Hermes - 01.04.1963, Síða 10

Hermes - 01.04.1963, Síða 10
Mikilvægur frumskilningur er, að menn láti sér skiljast, að skyldu- tryggingarnar eru í flestum tilfell- um aðeins grundvöllur til þess að byggja á framhald hnitmiðaðrar tryggingaverndar miðað við per- sónulega sérstöðu og óskir hvers eins. Reynslan í þeim þjóðfélögum, sem komin eru lengst í trygginga- verndarmálum, sannar ótvírætt það athyglisverða fyrirbæri, að því lengra sem gengið er á vegi hvers konar skyldutrygginga, því meira hafa þjóðfélagsþegnarnir sjálfir að- hafst á sviði frjálsra trygginga. — Sumum kann að finnast þetta skjóta skökku við, en það er samt engan veginn óeðlilegt, að eftir því, sem fólk kynnist betur blessunar- ríkum áhrifum lögboðinna lág- markstrygginga, skilji það og kunni betur að meta þá margþættu mögu- leika, er frjálsar tryggingar bjóða upp á til fullkomnunar með per- sónulegu vali við sérhæfi hvers eins. Frjálsu tryggingunum má líkja við reisulegt hús, en skyldutrygg- ingunum við grunn. Það er mynd, sem vert er að hafa í huga. Hún hefir möguleika til þess að skýra athafnir eða aðgerðarleysi eiganda grunnsins. Hver einn sníður sér eigin stakk eftir vexti og nýtur þess eða geldur, hvað hann gerir, eða ógert lætur. Að lokum má svo geta þess, að viðhorf manna til frjálsra trygginga er engan veginn eins mikið einka- mál viðkomandi manna og margir vilja vera láta. Alveg eins og skyldutryggingarnar eru þjóðfélags- leg nauðsyn, sem skylda er að fólks af svona tilefnum megi senn segja „öll lokuð sund og fokið hvert í skjól“. Það er með öðrum orðum sú stund þegar upp runnin á Is- landi að fullveðja einstaklingar, sem vilja teljast menn með mönn- um, verða að gera sér ljóst, að á þeim sjálfum hvílir forsjárskylda — einnig í slysa- og tjónatilfellum. Mér ber sennilega að biðja for- láts á því, hve margorður ég hefi gerzt um tryggingamálin í þessari hugleiðingu. Astæðan er sú að það er flestu öðru þýðingarmeira í lífs- baráttu manna nú á dögum að átta sig á þessum tímabæru viðskipta- viðhorfum. — Tryggingamálin eru þannig í eðli sínu, að ekki verður aftur tekið, ef mistök eiga sér stað, og tæplega nokkru sinni sætzt við samvizkuna í eigin brjósti eftir að út af ber. Þess vegna eru þau svo áhrifarík til úrskurðar um það, hvort menn halda vöku sinni og standa þann vörð, sem ábyrgt lífs- viðhorf krefst af þeim. Fram- kvæmdasemin á þessum vettvangi er flestu öðru fremur undanfari kvíðalausara lífs og áhyggjuminna. Hún eykur þess vegna á vellíðan allra og má þannig vissulega verða til sannkallaðs hamingjuauka með- an lífinu er lifað hér í heimi hættu, harms og tjóna. Það þarf því ekki að fara í neinar grafgötur um til- gang heilbrigðra trygginga. Ætlun- arverk þeirra er að taka frá fólki beizkan bikar lamandi ótta og nið- urlægingar. Þannig mætti vitnis- burðurinn um þær hljóma æ hærra sem voldugur tónn í stríðs- og sig- ursöng farsælla mannlífs. verða við að vissu lágmarki, þannig krefst og almannaheill trygginga- verndar þegnanna í nútímaþjóðfé- lagi langt umfram fyrirmæli laga- skyldunnar. Það er ekki náungan- um óviðkomandi hvort t.d. heimil- isfaðir stendur uppi með fjölskyldu sína við hliðina á honum slyppur og snauður eftir eldsvoða, gjörsam- lega firrtur möguleika til „upprisu" á eigin spýtur í efnahagslegu tilliti, eða hvort vel var fyrir öllu séð og engrar neyðarhjálpar þörf. Og það er engan veginn örgrannt um það, að almenningsálitið sé farið að sýna sig nokkuð snúið í þessum efnum, samanber viðhorfið, sem kom í ljós við harla neikvæðar undirtekt- ir við fjársöfnunartilraun Rauða kross Islands á s.l. vetri til hjálpar tryggingarverndarlausu fólki vestur á fjörðum. Það er ekki fjarri þvi, að með tilliti til hjálparviðhorfs

x

Hermes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.