Hermes - 01.04.1963, Síða 19
hans er til ýtarleg kvikmynd
handa Júdómönnum komandi
kynslóða. Siðferðislega hefur
glíman einnig sitt gildi, því að í
henni er ekki lögð áherzla á kraft
og blinda orku, heldur vísinda-
lega nákvæmni og lipurð, enda
er mýkt og fegurð glímunnar al-
kunn.
Maður var nefndur Laó-tse,
kínverskur spekingur og trúar-
bragðahöfundur. Hann hvatti
menn til þess að stunda það sem
hann kallaði Vú-vei, að sigra
með því að láta undan og gefa
eftir, sigra á sama hátt og drop-
inn, sem holar steininn. Kenning
hans er að vísu andlegs eðlis, en
birtist þó óvíða betur en í Júdó-
glímunni þar sem „mýktin sigr-
ar kraftinn".
JÓN ORMAR JÓNSSON
¥
Sól mín leitar
að vitund þinni
frá botni djúpsins
um dimma nótt.
Leið mín liggur
um óvegu óttans
að hliði hamingjunnar.
Þegar dagurinn kemur
þegar hatrið deyr....
Frá botni djúpsins
tímans og heiðríkjunnar
mun ég teyga líf þitt.