Hermes - 01.07.1965, Page 7
Bo Setterlind:
" rímnalestur
Sigurðsson
Jesús negldur
á lcrossinn
Áður en lengra er haldið, þykir mér rétt að ræða
nokkuð, hvað orðið ríma merkir, því ég er satt bezt
að segja ekki sannfærður um, að allir geri sér það
fullkomlega ljóst. I því sambandi ber það fyrst og
fremst að hafa í huga, að nálega án undantekninga
► eru rímurnar söguljóð. Það felur í sér, að þær eru
að efninu til frásagnir af tilteknum sögupersónum
og því, sem á daga þeirra drífur, með öðrum orðum,
í þeim er yfirleitt áframhaldandi söguþráður, og
getur þar ýmist verið um sannar frásagnir að ræða
eða skáldskap að mestu eða öllu leyti. Til er það,
að rímnaskáldin búi söguna til jafnframt því sem
þau yrkja, en hitt er þó langtum algengara, að þau
yrki eftir eldri sögu, sem þau hafa þá víst oftast haft
fyrir sér ritaða eða prentaða. Sögur þær, sem rímur
hafa verið ortar út af, skipta hundruðum ef ekki
þúsundum og mynda saman hinn sundurleitasta hóp.
■ Islendingasögur, fornaldarsögur og riddarasögur eru
þó meðal vinsælustu yrkisefnanna, en einnig tíðkað-
ist hitt, að erlendar sögur eða ævintýri legðu til efni
í rímur og rímnaflokka. Einnig má nefna, að
til er talsvert af rímum, sem ortar eru út af Biblíunni
og einstökum bókum hennar, svo fjarstæðukennt
Frjóls skal hann aldrei verða,
alltaf skal hann hanga
einsog fórnarlamb
ó grimmdartré okkar.
Deyja skal hann aldrei,
alltaf skal hann lifa
sem burðarmaður skammar okkur
og niðurlœgingar.
Því er lokið.
Framseldur er hann okkur,
nöglum okkar,
þvermóðsku okkar.
Því er lokið.
Negldur er hann við okkur
og mó ei losna!
Þýð.: dþ.