess að koma Islandi aftur af stað." Mikil sérfræðiþekking Guðlaugur segir að þó svo að þarna sé um álver að ræða, beri okkur að líta á að álverið í Straumsvík hefur skilað okkur 40 góðum árum sem samstarfsaðili hér á landi. „Það er ekkert að óttast í þessu efni. Hins vegar er leiðinlegt að geta ekki dreift kröftunum víðar vegna þess að við viljum byggja upp fjöl- breyttari iðnað. En þess ber einnig að gæta að hér hefur mikil sérfræðiþekking orðið til á þessu sviði. Álverið í Helguvík mun byggja á íslenskri hönnun og þekkingu sem við höfum verið að afla okkur á síðustu 10 til 12 árum. Þessa þekkingu þurfti áður að kaupa erlendis frá og síðast er að minnast byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði þar sem ýmsir aðilar, bæði innlendir og erlendir, komu að þessum verkum. í Helguvík er eingöngu um innlenda aðila að ræða. Við erum í engri stöðu ( dag til þess að velja og hafna. Um það snýst málið. Þeir erlendu aðilar sem höfðu sýnt áhuga á að koma að verkefnum hér á landi hurfu allir við bankahrunið. Staðan er gjörbreytt frá því sem áður var og ef við nýtum ekki þetta tækifæri sem við eigum þá þurfum við ekkert að tala um erlendar fjárfestingar hér á næst- unni. Orkuveita Reykjavikur víll vinna að því með Reykvikingum og Islendingum að byggja Island upp aftur. Við þurfum að halda öllum þeim störfum sem við getum í landinu ef ekki á illa að fara." Styð atvinnustefnuna heilshugar Skipan Guðlaugs í stjórn OR kom mörgum á óvart en á sér þó sinn aðdraganda. Hann kveðst hafa haft afskipti af stjórnmálum ( OR fjárfestir fyrir 12,7 milljarða á árinu Orkuveita Reykjavíkur áformar fjárfestingar sem nema 12,7 milljörðum króna á yfirstandandi ári. Þetta kom fram á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins 13. febrúar sl. Stærstur hluti fjárfest- inganna er í stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Ætlunin er að verja 7,2 milljörðum króna til frekari uppbyggingar Hellisheiðarvirkjunar, þar á meðal uppbyggingar framleiðslu á heitu vatni og hreinsunar jarðhitagass úr gufunni frá virkjuninni. Um 600 milljónum verður varið til rannsókna og annars undirbúnings vegna Hverahllðarvirkjunar og umhverfismats vegna hugsanlegrar nýtingar jarðhita við Gráuhnúka, spottakorn frá Hellisheiðarvirkjun. Áætlað er að fjárfesta I Dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur fyrir um 3,5 milljarða króna á árinu. Veigamestar verða endurbætur í eldri hverfum Reykjavíkur og fáveituframkvæmdir á Vesturlandi. Þar er meðal annars um að ræða dælustöðvar í byggðunum við sjávarsíðuna og lífrænar hreinsistöðvar í byggðakjörnum uppsveitanna. SFS 18 TÖLVUMIÐLUN www.tolvumidlun.is

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.