Hermes - 01.05.1969, Qupperneq 15
Bjarni Aðalgeirsson mun vera frægastur þeirra
skíðamanna, er á Bifröst hafa dvalið — enda gekk
hann á skíðum, þótt aðrir sæju engan snjó nema á
efstu tindum Grábrókar og þar fyrir ofan. Bjami
stendur nú í ströngu við húsbyggingu, og eru því
sólarhringar hans lengri en annarra manna.
Svipuð eru örlög Guðmundar Bjarnasonar, sem
byggir við hlið Bjarna, enda mennimir samrýmd-
ir. Atvinna Guðmundar er annars sú að telja pen-
inga Samvinnubankans, það litla sem eftir var,
þegar Einar Njálsson flutti suður. .
Þriðji Bifrestingurinn í ,,Snobbhill“ Húsavíkur
er Jónína Málfríður Sigtryggsdóttir. Hefur hún
helgað sig eiginkonuhlutverkinu og fjölgað þjóð-
inni um 4.
Annar fulltrúi veika (sterka) kjmsins í þessum
hópi er Helga Karlsdóttir. Starfar hún á bifreiða-
verkstæði og innheimtir greiðslur fyrir brotin
drifsköft, sprungna hjólbarða, bensínstíflur o. þ. h.
Tómstundaiðja hennar er langlínusamtöl við Suð-
urland.
Á Laugavöllum í Reykjadal á Halldóra Aðal-
steinsdóttir heima og stýrir búi með föður sínum.
Þar gróa grös fyrr og betur en annars staðar.
Oft má sjá Volkswagenbifreið brima í bæinn um
níuleytið á morgnana. Hreiðar Karlsson heitir
stjórnandinn og kemur úr Kvennaskólanum að
Laugum. Þar verður hann að hafa annan fótinn,
en hinn hér á Húsavík. Á milli þessarra staða eru
42 kílómetrar. Hreiðar er sveit sinni trúr og trygg-
ur og hefur við þriðja mann tvívegis tekið þátt í
spurningakeppni Héraðssambands S-Þing., en
varð nú fyrir skömmu að bíta í það súra epli, að
menn úr Köldukinn vissu betur.
Flatey á Skjálfanda hefur margan hraustan sjó-
mann alið. Einn slíkur er Guðmundur A. Hólm-
geirsson, sem trúlega hefur stýrt fleiri fleytum og
Gott fyrir ísbirni, ekki satt?
drepið fleiri þorska en aðrir Bifrestingar. Nú er
hann lagztur við landfestar á Húsavík og sinnir
þýðingarmiklum störfum við lágreista fjárhirzlu
Húsavíkurkaupstaðar.
Og ekki megum við gleyma tengslum Mývetn-
inga við heimsmenninguna. Þar er framleiddur kís
ilgúr og gufurafmagn — þangað smýgur sjónvarps-
geislinn gegnum Ljósavatnsskarð og þar selur Jón
Illugason þreyttum ferðalöngum harðfisk, kók og
vargskýlur. Auk þess situr hann í hreppsnefnd og
semur við erlent auðvald um hinn mývetnska leir.
Stormasamt er nú í þjóðfélaginu, veðurfar rysj-
ótt og hafís fyrir Norðurlandi. Þó má sjá, að sam-
vinnuandi þrífst enn meðal Þingeyinga og að ekki
er allur vindur úr þeim horfinn.
Með samvinnukveðju
Þórhallur Björnsson
Haukur Logason
Hreiðar Karlsson