Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Qupperneq 19
^Við erum vel mannað fyrirtæki með mikla þekkingu innanborðs auk
þess sem verkfræðistofur með mjög hæft starfsfólk eru stoðfyrirtæki við
Orkuveituna. ^
nær einn og hálfan áratug. Hann gekk til liðs
við Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík
og kveðst aðhyllast þessa hófsömu miðju-
stefnu sem Framsóknarflokkurinn stendur
fyrir og þær áherslur sem hann leggur á
atvinnulífið.
„Ég styð atvinnustefnuna heilshugar þótt
við lifum bæði góða og slæma tíma í stjórn-
málunum sem öðrum málum. Stuttu eftir að
ég gekk til liðs við Framsóknarflokkinn flutti
ég á Seltjarnarnes þar sem ég bjó um tíma.
Ég tók að mér formennsku í framsóknar-
félaginu á Nesinu og varð líka varaformaður
Neslistans, sameiginlegs framboðs minni-
hlutaflokkanna á Seltjarnarnesi sem stóð
saman af stjórnmálaöflunum á miðjunni og
til vinstri líkt og R-listinn í Reykjavík.
Ég starfaði um tima í skólanefnd og í
skipulagsnefnd á Seltjarnarnesi. Ég verð
eiginlega að segja að skipulagsnefndin var
einhver þægilegasta nefnd sem ég hef starf-
að í. Við sátum þrír í nefndinni; ég, Sigurður
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og Sigurgeir
Sigurðsson, sem var bæjarstjóri á Seltjarn-
arnesi um áratuga skeið. Við hittumst svona í
korter eða tuttugu mínútur og ræddum um
girðingar! Það var ekki mikið um nýbygg-
ingar á Nesinu á þeim tima eða aðrar fram-
kvæmdir og Sigurgeir sá bara um hlutina.
Þótt við störfuðum fyrir sinn listann hvor þá
verð ég að segja að Sigurgeir var afskaplega
indæll maður og gott að starfa með honum.
Hann hélt vel utan um sitt fólk á Seltjarnarnesi
og ég á ekki annað en góðar minningar um
hann. Hann var allt í öllu og það sama má
segja um skólanefndina og skipulagsnefnd-
Einn merkasti atburður íslandssögunnar
Uppbygging hitaveitna á (slandi á síðustu öld er án efa sá atburður Islandssögunnar sem
stuðlað hefur hvað mest að auknu heilbrigði og lífsgæðum þjóðarinnar. Þetta kemur fram i
skýrslu sem Heilbrigðisvísindastofnun Háskólans á Akureyri hefur unnið fyrir Samorku um
heilsufarsáhrif heitavatnsnotkunar á islandi, í tilefni af 100 ára afmæli hitaveitu á íslandi árið
2008.
I skýrslunni er bent á hreinna andrúmsloft, betur hituð hýbýli, sundlaugamenningu,
heilsuböð, bættan þrifnað, lækningamátt og forvarnagildi heitra baða auk ýmissa annarra
þátta í þjóðlífi íslendinga. I skýrslunni kemur einnig fram að árleg heildarlosun koltvísýrings
á Islandi er um 45% lægri en ef kynt væri með olíu.
ina að hún tók aldrei endanlega ákvörðun
fyrr en hann var búinn að leggja blessun sína
yfir hana. Minnihlutinn lét stundum gera
bókanir en þær náðu yfirleitt aldrei lengra en
í fundargerðabókina."
Þegar Guðlaugur flutti aftur til Reykjavíkur
hóf hann störf í Framsóknarfélaginu í Reykja-
vík og varð formaður þegar félögin sem verið
höfðu í Reykjavík suður og norður voru
sameinuð í eitt félag. „Af því leiðir að ég hef
starfað mikið með Óskari Bergssyni á vett-
TOLVUMIÐLUN
www.h3.is