Hermes - 01.07.1965, Blaðsíða 3

Hermes - 01.07.1965, Blaðsíða 3
á hugtakinu existentialism sinna — synda sinna. En þar með er ekki sagt, að hægt sé að útskýra synd einstaklingsins út frá sér- stöku, líkamlegu ástandi hans, því að þá væri leitt í ljós, að hann hefði ekki getað komið öðru vísi fram og veikleikar hans eru ekki syndsamlegir. Syndin er því allt annað en tilviljunarkenndir veikleikar einstaklingsins eða hugtak, sem hægt er að útskýra með sálfræðilegum aðferðum. Syndin er ekki heldur siðlaust hugtak, heldur trúarsetningarlegt (dog- matiskt) hugtak. Og trúarsetningarlegt hugtak er ekki hægt að meðhöndla sem vitneskju. Forsenda slíks hugtaks er trú. Að syndga er að missa frelsi sitt, og hafi maðurinn eitthvað frelsi að missa, tap- ar hann því vegna sjálfs síns gjörða, en ekki annarra. Þetta á sér stað í syndafallinu. A þessum ókristilegu tímum upplifa fæstir synda- fall í eigin lífi, heldur upplifa flestir það, sem Kierkegaard skoðaði sem sálfræðilega afleiðingu syndafallsins: Klofningu sjálfsins (splittelsen i selvet); þá fjarstæðukenndu (absurde) reynslu að vera ókunnugur frammi fyrir sjálfum sér. En þetta fyrirbrigði er mjög vinsælt efni á meðal existential- istiskra höfunda, svo sem Albert Camus í bók hans Fallið, sem þýdd hefur verið á íslenzku. Með verkum sínum skapar Kierkegaard grundvöll undir existentialismann eins og hann birtist á tutt- ugustu öldinni, bæði hjá Þjóðverjum og Frökkum. Merkilegustu verk hans, sem þýdd hafa verið á allar menningartungur, eru: Enten-Eller, Frygt og Bæ- ven, Begrebet Angest, Stadier paa Livets Vei og Afsluttende uvidenskabelig Eftirskrift. Nöfn bók- anna gefa allgóða hugmynd um viðfangsefni höf- undar. Begrebet Angest er til dæmis nákvæm rann- sókn á hugtakinu angist. Kierkegaard sannar áþreif- anlega, að angistin, hræðslan, er almennara og sterkara afl í daglegum gjörðum manna, en menn áður höfðu gert sér grein fyrir. En hann tengir angistina, óttann við hugmyndir manna um erfða- syndina. Og fullyrðir jafnframt, að hugtakið synd sé trúarsetningarlegt hugtak, eins og áður hefur ver- ið skýrt frá. Þetta má skýrast með þeirri fullyrðingu Kierkegaards að: „Syndens Skepsis er Hedenskabets aldeles fremmed." Eða með öðrum orðum, syndin, ábyrgðartilfinningin eða frekar hin fjarstæðukennda

x

Hermes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.