Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Page 8
Re
Knýjandi að búa til sam-
keppnishæfa borg
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi í
Reykjavík og fyrrverandi borgarstjóri,
segir að efnahagshrunið kalli á skýra
forystu í borginni við að standa vörð
um þjónustu og huga að skynsamlegri
framtíðaruppbyggingu.
„Hrunið kallar á nýja hugsun og nýjar að-
ferðir í borgarstjórn ekki síður en annars
staðar. Þegar kemur að því að veita borgar-
búum þjónustu tel ég mikilvægt að við áttum
okkur á hlutverki grunneininganna í borg-
inni. Þjónustan á ekki að koma I staðinn fyrir
fjölskyldurnar eða góða nágranna heldur
styðja við fólk og hverfin I að vera góðir staðir
til að búa í, eldast eða ala upp börn. Þau
skref sem við höfum stigið í að styrkja hverfin
og sjálfstæði þeirra hafa verið mjög farsæl.
Þar á ég við stofnþjónustumiðstöðvarnar sem
margir þekkja og þær áherslur sem lagðar
hafa verið á samstarf, forvarnir og málefni
barna og unglinga. Næsta mál er að þróa
þessar áherslur lengra og efla sjálfstæði
hverfanna enn frekar," segir Dagur B.
Eggertsson, borgarfulltrúi í Reykjavík og fyrr-
verandi borgarstjóri.
Stórfelldur verkefnaflutningur
til sveitarfélaganna
Dagur segir nauðsynlegt að færa völd og
verkefni nær íbúum. Það þurfi að verða hinn
rauði þráður í endurskipulagning Islensks
samfélags. í því felist stórfelldur flutningur á
verkefnum frá rfkinu til sveitarfélaganna. „Ég
tel að velferðarþjónustan sem borgin annast
eigi að vera samfléttuð heilsugæslunni og
málefnum þjónustu við fatlaða. Ég get séð
fyrir mér að borgin taki við rekstri stofnana á
borð við framhaldsskólana og lögregluna.
Þarna eru stór viðfangsefni á ferðinni sem
geta styrkt hverfin og grenndarsamfélagið og
þar með alla sem eru að vinna á þeim vett-
vangi eins og æskulýðshreyfinguna, íþrótta-
félögin, prestana og söfnuðina. Með þessu
gæti myndast óformlegt net og samtaka-
máttur. Það reynir mjög á hann núna en það
er líka hluti af lausninni. Við eigum að styðja
við þetta."
Hverfisráöin í Reykjavik hafa lagt áherslu á tiltekt og fegrun borgarinnar. Hér eru þrjér athafnasamar konur við
tiltekt á hreinsunardegi í einu af borgarhverfunum á liðnu sumri.
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi.
Öryggi er lykilatriði
Öryggi borgaranna og öryggi ( hverfum þarf
að vera forgangsmál að mati Dags. „Við
höfum mjög góða reynslu af hverfalögreglu.
Hverfalöggæslan hefur skilað góðum árangri
og ég hef talað fyrir því að hún verðu stór-
efld. Hverfalöggæslan elur af sér þekkingu á
svæðunum þar sem hún fer fram og kunn-
ingsskapur myndast sem auðveldar oft að
leysa úr vanda sem getur komið upp. Reynsla
okkar er líka sú að þeir einstaklingar sem
hafa valist til starfa við hverfalöggæslu í
Reykjavík hafa ekki aðeins reynst vanda
sínum vaxnir heldur eru orðnir sannir leiðtog-
ar (samfélaginu. Ég tel það vera ómetanlegt
þegar kemur að unglingunum og þeim
mörgu og flóknu viðgangsefnum sem geta
komið upp að hafa góða þekkingu á um-
hverfinu og góð tengsl við fólkið."
Knýjandi að búa til sam-
keppnishæfa borg
Dagur segir meira knýjandi nú en áður að
SFS
8
TÖLVUMIÐLUN
www.tolvumidlun.is