Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Síða 14
Byggðamál
Byggist á hagkvæmni, umhverfi
og félagslegu jafnræði
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir
að grunnþættir hinnar nýju byggðastefnu byggist á hagkvæmni, um-
hverfi og félagslegu jafnræði. Hann segir að hið opinbera nái yfir bæði
ríki og sveitarfélög. Þessir aðilar verði að vinna betur saman og að
samvinna á milli ráðuneyta þurfi að vera nánari og betri. Þetta kom
fram í setningarerindi hans á ráðstefnu um íslensk byggðamál á kross-
götum sem haldin var í Borgarnesi 20. febrúar sl. Ráðstefnan var hald-
in á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, iðnaðarráðuneytisins,
samgönguráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, Byggðastofnunar og
landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Höfuðborgarsvæðið og vaxtarsvæði
Halldór sagði í setningarerindi sínu að fjárlög (slenska rlkisins og
rammaáætlanir í rfkisfjármálum skiptu miklu máli við þær aðstæður
sem nú ríktu. Einnig skipti samningurinn við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn
verulegu máli auk þeirra áætlana sem unnar væru af hinu opinbera. (
þvi sambandi nefndi hann sérstaklega áætlanir sem snerta sveitar-
félögin með einum eða öðrum hætti. Hann nefndi byggðaáætlun,
samgönguáætlun og fjarskiptaáætlun sérstaklega en einnig áætlanir
ráðuneyta um uppbyggingu þjónustu i landinu. Hann gat einnig um
vinnu við skipulag miðhálendisins, rammaáætlun um vernd og nýt-
ingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði en þau
eru í vinnslu auk þess sem ekki hefur náðst samstaða um frumvarp um
svonefnda landsskipulagsáætlun.
Halldór ræddi um samþættingu sem flestra áætlana - áætlana á
borð við landsvæðaáætlanir, byggðaáætlun, svæðisskipulag, sam-
gönguáætlun, fjarskiptaáætlun, rammaáætlun um auðlindanýtingu,
áætlanir ráðuneyta um þjónustuuppbyggingu og áætlanir um breytta
verkaskiptingu rikis og sveitarfélaga. Hann sagði að nokkrar land-
svæðaáætlanir mynduðu hina nýju byggðaáætlun er nær til alls lands-
ins, bæði landabyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins. Tryggja yrði
Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Eyrún
Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps og Hrefna B. Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri á
ísafirði og Ari Hafliðason, bæjarfulltrúi í Vesturbyggð. Vinstra megin við Halldór
situr Stefán Stefánsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands
samkeppnisgetu höfuðborgarsvæðisins gagnvart útlöndum og leggja
þyrfti aukna áherslu á þjónustu- og vaxtarsvæði á Eyjafjarðarsvæðinu
auk annarra landshlutakjarna, með áherslu á svæðabundið hlutverk
auk þess sem treysta yrði þau svæði sem nýta grunnþjónustu lands-
hlutakjarna.
Halldór telur nauðsynlegt að sveitarstjórnarmál, byggða-, skipu-
lags- og byggingarmál verði sameinuð í eitt ráðuneyti; ráðuneyti
byggða- og sveitarstjórnarmála, sem hafi umsýslu með öllum mála-
flokkum sem sveitarfélögin annast um. Einnig að stækka verði sveitar-
félögin og efla til að þau ráði betur við núverandi verkefni og einnig
önnur verkefni sem þau kunna að taka að sér í framtíðinni.
Jöfnunarsjóður og Byggðastofnun
Halldór benti á að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga væri stærsti byggða-
sjóðurinn í landinu og sagði að efla þyrfti lánastarfsemi Byggða-
stofnunar. Ýmis sóknarfæri væru í samskiptum við Evrópusambandið
og stórefla þyrfti atvinnuþróunarfélögin með það í huga að nýjar
atvinnugreinar geti tekið við af þeim eldri og einnig stutt við þær.
Hann sagði að ekki mætti hindra um of „eðlilega" þróun i atvinnu-
lífinu og nefndi fækkun fólks í frumvinnslugreinum sérstaklega í því
efni. Þess í stað yrði að horfa til aukinnar sérhæfingar og hagkvæmni
verkaskiptingar.
Halldór sagði þá staðreynd að atvinnuleysi hafi stóraukist að undan-
förnu auk þess sem samsetning atvinnulausra hafi breyst verulega,
kalli á ný viðfangsefni. Þá hamli skortur á fjármagni atvinnuþróun og
uppbyggingu verulega. Hann ræddi sérstaklega um að nýta þurfi
auðlindir hvers svæðis heima fyrir eins og kostur er. Til að svo megi
verða þurfi að stuðla að jöfnun grunnþátta, s.s. aðgengi að menntun,
menningu, opinberri þjónustu og nægri orku með afhendingaröryggi.
Hver sveitarstjórn verði i því efni sem öðrum að líta út fyrir sitt þrönga
umráðasvæði og hugsa um allt landsvæðið og heildina.
SFS
14
TÖLVUMIÐLUN
www.tolvumidlun.is